Bændablaðið - 25.02.2016, Page 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. febrúar 2016
Í sumar verður lokið við 330
metra langan malbikaðan stíg í
Kristnesskógi í Eyjafirði sem haf-
ist var handa við á liðnu hausti.
Umhverfis- og auðlindaráðu-
neytið veitti á dögunum styrk sem
nægir til að ljúka verkinu. Stígurinn
verður kærkominn fyrir alla gesti
skógarins en þó ekki síst fólk sem
nýtur aðhlynningar og endurhæf-
ingar á Kristnesspítala. Yfirlæknir
endurhæfingardeildar segir að
stígurinn muni breyta miklu enda
margsannað að skógur hafi jákvæð
áhrif á heilsu fólks. Frá þessu er
sagt á vef Skógræktar ríkisins,
skogur.is.
Upphaf málsins var að
Sjálfsbjörg á Akureyri sótti í sam-
vinnu við Skógrækt ríkisins um
styrk hjá umhverfis- og auðlinda-
ráðuneytinu til lagningar stígs fyrir
hreyfihamlaða í Kristnesskógi. Í
byrjun síðasta árs veitti ráðuneytið
1,4 milljónir króna úr verkefnasjóði
sínum á sviði umhverfis- og auð-
lindamála. Framkvæmdasjóður
ferðamannastaða lagði að auki til
hálfa milljón króna úr sérstakri
fjárveitingu fyrir árið 2015. Þessi
framlög nægðu til að hefja mætti
verkið en á dögunum bættist við
annar styrkur frá umhverfis- og
auðlindaráðuneytinu, 2,4 milljónir,
sem nægir til að ljúka við stíginn.
Styrkir til verkefnisins nema sam-
tals 4,3 milljónum króna.
Lokið við verkið í byrjun júlí
Um hönnun stígsins sá Ingvar
Ívarsson, landslagsarkitekt hjá
Landslagi ehf. á Akureyri, en
Túnþökusala Kristins tók að sér
framkvæmdina. Verkið hófst á
liðnu hausti en eftir er að þöku-
leggja, setja jöfnunarlag og að
lokum malbika stíginn. Ætlunin er
að þessu verði öllu lokið í byrjun
júlí á þessu ári. Stígurinn er um 330
metrar á lengd og breiddin um 1,6
metrar við yfirborð. Hæðin er mjög
mismunandi. Mest gæti hún verið
um 1 metri enda þarf stígur sem
þessi að vera sem sléttastur og halli
hans aldrei meiri en 60 prómill svo
að hann fullnægi stöðlum um hjóla-
stólafæra stíga.
Skógurinn veitir tækifæri til
þjálfunar
Að sögn Rúnars Ísleifssonar,
skógarvarðar á Norðurlandi, er sá
hluti Kristnesskógar sem stígurinn
liggur um að mestu leyti gróður-
settur á árunum um og upp úr 1950.
Helstu trjátegundir á svæðinu eru
birki, sitkagreni og síberíulerki en
tegundirnar eru talsvert fleiri sem
ber fyrir augu og fjölbreyttur gróð-
ur í skógarbotni.
Kristnesspítali var upphaflega
reistur sem berklahæli og enn í
dag er talað um Hælið í sveitinni.
Nú eru þar reknar tvær deildir
Sjúkrahússins á Akureyri, öldr-
unardeild og endurhæfingardeild.
Aðstaða er góð í Kristnesi og þar
er meðal annars þjálfunarsundlaug,
en skógurinn veitir líka tækifæri
til þjálfunar og endurhæfingar sem
nú hillir undir að nýtast muni enn
betur en fyrr.
Skógurinn opinn öllum
Ingvar Þóroddsson, yfirlæknir
endurhæfingardeildarinnar, segir
að stígurinn muni breyta miklu fyrir
báðar deildir spítalans. Þarna komist
fólk á hjólastólum eða með göngu-
grindur auðveldlega út í heilnæmt
umhverfi skógarins. Fjölmargar
rannsóknir hafi sýnt fram á jákvæð
áhrif gróðurs, ekki síst skóga, á líðan
fólks. Ingvar telur að með tilkomu
þessa stígs verði komin aðstaða við
Kristnesspítala sem sé einstök við
sjúkrahús á Íslandi og til eftirbreytni.
Hann tekur þó skýrt fram að þessi
stígur sé ekki fyrir spítalann einan.
Hann verði opinn öllum og öllum
velkomið að nota hann enda er
Kristnesskógur þjóðskógur. /MÞÞ
Plastiðjan Bjarg - Iðjulundur
Furuvöllum 1, 600 Akureyri.
Opnunartími:
Mánudaga – föstudaga, kl. 08.00-16.00
Sími 461-4606, Fax 461 2995
Netfang pbi@akureyri.is
Veittur er 15%
afsláttur á
lambamerkjum
ef pantað er fyrir
23. mars 2016
Lambamerki
Minnum á að panta
lambamerkin á www.bufe.is
Þróunarverkefni
í sauðfjárrækt
Framleiðnisjóður landbúnaðarins auglýsir hér með eftir umsókn-
um um styrki til rannsókna og þróunaverkefna í sauðfjárrækt
samkvæmt verklagsreglum Bændasamtaka Íslands um ráðstöfun
fjár til stuðnings við kennslu, rannsóknir, leiðbeiningar og þróun
í sauðfjárrækt, sbr. auglýsingu nr. 703/2014.
Umsókn skulu fylgja eftirfarandi upplýsingar:
- Yfirlit um tilgang og markmið verkefnisins
- Listi yfir alla sem eiga aðild að verkefninu
- Tímaáætlun verkefnisins
- Fjárhagsáætlun verkefnisins.
- Hvernig verkefnið nýtist sauðfjárræktinni
- Hvar og hvernig niðurstöður verða kynntar
Umsóknarfrestur til 1. apríl n.k.
Reglur um styrkina og umsóknareyðublöð er að finna á www. fl.is.
Aðeins er tekið við umsóknum á eyðublöðunum sem þar er að
finna
Umsóknum skal skilað til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins,
Hvanneyri 311 Borgarnes, merktum: umsókn um þróunarfé.
Nánari upplýsingar veitir Þórhildur Þorsteinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Framleiðnisjóðs landbúnaðarins; thorhildur@fl.is
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
Hvanneyri – 311 Borgarnes
Sími 430-4300
Hjólastólafær skógarstígur
í Kristnesskógi
− Umhverfis- og auðlindaráðuneytið veitir styrk til malbikunar
Mynd / Pétur Halldórsson
Kristnesspítali er 10 km sunnan Akureyrar. Mynd /SAK