Bændablaðið - 25.02.2016, Page 31
31BÚVÖRUSAMNINGAR | FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2016
mótaðar áherslur verkefna sjóðsins
á samningstímanum. Stefnt skal að
því að endurskoðuð lög taki gildi á
árinu 2017.
14. gr.
Erfðanefnd landbúnaðarins
14.1 Samningsaðilar eru sam-
mála um að erfðanefnd landbúnað-
arins skuli tryggð árleg afmörkuð
framlög á samningstímanum vegna
verkefna nefndarinnar eins og þau
eru skilgreind í búnaðarlögum nr.
70/1998, með síðari breytingum. Þá
skal nefndin einnig sinna verkefn-
um sem sérstaklega varða verndun
búfjárstofna.
15. gr.
Gjaldtaka vegna veittrar þjónustu
til notenda
15.1 Bændasamtök Íslands
og aðrir aðilar sem fara með verk-
efni samkvæmt búnaðarlögum nr.
70/1998, geta tekið gjald fyrir þá
þjónustu sem þau veita á grundvelli
þessa samnings, sbr. heimild til
slíkrar gjaldtöku í 3. mgr. 3. gr. bún-
aðarlaga nr. 70/1998 og samkvæmt
gjaldskrám sem sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra staðfestir.
16. gr.
Ábyrgð og málsmeðferð
16.1 Fjárhagsleg ábyrgð ríkis-
ins vegna samningsins takmarkast
við þær fjárhæðir sem eru tilgreind-
ar í samningi þessum.
16.2 Bændasamtök Íslands bera
ábyrgð á framkvæmd þeirra þátta
samningsins sem þeim er falið að
annast.
16.3 Bændasamtökum Íslands
er heimilt að fela aðildarfélögum
sínum og/eða félagi sem er í eigu
samtakanna og starfar á ábyrgð
þeirra verkefni samkvæmt samn-
ingi þessum enda samræmist það
40. gr. laga um opinber fjármál nr.
123/2015.
17. gr.
Eftirlit með samningi
17.1 Sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra hefur eftirlit með
framkvæmd samningsins.
17.2 Sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra skal hafa aðgang að
öllum upplýsingum sem Bænda-
samtök Íslands skrá vegna fram-
kvæmdar samningsins. Bændasam-
tökum Íslands ber að skrá hverjir
eru viðtakendur framlaga sem þau
ráðstafa á grundvelli samningsins,
fjárhæð framlaga, verkefni sem
framlög renna til og dagsetningu
greiðslna. Bændasamtök Íslands
skulu skrá sérstaklega formlegar
kvartanir sem berast vegna fram-
kvæmdar samningsins og enn frem-
ur hvaða meðferð kvartanir fá hjá
samtökunum.
17.3 Bændasamtök Íslands
-
vegs- og landbúnaðarráðherra um
heildarfjárhæðir greiddra framlaga
og skulu fjárhæðir vera sundur-
greindar á milli verkefna eða við-
fangsefna sem framlags geta notið.
17.4 Bændasamtök Íslands
halda fjárreiðum sem samningur
þessi nær til aðgreindum í ársreikn-
ingi frá annarri starfsemi sinni.
18. gr.
Tilfærslur
18.1 Heimilt er samkvæmt
ákvörðun framkvæmdanefndar
búvörusamninga að færa upphæð-
ir milli einstakra liða samningsins,
allt að 20% árlega af hverjum lið.
19. gr.
Verðlagsuppfærsla
19.1 Árleg framlög samkvæmt
samningi þessum miðast við forsend-
ur fjárlaga fyrir árið 2016, en taka
árlegum breytingum í samræmi við
verðlagsuppfærslu fjárlaga. Ef þróun
meðaltalsvísitölu neysluverðs (með-
altal ársins) verður önnur en verð-
lagsforsendur fjárlaga á árinu, skal
mismunurinn leiðréttur í fjárlögum
næsta árs.
20. gr.
Endurskoðun samnings
20.1 Endurskoðun samnings fer
fram tvisvar á samningstímanum ár-
in 2019 og 2023. Við endurskoðanir
verður fyrst og fremst horft til þess
gengið eftir og það metið í samhengi
við samninga um starfsskilyrði garð-
yrkju, nautgriparæktar og sauðfjár-
ræktar. Við síðari endurskoðun geta
aðilar ákveðið að hefja viðræður um
nýjan samning sem geti tekið gildi
árið 2025.
21. gr.
Fyrirvarar
21.1 Samningur þessi er gerð-
ur með fyrirvara um hugsanlegar
breytingar á þjóðréttarlegum skuld-
bindingum Íslands sem leiða af
ákvörðun Alþingis.
22. gr.
Gildistími og framkvæmd
22.1. Samningur þessi gildir frá
og með 1. janúar 2017 til og með 31.
desember 2026.
22.2 Sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra setur reglugerð um fyr-
irkomulag styrkveitinga samkvæmt
grein 5, 6, 7, 8, 9 og 10, þar sem
kveðið skal á um umsóknarfresti,
viðmiðanir við styrkveitingar,
skilyrði fyrir greiðslum framlaga,
upphæðir framlaga og skerðing-
arákvæði. Jafnframt skal kveðið
á um skráningu lands og spildna,
úttektir og stærðarmörk vegna
framlaga samkvæmt grein 5. Sjáv-
arútvegs- og landbúnaðarráðherra
setur einnig reglugerð um umsóknar-
fresti, greiðslutilhögun, skilyrði fyrir
greiðslum, skýrsluskil og birtingu
niðurstaðna vegna styrkveitinga
Framleiðnisjóðs landbúnaðarins
samkvæmt grein 11.2.
22.3. Samningsaðilar skulu hafa
reglubundið samráð um framkvæmd
samningsins og fer það samráð fram
á vettvangi framkvæmdanefndar bú-
vörusamninga. Framkvæmdanefndin
-
inga um þróun framleiðslu og sölu
á landbúnaðarafurðum, afurðaverð,
-
afurða, afkomuþróun í landbúnaði
auk annarra upplýsinga sem hafa
þýðingu fyrir framkvæmd samnings
þessa, sem og framkvæmd samn-
inga um starfsskilyrði nautgripa-
ræktar, sauðfjárræktar og garðyrkju.
Nefndin skal á grundvelli framan-
greindra upplýsinga taka ákvarðanir
um tilfærslur milli liða í samningi
þessum og með sambærilegum hætti
í samningum um starfsskilyrði naut-
griparæktar, sauðfjárræktar og garð-
yrkju.
22.5 Komi upp ágreiningur
um framkvæmd samningsins eru
aðilar sammála um að skipaður
verði hverju sinni þriggja manna
gerðardómur til að skera úr um
ágreiningsefni. Aðilar tilnefni
hvor fyrir sig einn mann í dóminn.
Leitað skal til Hæstaréttar Íslands
um að tilnefna formann dómsins,
nema aðilar komi sér saman um
oddamann. Úrskurður gerðardóms
er bindandi fyrir samningsaðila.
22.6. Samningur þessi er undir-
ritaður f.h. ríkisstjórnar Íslands
með fyrirvara um nauðsynlegar
lagaheimildir Alþingis.
22.7. Samningur þessi er gerð-
ur í þremur samhljóða eintökum.
Skulu Bændasamtök Íslands halda
einu, sjávarútvegs- og landbúnað-
arráðherra einu og fjármála- og
efnahagsráðherra einu.
Bókun um byggðamál
Samningsaðilar eru sammála
um að ráðast í starf sem miðar
að því að treysta innviði og bú-
setu í sveitum. Í því felist meðal
sem stuðla að aukinni sjálfbærni
úrvinnslu matvæla ekki síst svo
að meiri virðisauki verði í byggð-
unum. Sérstaklega verði skoðuð
uppbygging innviða, svo sem
samgangna, fjarskipta og raforku.
Einnig möguleika sveitanna og
framlag þeirra til þátttöku í að-
gerðum vegna loftslagsmála. Þá
verði litið til úrræða til að treysta
fjárhag bænda og greiða enn frekar
fyrir ættliðaskiptum á bújörðum.
Til þess að koma þessu í fram-
kvæmd mun sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra skipa samstarfs-
vettvang samningsaðila vorið 2016
tillögur um aðgerðir sem stuðla að
ofangreindum markmiðum.
Viðauki I Fjárhæðir í m.kr.
Rammi 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025 2026
Leiðbeiningaþjónusta - 3. grein 519 503 486 467 450 432 414 396 378 359
Kynbótaverkefni - 4. grein 60 59 59 58 58 58 57 57 56 56
Jarðræktarstyrkir - 5. grein 369 366 365 361 359 356 353 350 347 344
Framleiðnisjóður landbúnaðarins - 13. grein 128 128 128 128 128 128 128 128 128 128
Þróunarfjármunir búgreina - 11. grein 92 91 91 90 90 89 88 87 86 86
Lífræn framleiðsla - 7. grein 35 34 34 34 34 33 33 33 33 32
Skógarafurðir - 12. grein 15 15 15 15 14 14 14 14 14 14
Fjárfestingastyrkir í svínarækt - 10. grein 99 98 98 97 48 0 0 0 0 0
Landgreiðslur - 5. grein 247 246 245 342 341 339 337 335 333 331
Mat á gróðurauðlindum - 8. grein 30 30 29 29 29 29 28 28 28 28
Nýliðun - 6. grein 128 127 126 125 124 123 122 121 120 119
Geitfjárrækt - 9. grein 15 15 15 15 14 14 14 14 14 14
Erfðanefnd landbúnaðarins - 14. grein 7 7 7 7 7 7 7 7 7 6
Samtals rammasamningur 1.743 1.719 1.699 1.766 1.697 1.622 1.595 1.569 1.542 1.516
Bændafundalota fram undan:
Viðamikil kynning á samningunum
Nýju búvörusamningarnir verða
kynntir meðal bænda í funda-
ferð sem hefst í vikunni eftir
Búnaðarþing mánudaginn 7.
mars. Þar gefst bændum kostur
á að ræða niðurstöður samning-
anna við forystumenn bænda sem
koma m.a. fram með dæmi um
áhrif breytinganna.
Efni samninganna er aðgengi-
legt á vefsíðu Bændasamtakanna,
www.bondi.is. Til stendur að
setja glærur með skýringum inn á
Bændatorgið áður en fundaferðin
hefst. Þá geta bændur mætt undir-
búnir til leiks á fundina. Að sama
skapi er minnt á reiknivél inni á
vefsíðu Ráðgjafarmiðstöðvar land-
búnaðarins þar sem bændur geta
mátað sín bú inn í reiknilíkan. Nánar
er fjallað um reiknivélina og nokkur
dæmi tekin á bls. 33.
Fundataflan er birt með fyrirvara
um breytingar. Fundirnir verða nánar
auglýstir á vefnum bondi.is og með
útvarpsauglýsingum til áminningar
þegar þar að kemur. /TB
Dagsetningar Svæði
Fundar-
staður
Tími
mánudagur 7. mars Ísafjörður
Hótel
Ísafjörður
12:00
mánudagur 7. mars Hornafjörður
Mánagarður
í Nesjum
12:00
mánudagur 7. mars
Kirkjubæjar-
klaustur
Kirkjuhvoll 20:30
þriðjudagur 8. mars Kjós Ásgarður 12:00
þriðjudagur 8. mars Rangárþing Goðaland 12:00
þriðjudagur 8. mars Árnessýsla Þingborg 20:30
þriðjudagur 8. mars Borgarnes
Hótel
Borgarnes
20:30
miðvikudagur 9. mars Strandir Sævangur 12:00
miðvikudagur 9. mars Snæfellsnes Breiðablik 12:00
miðvikudagur 9. mars
Húnavatns-
sýslur
Víðihlíð 20:30
miðvikudagur 9. mars Dalir Dalabúð 20:30
fimmtudagur 10. mars Barðaströnd Birkimelur 12:00
fimmtudagur 10. mars Vopnafjörður Kaupvangur 12:00
fimmtudagur 10. mars Sauðárkrókur Langamýri 12:00
fimmtudagur 10. mars Egilsstaðir
Hótel
Iceland air
20:30
fimmtudagur 10. mars Eyjafjörður Hlíðarbær 20:30
föstudagur 11. mars Kópasker Fjallalamb 12:00
föstudagur 11. mars
S-Þingeyjar-
sýsla
Breiðamýri 20:30
Mynd / smh