Bændablaðið - 25.02.2016, Qupperneq 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 25. febrúar 2016
www.n1.is facebook.com/enneinn
Hluti af vetrarverkunum
Þjarkur samfestingur
Vnr. 9628 120020
Þunnur samfestingur með hnjápúðavösum.
Hentar vel fyrir iðnaðarmenn, bændur o.fl
Navy blár með royal bláu á brjósti.
Gildan háskólapeysa
Vnr. 9643 12000
Háskólapeysa úr bómullarblöndu.
Litir: Svartur og navy. Stærðir: S - 3XL
Micorflex regngalli
Vnr. 5790 691935*
Microflex regnkuldagalli. Blár að lit.
COFRA nítrildýfðir hanskar
Flexynit
Vnr. 7151 G007 K100
Vandaðir bómullarhanskar með sterkri
NITRA-X húð. Olíuþolnir og henta í allan
iðnað. Litur: Grænn með svörtum lófa.
Stærðir: 9, 10 og 11
Bragi regnstakkur með hettu
Vnr. A414 69118*
Lokaður að framan. Styrkingar á ermum
og faldi. Stillanlegur strengur í hettu.
Endurskinsmerki á ermum.
DUNLOP stígvél
Purof Professional
Vnr. 9655 D460933
Hentug stígvél við margskonar aðstæður.
Létt með höggdeyfi í sóla. Endast vel
og gott að þrífa þau. Græn. Stærðir: 37 - 48
Hugsaðu um búnaðinn í vetur
Verslanir N1 um land allt
Akureyri s. 440 1420 • Grindavík s. 426 8290 • Höfn s. 478 1940 • Ísafjörður s. 456 3574
Klettagarðar s. 440 1330 • Ólafsvík s. 436 1581 • Patreksfjörður s. 456 1245
Reyðarfjörður s. 474 1293 • Reykjanesbær s. 421 4980 • Vestmannaeyjar s. 481 1127
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Háskólinn á Akureyri:
Græn bílastæði
tekin í notkun
Háskólinn á Akureyri hefur á
undanförnum árum verið leiðandi
í innleiðingu á umhverfisvænum
lausnum í sínum rekstri. Nýjasta
verkefnið er að bjóða ívilnun á
bílastæðum skólans, þ.e. betra
aðgengi og frítt rafmagn fyrir þá
sem koma á umhverfisvænum
bílum.
Um er að ræða sex græn bílastæði.
Tvö þeirra eru klukkustæði næst
háskólabyggingunum en fjögur gefa
fólki kost á að hlaða rafmagnsbílana
sína á dagvinnutíma eða opnunartíma
skólans. Í þessi stæði má einungis
leggja bílum sem geta gengið fyrir
hreinum innlendum orkugjöfum eins
og metani eða rafmagni.
Ódýr aðgerð fyrir skólann
Nýju bílastæðin voru formlega
tekin í notkun á dögunum. Eyjólfur
Guðmundsson, rektor Háskólans
á Akureyri, lagði af því tilefni
áherslu á að rafvæðing íslenska
bílaflotans væri í raun aðgerð sem
allir gætu tekið þátt í. Með því að
veita starfsmönnum og nemendum
aðgengi að hefðbundnu rafmagni þá
geti eigendur rafbíla hlaðið bílana
sér að kostnaðarlausu. Ekki er um
hraðhleðslustöðvar að ræða heldur
nota eigendur eigin búnað til að
setja í samband við hefðbundna 16
ampera innstungu. Bílar nemenda og
starfsfólks standa yfirleitt í nokkra
klukkutíma á dag við skólann og
því nýtist tíminn til hefðbundinnar
hleðslu. „Þetta er ódýr aðgerð fyrir
skólann en er framlag HA til þess að
auðvelda rafbílavæðingu og notkun
annarra vistvænna orkugjafa,“ sagði
Eyjólfur.
Leggja sitt af mörkum
Í lok síðasta árs og í kjölfar lofts-
lagsráðstefnunnar í París í byrj-
un desember buðu FESTA og
Reykjavíkurborg stofnunum og
fyrirtækjum að skrifa undir sam-
eiginlega yfirlýsingu um mark-
mið í loftslagsmálum. Háskólinn á
Akureyri tekur virkan þátt í minnkun
á losun gróðurhúsalofttegunda með
því að minnka útblástur frá bifreið-
um. Starfsmenn HA leigja bifreiðar
í ferðum til Reykjavíkur og á hinum
ýmsu stöðum um land allt. Nýjar
reglur háskólans munu kveða á um
að starfsmenn þurfi að leigja raf-
magnsbíl ef vegalengdir þeirra verða
100 km eða styttri í hverri leigu, en
mega líka kjósa sér rafmagnsbifreið
sjálfir þó um lengri vegalengdir sé
að ræða. Með þessu móti er stuðlað
að því að draga verulega úr fótspori
Háskólans á Akureyri gagnvart losun
gróðurhúsalofttegunda, segir í frétt á
vef skólans. /MÞÞ
HA innleiddi að eigin frumkvæði
TIL SÖLU PLASTGRINDUR Í FJÁRHÚS
Nánari upplýsingar um grindurnar fást í síma 8973290
eða í gegnum email: haukur@samleid.is
Samleið ehf.
Sunnubraut 2,
620 Dalvík
www.samleid.is
Grindurnar hafa nú verið settar í fjárhús að Stóru Hámundarstöðum
(þeir sem áhuga hafa á að skoða geta hringt í síma 897 6075)
Uppl. í síma
893-8424 / set@velafl .is
og á 694-3700 / gk@velafl .is
www.velafl.is
Ný sending af FRD
fleygum á leiðinni.
Ný sending af BOMAG
þjöppum á leiðinni.
Útvegum undirvagnshluti frá LINSER
undir allar vélar bæði á stál og
gúmmíbeltum
Eigum nýja snjógplóga á lager