Bændablaðið - 25.02.2016, Qupperneq 33
33BÚVÖRUSAMNINGAR | FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2016
Reiknivél á Netinu
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins hefur útbúið
reiknivél fyrir bændur í töflureikninum Excel
þar sem hægt er að skoða áhrif nýrra búvöru-
samninga á tekjur búa. Skjalið er aðgengilegt á
rml.is og líka á bondi.is.
Innsláttarreitir eru litamerktir og geta bændur fært
inn greiðslumark, búfjárfjölda og aðrar nauðsynlegar
upplýsingar. Neðar í skjalinu birtast niðurstöður þess
bús sem slegið er inn hverju sinni. Vilji notendur
skoða annaðhvort nautgriparækt eða sauðfjárrækt
skal setja „0“ í innsláttarreiti hinnar búgreinarinnar.
Vatnshalllinn sem er á samningunum hefur
veruleg áhrif á útkomuna – auk kerfisbreytinga og
breyttrar forgangsröðunar. Sauðfjársamningurinn
er margþættari að þessu leyti en hinir samningarnir.
Dæmin sem sýnd eru í hér í Bændablaðinu eru
unnin upp úr reiknivélinni á Netinu. Nokkrum árum
á seinni hluta samningstímabilsins er sleppt vegna
pláss. Á Netinu er hins vegar hægt að sjá öll árin.
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Lind,
ábyrgðarmaður í rekstrarráðgjöf, á netfangið jle@
rml.is.
Dæmi um áhrif samninga á mismunandi sauðfjár- og kúabú
Vatnshalli búvörusamninga * 100,0% 98,9% 98,6% 97,3% 94,6% 91,9%
Dæmi 1. Sauðfjárbú með 600 ærgildi og 600 vetrarfóðraðar kindur, innlegg er 1,25 lömb eftir kind og 16,2 kg meðalvigt. Tún og
ræktun 60 ha, þ.a. 10% með jarðræktarstyrk. Fast innleggsverð öll árin.
2016 2017 2018 2019 2020 2023 2026
Greiðslur samkvæmt sauðfjársamningi 7.096.611 6.959.373 6.791.609 6.681.243 6.334.674 5.923.626 5.419.523
Greiðslur skv. rammasamningi 105.429 291.523 289.697 288.729 339.394 333.266 326.169
Samtals búgreinatekjur sauðfjár 7.740.000 7.740.000 7.740.000 7.740.000 7.740.000 7.740.000 7.740.000
Heildartekjur 14.942.040 14.990.896 14.821.306 14.709.971 14.414.068 13.996.892 13.485.691
Tekjubreyting frá upphafsári 100% 99% 98% 96% 93% 90%
Dæmi 2. Sauðfjárbú með 300 ærgildi og 210 vetrarfóðraðar kindur (0,7-reglan), innlegg er 1,25 lömb eftir kind og 16,2 kg
meðalvigt, 600 kr/kg afurðaverð. Tún og ræktun 22 ha, þ.a. 10% með jarðræktarstyrk.
Búið nýtur sérstaks svæðisstuðnings. Innleggsverð dilka hækkar um 2,5% árlega.
2016 2017 2018 2019 2020 2023 2026
Greiðslur samkvæmt sauðfjársamningi 3.283.734 3.295.251 3.315.170 3.261.291 3.071.145 2.700.155 2.257.953
Greiðslur skv. rammasamningi 35.143 102.114 101.486 101.143 119.971 117.829 115.343
Samtals búgreinatekjur sauðfjár 2.709.000 2.772.788 2.838.170 2.905.186 2.973.879 3.190.432 3.423.636
Heildartekjur 6.027.877 6.170.153 6.254.825 6.267.620 6.164.995 6.008.415 5.796.932
Tekjubreyting frá upphafsári 100% 101% 102% 100% 97% 94%
Dæmi 3. Kúabú með 250.000 lítra framleiðslu og sama greiðslumark, 45 árskýr, 63 ha ræktun. Tún og ræktun 63 ha, þ.a. 10% með
jarðræktarstyrk. Innleggsverð óbreytt öll árin.
2016 2017 2018 2019 2020 2023 2026
Samtals nautgriparæktarsamningur 11.066.755 10.164.219 10.171.723 10.175.718 10.031.031 9.798.805 9.440.684
Greiðslur skv. rammasamningi 105.429 298.933 297.077 296.079 349.654 343.376 336.099
Samtals búgreinatekjur nautgriparæktar 25.253.700 25.253.700 25.253.700 25.253.700 25.253.700 25.253.700 25.253.700
Heildartekjur 36.425.884 35.716.851 35.722.500 35.725.497 35.634.386 35.395.881 35.030.483
Tekjubreyting frá upphafsári 100% 100% 100% 100% 99% 98%
Dæmi 4. Kúabú með 400.000 lítra framleiðslu og 300.000 lítra greiðslumark, 72 árskýr. Tún og ræktun 100 ha. þ.a. 10% með
jarðræktarstyrk. Innleggsverð óbreytt og umframmjólk 40 kr/l öll árin.
2016 2017 2018 2019 2020 2023 2026
Samtals nautgriparæktarsamningur 15.904.747 14.595.457 14.614.161 14.626.719 14.584.507 14.832.416 14.853.113
Greiðslur skv. rammasamningi 175.714 485.871 482.829 481.214 565.657 555.443 543.614
Samtals búgreinatekjur nautgriparæktar 40.405.920 35.966.920 35.966.920 35.966.920 35.966.920 35.966.920 35.966.920
Heildartekjur 56.486.381 51.048.248 51.063.909 51.074.854 51.117.085 51.354.779 51.363.648
Tekjubreyting frá upphafsári 100% 100% 100% 100% 101% 101%
Dæmi 5. Nautaeldi með 100 holdakýr, innlegg 50 naut á ári, 300 kg hvert naut. Afurðaverð 800 kr/kg. Tún og ræktun 140 ha. þ.a.
10% með jarðræktarstyrk.
2016 2017 2018 2019 2020 2023 2026
Samtals nautgriparæktarsamningur 4.460.000 7.536.667 7.653.333 7.806.667 8.753.333 8.826.667 8.593.333
Hlutfall greiðslna skv. rammasamningi 246.000 680.220 675.960 673.700 791.920 777.620 761.060
Samtals búgreinatekjur nautgriparæktar 13.680.000 13.680.000 13.680.000 13.680.000 13.680.000 13.680.000 13.680.000
Heildartekjur 18.386.000 21.896.887 22.009.293 22.160.367 23.225.253 23.284.287 23.034.393
Tekjubreyting frá upphafsári 100% 101% 101% 106% 106% 105%
* Hlutfall af framlögum í samninga m.v. árið 2017.
Innsláttur í bláa reiti
Viðmiðunartölur fyrir hvert bú. Árleg
breyting hefur ekki áhrif á upphafsár eða
magntölur hvers bús. Mitt bú
Þín spá um
þróun á
landsvísu
Greiðslumark í sauðfé 300
Vetrarfóðraðar kindur 210 0,00%
Fj. sláturlamba 252 0,00%
Meðalvigt dilka 16,2 0,00%
Innlögð kg. dilka 4.082 0,00%
Svæðisbundinn stuðn. - skrá 1 eða 0 1
Meðal innleggsverð dilka í upphafi 600 0,0%
Meðal innleggsverð ærkjöts í upphafi 180 0,0%
Greiðslumark í mjólk / innanlandsneysla - 0,0%
Innvegin mjólk - 0,0%
Fj. mjólkurkúa - árskýr - 0,0%
Fj. holdakúa - árskýr - 0,0%
Ungnautakjöt innlögð kg. - 0,0%
Kýrkjöt innlögð kg. - 0,0%
Afurðarstöðvarverð innanlands 2016 84,4 0,0%
Afurðarstöðvarverð umframmjólk 2017 40 0,0%
Meðalverð ungnautakjöts í upphafi 800 0,0%
Meðalverð kýrkjöts í upphafi 560 0,0%
Jarðarbætur, kornrækt ofl. ha. 2
Annað uppskorið land ha. 20
Mínustala gefur
fækkun/minnkun
Hér er hægt að velja að setja
spá um þróun á landsvísu.
Ef t.d. er sett -1% (mínus) við
vetrarfóðraðar kindur er gert
ráð fyrir að þeim fækki um
1% á ári út samningstímann,
eða 10%. Ef sett er 2,5% á
innleggsverð er reiknað með
að það hækki um 2,5% á
hverju ári, eða 28% á samn-
ingstímanum.
Þessar stærðir hafa ekki
áhrif á framleiðslu míns bús,
eingöngu einingaverðin sem
reiknuð eru út samningstím-
ann.
Til að skoða „mitt bú“ eru
settar inn upplýsingar um
framleiðsluna. Hægt er að slá
inn í alla bláa reiti, svo það má
velja annað afurðaverð í upp-
skráð inn, vilji menn nota sitt
innleggsverð.
Hér er sett inn ræktun og tún
sem uppskorin eru og skráð
eru/verða í jörð.is. Samtalan
gefur heildarstærð.
Með nýjum samningi
opnast ný tækifæri
Nýr samningur um starfsskilyrði naut-
griparæktarinnar felur í sér stefnumörk-
un um breytingar á því kerfi sem verið
hefur við lýði síðasta aldarfjórðung að mati
Landssambands kúabænda.
Stefnt er að því að greiðslumarkið fjari út
á samningstímanum, bæði sem viðmiðun fyrir
beingreiðslur og kvóti sem tryggir forgang að
innanlandsmarkaði. Mikil umræða var á meðal
kúabænda um örlög kvótakerfisins á meðan
samninganefndin var að störfum. Niðurstaðan
var sú að fresta ákvörðun til ársins 2019 um það
hvort afnema skuli kvóta árið 2021. Kveðið er
á um að ákvörðunin verði borin undir bændur í
atkvæðagreiðslu þegar þar að kemur.
Stuðningsformi ríkisins er breytt og byggist
á fleiri viðmiðum en áður. Samið er um breytt
fyrirkomulag við verðlagningu mjólkur. Þá er
í samningnum tekinn upp með nýjum hætti
stuðningur við framleiðslu á nautakjöti.
Í tilkynningu sem Baldur Helgi Benjamínsson,
framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda,
sendi frá samtökunum til fjölmiðla skömmu eftir
undirskrift segir að það hafi
verið afar mikilvægt að
náðst hafi samningur um
starfsskilyrði greinarinnar
til næstu 10 ára. Ástæðan
er sú að framleiðsluferlar
í nautgriparækt eru langir
og miklu skiptir að bændur
sem starfa í greininni hafi
möguleika á að horfa til
langs tíma.
Ánægja með að
stuðningur nái til framleiðslu nautakjöts
Fjárhagsrammi samningsins helst svipaður frá
því sem nú er, jafnframt sem stuðningurinn er að
stærstum hluta greiddur út á framleiðslu afurða
eins og lagt var upp með í ályktun aðalfundar
LK 2015 vegna búvörusamninga. Samtökin
hafa lýst ánægju með að stuðningskerfið nái nú
einnig til framleiðslu nautakjöts. Þau segja að
nautgriparæktin standi frammi fyrir margvísleg-
um áskorunum. Undanfarin ár hefur markaður
hér á landi fyrir nautgripaafurðir stækkað hratt
og líkur standa til að sú þróun haldi áfram. Það
sé áfram meginverkefni íslenskra nautgripa-
bænda að sinna innlendum markaði fyrir gæða
afurðir á hagstæðu verði.
Kröfur samfélagsins um bættan aðbúnað
og velferð gripanna, ásamt væntingum nýrra
kynslóða bænda um betri og nútímalegri vinnu-
aðstöðu, krefjast mikilla fjárfestinga á komandi
árum að mati LK. Til að fjárhagslegur grund-
völlur sé fyrir þeim fjárfestingum, er mikilvægt
að stuðningur samfélagsins við greinina nýtist
starfandi bændum betur en áður.
Baldur Helgi segir að þær breytingar sem
verið er að gera á starfsumhverfinu séu þær
mestu í þrjá áratugi og verða þær innleiddar
í skrefum á fyrri hluta samningstímans. Hann
segir jafnframt í niðurlagi: „Í samningnum eru
einnig öflugir varnaglar, fari svo að mál þróist
á verri veg og eru endurskoðunarákvæðin árið
2019 og 2023 þar lykilatriði. Ákvæði samn-
ingsins um samstarf við úrvinnslu og mark-
aðssetningu mjólkurafurða er afar mikilvægt,
sem og viðurkenning á mikilvægi tollverndar
mjólkurafurða. Staða smærri vinnsluaðila í
mjólkuriðnaði og aðgengi þeirra að hráefni er
jafnframt tryggt.
Með nýjum samningi um starfsskilyrði naut-
griparæktarinnar opnast fyrir ný tækfæri og
nýjar lausnir, sem mikilvægt er að nýta í þágu
greinarinnar og þeirra sem hana stunda.“
Baldur H.
Benjamínsson.
Eigi að skoða annaðhvort
sauðfjár- eða nautgripafram-
leiðslu er sett 0 í framleiðslu-
tölur hinnar greinarinnar.