Bændablaðið - 25.02.2016, Side 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. febrúar 2016
Óbyggðanefnd hefur þurft að
minnka umfjöllunarsvæði sín
vegna þröngs fjárhagsramma enda
hafa fjárheimildir hennar minnkað
um helming frá því fyrir hrun.
Nefndin ákvað nýlega að smækka
þau svæði sem tekin eru fyrir og
miðað við núverandi starfsáætlun
er ekki við því að búast að nefndin
ljúki störfum fyrr en eftir nærri tíu
ár. Úrskurðar Óbyggðanefndar er að
vænta í Borgarfirði á næstu mánuðum
og málsmeðferð er hafin í Dalasýslu
og Snæfellsnesi. Undrun vekur að
kröfulýsingafrestur fjármálaráðherra
á síðastnefndu svæðunum hefur
margsinnis verið framlengdur, að því
er virðist af litlu tilefni. Ef ástæðan
er sú að lögmönnum hafi verið gefin
fyrirmæli um að rökstyðja þjóðlendu-
kröfur sínar betur er það vel, en land-
eigendum hafa þótt kröfurnar handa-
hófskenndar og engin tilraun gerð til
þess að útskýra og rökstyðja á hvaða
hátt þær eru byggðar á fyrirliggjandi
gögnum. Þetta kom meðal annars
fram í máli Arnars Bergssonar, for-
manns Landssambands landeigenda á
Íslandi (LLÍ) á aðalfundi sambandsins
í síðustu viku.
Í máli Arnars kom fram að
Óbyggðanefnd á eftir að taka fyrir
Vestfirði, Strandir og Austfirði. Það
sé íþyngjandi fyrir landeigendur að
eiga eftir að ganga í gegnum ferl-
ið og úrskurðir dragist á langinn.
Óbyggðanefnd hafi nú lokið
málsmeðferð á 76% af landinu öllu
og 92% af miðhálendinu. Af þeim
hluta hálendisins sem nefndin hafi
úrskurðað um séu 88% þjóðlendur
og 12% eignarlönd. Verkefnið, sem
taka hefði átt um áratug og ætlað var
fyrst og fremst að skýra eignarhald
á miðhálendi Íslands, hafi farið í allt
annan farveg en Alþingi og hags-
munaaðilar hafi ætlað í upphafi.
Örn lýsti yfir vonbrigðum með að
forsætisráðuneytið hafi hafnað óskum
LLÍ um að fá endurupptökuákvæði í
Þjóðlendulögin frá árinu 2012, finn-
ist gögn sem gætu breytt niðurstöðu
mála. Endurupptökuákvæði í lögun-
um sjálfum hefði verið mjög gagn-
legt, enda ekki að vænta mikils af
endurupptökunefnd, sem sé sjálfstæð
stjórnsýslustofnun sem hafni nær
undantekningalaust upptöku mála.
Örn fagnaði því að ríkt samráð
hefði verið haft við LLÍ vegna nýrra
laga um náttúruvernd sem tóku gildi
þann 15. nóvember síðastliðinn.
Gildistöku fyrri laga frá síðasta
kjörtímabili hefði verið frestað, enda
hefðu þau þótt ganga of langt í átt til
stofnanavæðingar og ríkisforsjár. Örn
taldi núverandi lög ásættanleg fyrir
landeigendur og nefndi til dæmis að
náðst hefði fram að landeiganda eða
hans mönnum væri nú heimil för um
sitt eigið land á vélknúnu ökutæki svo
fremi sem það ylli ekki spjöllum á
landi. Umhverfis- og samgöngunefnd
náði ekki að klára skilgreiningu á
svokölluðum almannarétti við loka-
afgreiðslu laganna, en gert er ráð
fyrir að því verði lokið á þessu ári.
Örn upplýsti að samtökin verði köll-
uð til samráðs um almannaréttinn á
næstunni og benti á, sem ekki mætti
gleyma, að komið hefðu fram óskir
frá aðilum sem krefjist þess að eiga
nýtingarrétt á landi í einkaeign og
byggja starfsemi á slíkum notum án
leyfis landeigenda. Við þessu þyrfti
að bregðast af hörku.
Loks hvatti Örn landeigendur til
þess að standa vörð um samtökin
sem væru að hefja sitt tíunda starfsár
og náð hefðu þeim árangri að stjórn-
völd viðurkenndu þau sem samtök
sem opinberir aðilar leiti til þegar
fjallað er um hagsmuni landeigenda
á opinberum vettvangi. Samtökin
stæðu sterk en full ástæða væri til að
allir landeigendur gengju í þau, efldu
og styrktu. Ekki síst í því ljósi að sótt
væri að landeigendum úr mun fleiri
áttum en áður. Samtökin hefðu fyrst
og fremst verið stofnuð til að gæta
hagsmuna landeigenda í þjóðlendu-
málum, en í seinni tíð hefði ásókn
og ágangur margfaldast af utanað-
komandi aðilum í ferðaþjónustu og
annarri atvinnustarfsemi, bæði inn á
eignarlönd og þjóðlendur, sem skert
gæti hefðbundinn rétt landeigenda.
Fjölmargir tóku til máls á fundin-
um og hvöttu samtökin til dáða til
að verjast eignaupptöku og standa
vörð um rétt landeigenda. Undir var
tekið að vakningu þyrfti meðal þeirra
fjölmörgu landeigenda sem stæðu
fyrir utan samtökin þar sem brýnt
væri að styrkja einu samtökin sem
gætt gætu hagsmuna þeirra á fjöl-
mörgum sviðum. Stjórn landssam-
takanna var endurkjörin á fundinum
að öðru leyti en því að Elín R. Líndal
vék úr stjórn og situr í varastjórn, í
hennar stað kom Björn Magnússon
úr varastjórn inn í aðalstjórn-
ina. Hana skipa að öðru leyti Örn
Bergsson, formaður, Guðrún María
Valgeirsdóttir, Sigurður Jónsson og
Snorri Jóhannesson.
Smáforrit sem les örmerki hrossa
og heldur utan um skráningar
hefur litið dagsins ljós.
Hugmynd sem kviknaði úti í
haga hefur nú fengið byr undir báða
vængi því fjármögnun hennar var
tryggð nýverið. Bændablaðið kíkti
í heimsókn til Anitar ehf.
Anitar ehf. er hugbúnaðar- og
tæknifyrirtæki á sviði landbúnað-
arlausna. ANITAR, sem stendur fyrir
Animal Intelligent Tag Reader, er
smáforrit og örmerkjalesari sem
einfalda lestur, skráningar og utan-
umhald húsdýra með lestri örmerkja
þeirra. Um er að ræða hugbúnaðar-
og tæknilausn fyrir landbúnaðinn
sem og hinn almenna notanda. Með
Anitar smáforritinu verður hægt
að sjá allar helstu upplýsingar um
dýrið í símanum, strax eftir lestur
á örmerki. Örmerkjalesarinn sendir
örmerkjanúmerið í appið og flettir
því upp í þeim gagnagrunni sem
notandi velur.
Auðveldar hestamönnum lífið
Hugmyndin fæddist haustið 2014
þegar Karl Már Lárusson var staddur
úti í haga að sækja hross og sá þar
tvo aðra í sömu erindagjörðum.
„Þeir áttu í vandræðum með að
þekkja eigin hross úr hópnum. Þeir
notuðust við góðan örmerkjales-
ara en þurftu þrátt fyrir það að
keyra heim að bæ til að fletta upp
örmerkinu í gagnagrunni íslenska
hestsins, WorldFeng. Eftir að hafa
séð þá gera þetta nokkrum sinnum
hugsaði ég með mér að það hlyti
að vera hægt að gera þetta á ein-
faldari máta, þ.e. með örmerkjales-
ara sem myndi sækja upplýsingar
beint í WorldFeng. Þegar heim var
komið hóf ég leit að þannig lausn án
árangurs. Í framhaldi af því kynnti
ég fyrir öðrum hestaeigendum
hugmyndina að beinum samskipt-
um milli örmerkjalesara og gagna-
grunns. Hestaeigendurnir tóku mjög
vel í þessa hugmynd og vildu sjá hana
framkvæmda,“ segir Karl Már, sem
setti að því búnu saman teymi sem
vann að frumþróun hugmyndarinnar.
Vinnuhópurinn samanstóð af Jóni
Inga Stefánssyni, Níelsi Bjarnasyni
og Sigríði ÓlöfuValdimarsdóttur
ásamt Karli Má.
Uppfæra forritið fyrir Landsmót
Forritið, sem nú er aðgengilegt
fyrir iOS og Android síma, býður
upp á einfalda leit með örkmerja-
númeri, eða FEIF-auðkenni hests-
ins. Forritið flettir upp hrossinu í
WorldFeng.
„Anitar-appið getur komið
að góðum notum og verið mjög
skemmtilegt á hestamótum. Þá
er mjög hentugt að geta flett upp
nánari upplýsingum um þau hross
sem eru á vellinum hverju sinni.
Einnig höfum við séð lausnina
virka vel hjá umsjónarmönnum
hagagöngu, þeir geta þá sannreynt
hvaða hross séu að koma eða fara úr
hólfunum,“ segir Karl Már en fyrir
Landsmót hestamanna á Hólum í
sumar er áætlað að gefa út uppfært
forrit með fleiri leitarniðurstöð-
um, svo sem með einkunnum og
afkvæmum. Þá verður einnig hægt
að leita eftir nafni hestsins.
Styrkur tryggir framtíðina
Í lok árs 2015 hlaut Anitar
stærsta verkefnastyrk sem Tækni-
þróunarsjóður RANNÍS býður upp
á og er þróun og starfsemi fyrir-
tækisins því tryggð næstu þrjú árin.
„Það kom okkur skemmtilega
á óvart að hljóta verkefnastyrkinn
enda mikil samkeppni um styrkinn
meðal annarra frumkvöðla, stofnana
og stærri fyrirtækja. Þá þykir afar
sjaldgæft að hljóta verkefnastyrk
Tækniþróunarsjóðs í fyrstu tilraun.
Styrkurinn kemur sér virkilega vel
fyrir okkur og gerir okkur kleift að
þróa vörur okkar hraðar og koma
þeim þannig fyrr til neytenda. Eins
mun styrkurinn nýtast okkur til að
sækja sýningar á erlendum vettvangi
þar sem við getum sótt okkur frekari
þekkingar á sviði örmerkinga,“ segir
Karl Már en auk Tækniþróunarsjóðs
nýtur Anitar góðs af samstarfi við
KPMG, Bændasamtökin og Háskóla
Íslands.
Nýr örmerkjalesari í bígerð
Framtíð fyrirtækisins er því tryggð
og Karl Már segir að Anitar stefni að
því að víkka svið forritsins.
„Við vinnum að heildarlausn til
nýskráningar og utanumhald dýra og
má þar meðal annars nefna að árið
2017 gerum við ráð fyrir að hefja
sölu á nýjum örmerkjalesara sem
notendur munu geta tengt við snjall-
síma sína, örmerkjalesarinn er bæði
hannaður og framleiddur af okkur.
Einnig vinnum við að einfaldri lausn
fyrir nýskráningar á sauðfé, sú lausn
sameinar örmerkjalesarann og hug-
búnað okkar á snjalltækjum notenda.
Við sjáum fyrir okkur að vinna með
íslenskum bændum og almennum
notendum næstu 3–4 árin áður en við
förum að bjóða upp á lausn okkar á
erlendum markaði.“
Anitar ehf. þróaði hugbúnað á snjallsíma og stefnir nú á framleiðslu örmerkjalesara:
Hugmynd sem kviknaði í hrossahaga
Uppl. í síma
893-8424 / set@velafl .is
og á 694-3700 / gk@velafl .is
Bjóðum nú
uppá hina
frábæru Dieci
skotbómulyftara
á góðu verði.
Margar
útfærslur
í boði.
HROSS&HESTAMENNSKA Guðrún Hulda Pálsdóttir
gudrun.hulda.palsdottir@gmail.com
Sigríður Ólöf og Karl Már eru að koma sér fyrir á nýrri skrifstofu Anitar í Borgartúni. Fram undan er mikil vinna við
áframhaldandi þróun smáforritsins og framleiðslu á örmerkjalesurum fyrir snjallsíma. Þau munu kynna uppfært
forrit á Landsmóti hestamanna í sumar. Mynd / GHP
Hvernig virkar Anitar?
Anitar er frítt smáforrit sem nálgast má
í gegnum vefsíðuna anitar.is. Eigendur
hesta og aðrir sem vinna með eða
umgangast hesta geta notað appið við
uppflettingar í WorldFeng. Eins og appið
er í dag er hægt að fletta upp upplýsing-
um um hesta með því að slá inn örmerkjanúmer eða FEIF ID númer (IS
númer) hestsins. Við uppflettingu hests í appinu koma fram eftirfarandi
upplýsingar; nafn, IS númer, örgjörvanúmer, fæðingardagur, staðsetn-
ing, litur, foreldrar, eigendur og ræktendur. Úr niðurstöðunum er svo
hægt að velja foreldrana og sjá sömu upplýsingar um þau.
Aðalfundur Landssambands landeigenda:
Langvarandi réttaróvissa um þjóðlendur óboðleg og íþyngjandi fyrir landeigendur
Örn Bergsson.