Bændablaðið - 25.02.2016, Page 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. febrúar 2016
Sleipnishöllin á Selfossi:
ABBA-tónleikar
haldnir í vor
Öll helstu og bestu lög hljóm-
sveitarinnar ABBA verða flutt
í Sleipnishöllinni, reiðhöll
Selfyssinga, í vor.
„Já, það er rétt, laugardaginn
7. maí ætlar Jórukórinn að halda
upp á 20 ára afmæli með stórtón-
leikum. Þemað verður ABBA,
Jóhanna Guðrún söngkona mun
syngja einsöng með kórnum og
fullskipuð hljómsveit verður einnig
með okkur. Þetta verða flottir og
kröftugir tónleikar undir stjórn
Stefáns Þorleifssonar,“ segir Laufey
Ósk Magnúsdóttir, formaður kórsins,
þegar hún var spurð um tóleikana.
Tónleikarnir verða þeir fyrstu sem
haldnir eru í reiðhöllinni en mikið
verður lagt upp úr hljóði, ljósum og
sviði. „Undirbúningur er í fullum
gangi og við hlökkum mikið til,
við vorum m.a. með æfingabúðir á
Flúðum um síðustu helgi þar sem við
tókum nokkur af ABBA-lögunum,“
segir Laufey Ósk. /MHH
Stefán Þorleifsson er stjórnandi
kórsins. Mynd / Laufey Ósk
Jóhanna Guðrún söngkona mun syngja
einsöng með kórnum á ABBA-tónleik-
unum.
Umsókn um orlofsdvöl
Undirrituð/Undirritaður sækir hér með um:
Umsóknina skal senda fyrir 20. mars nk.
rafrænt á netfangið ho@bondi.is
eða á póstfang Bændasamtaka Íslands:
Bændahöllin v/Hagatorg,
107 Reykjavík, merkt Orlofsdvöl sumarið 201
Sumarið 201
Nafn umsækjanda Kennitala
Heimilisfang Símanúmer
Undirskrift félaga og dagsetning
Póstnúmer og staður
Hefur þú áður fengið úthlutað orlofsdvöl í
sumarhúsi hjá Bændasamtökunum?
Já Nei
Orlofsdvöl að Hólum - Tímabilið:
Orlofsdvöl á Flúðum - Tímabilið:
Hér að neðan er að finna umsóknareyðublað um orlofsdvöl í húsunum að Hólum í
Hjaltadal og á Flúðum, Hrunamannahreppi sumarið 201 . Það gildir fyrir félaga
í búnaðarsamböndum og/eða búgreinafélögum sem eiga aðild að BÍ – Frestur til að
skila inn umsóknum rennur út 20. mars 201 .
Mynd / Laufey Ósk
Háskólafélag Suðurlands:
Nýtt ferðamálanám
hefst haustið 2016
„Viðskiptahugmyndin er í grunn-
inn nám sem Háskólafélag
Suðurlands er að þróa í samstarfi
við Háskólann í Malaga á Spáni
og UHI-háskólann í Skotlandi, og
ráðgert er að hleypa af stokkun-
um haustið 2016, en Háskólafélagið
fékk styrk í fyrra úr Erasmus+
áætluninni.
Námið ber vinnuheitið „Ferða-
málabrú – Nýsköpun og stjórnun“
og er ætlað fyrir ferðaþjónustuaðila,
bæði stjórnendur og starfsmenn.
Hugmyndin hefur verið kynnt
fyrir ferðaþjónustuaðilum á svæðinu,
Samtökum ferðaþjónustunnar (SAF),
Rannsóknarmiðstöð ferðamála og
fleiri aðilum. Segja má að aðilar séu
sammála um það að veruleg þörf er
á slíku námi fyrir ferðaþjónustuna,“
segir Valgerður Pálsdóttir. Kynnti
hún námið ásamt Ingunni Jónsdóttur,
starfsmanni Háskólafélagsins og
verk efnastjóra verkefnisins, í hádeg-
isfyrirlestri í Fjölheimum á Selfossi
nýlega.
Kennslufyrirkomulag Ferðamála-
brúarinnar verður að nokkru leyti
byggt á sama fyrirkomulagi og var í
Matvælabrúnni sem Háskólafélagið
er með. Annars vegar verður um að
ræða bóklega fyrirlestra og hins vegar
svokallaða fyrirtækjavist en í henni
gefst nemendum tækifæri til að kynn-
ast öðrum ólíkum fyrirtækjum innan
greinarinnar. Að auki er nýtt sérþekk-
ing innan fyrirtækjanna til kennslu á
afmörkuðu efni.
„Markmið Ferðamálabrúarinnar er
að auka þekkingu meðal starfsmanna
og stjórnenda í ferðaþjónustunni til að
auka gæði og framleiðni fyrirtækj-
anna. Námið er eins árs diplómanám
ætlað fyrir starfandi aðila í ferða-
þjónustu þar sem áhersla er lögð
á nýsköpun og stjórnun en námið
verður skipulagt í náinni samvinnu
við ferðaþjónustuna sem er að verða
ein mikilvægasta atvinnugreinin á
Suðurlandi.“ /MHH
Valgerður Pálsdóttir. Mynd / MHH