Bændablaðið - 25.02.2016, Síða 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 25. febrúar 2016
kjúklingar. Samheiti þeirra er hænsn
og í eina tíð, þegar hænur, hanar og
og ungar gengu frjáls til sveita, voru
þau stundum kölluð skíthólahoppar-
ar. Sagt er að hænur gaggi eða gali.
Líftími hænsna er mismun-
andi eftir kynjum, fimm til tíu
ár. Samkvæmt Heimsmetabók
Guinness náði elsta hænsn sem vitað
er um sextán ára aldri. Kvikindið
var hani sem að lokum drapst úr
hjartaáfalli.
Kambur og hálssepar eru kyntákn
Kamburinn og hálssepinn á höfði
hænsna hefur það hlutverk að kæla
blóð dýranna. Hænsni í heitari lönd-
um hafa því stærri kamb en kyn
sem hafa þróast á kaldari svæðum.
Kamburinn og hálssepinn þjónar
einnig hlutverki í félags- og hegð-
unarmunstri hænsna. Stór kambur
og hálssepi eykur möguleika hana
til mökunar og hanar makast frekar
við hænur með stóran kamb en lítinn.
Dökkur kambur og sepi eru merki
um hreysti og fuglar með dökkrauð-
an kamb og sepa eru einnig líklegir
í að makast en fuglar með ljósan
kamb og sepa. Lögun kambsins er
mismunandi milli kynja og stundum
innan sama kyns og talað er um ein-
faldan kamb, ertu-, sessu-, rósa- og
valhnetukamb, svo dæmi séu tekin
til að lýsa lögun hans.
Tamdar fyrir 12.000 árum
Tamin hænsn, Gallus gallus
domesticus, eru afkomendur villi-
og skógarhænsna, G. bankiva, og
er talið að fyrstu hænsnin hafi verið
taminn í Suðaustur-Asíu og Kína
fyrir um það bil tólf þúsund árum.
Auk G. bankiva teljast seylon-
hænsni G. lafayetii, leppahæna G.
sonneratii og jövuhæna G. varius
til ættkvíslarinnar Gallus eða kamb-
hænsna.
Frá Kína bárust hænsni til
Indlands og þaðan til Afríku. Talið er
að hænsn hafi borist til Evrópu eftir
tveimur leiðum. Til Grikklands um
700 árum fyrir Krist frá Afríku og
með Mongólum í gegnum Rússland
og Pólland.
Rómverjar höfðu mikið dálæti
á hænsnum og ólu heilög hænsni í
hofum sínum. Þau voru talin spá-
sagnardýr og þeim var blótað fyrir
orrustur. Rómverjar höfðu með sér
hænsn í landvinningaferðum sínum
og eiga því stóran þátt í útbreiðslu
þeirra um Evrópu.
Rannsóknir benda til að hænsni
hafi borist til Suður-Ameríku,
með viðkomu á eyjum í Pólinesíu,
nokkur hundruð árum fyrir sjóferð
Kólumbusar þangað. Til Íslands bár-
ust hænsni með landnámsmönnum.
Hanaat og hanastél
Fornleifar benda til að hanar hafi
verið notaðir í hanaat 5.400 árum
fyrir Krist. Hanar voru víða til forna
tákn um karlmennsku og frjósemi.
Egyptar náðu snemma mikilli leikni
í hænsnarækt og kjúklingakjöt og
egg voru mikilvæg fæða þeirra
um það leyti sem Egyptar voru að
reisa pýramídana. Hænur finnast
á egypskum veggmyndum og
Egyptar voru farnir að unga út
eggjum í massavís í sérstökum
útungunarhúsum fyrir rúmum tvö
þúsund árum.
Hænsn gegna veigamiklu
hlutverki við bálfarir hindúa í
Indónesíu. Fuglarnir eru bundnir á
fæti nálægt bálinu þar sem því er
trúað að illir andar sem geta sótt að
þeim látna leiti í hænsnin og festist
í þeim. Eftir að bálið brennur út eru
hænsnin tekin heim þar sem sagt er
að andarnir geti ekki gert þeim mein.
Í Matteusarguðspjalli segir Jesú:
„Sannlega segi ég þér: Á þessari
nóttu, áður en hani galar, muntu
þrisvar afneita mér.“ En hann sór
og sárt við lagði að hann þekkti ekki
manninn. Um leið gól hani. Og Pétur
minntist þess er Jesús hafði mælt:
„Áður en hani galar muntu þrisvar
afneita mér.“ Og hann gekk út og
grét beisklega.
Vegna þessa hafa hanar verið
sagðir tákn um svik og pretti.
Í dæmisögum hins gríska
Esóps er sagt að ljón séu hrædd
við hana. Hanar eru eitt af tólf
kínversku stjörnumerkjunum og
á Vesturlöndum þykir fínt að vera
boðið í veislur sem kallast hanastél.
Lohmann og Ross Cobb
Hundruð ólíkra hænsnakynja sem
hafa þróast á mismunandi hátt finnast
í heiminum. Kynin eru ólík að stærð,
lit fjaðra og holds. Í Kína er til dæmis
hænsnakyn sem er með svart hold.
Stærð, lögun og litur kambsins er
mismunandi, fætur með líkum
fjölda táa. Auk þess sem eggin sem
kynin verpa eru ólík að stærð og lit.
Mörg þessara kynja eru ræktuð sem
skrauthænur.
Í eldi eru nokkur hænsnakyn
algengust hvort sem um er að ræða
kjúklinga til kjötframleiðslu eða
varphænur. Fyrir nokkrum áratugum
var meirihluti varphæna á Íslandi
af kyni sem kallaðist Leghorn eða
Hvítir Ítalir. Í dag eru næstum allar
varphænur af kyni eða öllu heldur
vörumerki sem kallast Lohmann og
koma frá Skotlandi. Kjúklingar til
kjötframleiðslu eru kyn eða vöru-
merki sem kallast Ross Cobb og
koma frá Þýskalandi. Auk þess sem
margir rækta landnámshænur sér til
yndis.
Íslenska landnámshænan
Nokkuð öruggt er að hænsn
hafi borist til Íslands með land-
námsmönnum frá Noregi.
Landnámshænsn eru þekkt fyrir
fjölbreytilega liti og litaafbrigði og
sem dæmi má nefna litbrigði eins
og guldröfnótt, svart- og hvítyrj-
ótt, rauðdröfnótt, gráflikrótt, ljósgrá
og appelsínugult. Stærð landnáms-
hænsna er nokkuð mismunandi og
kamburinn er talsvert breytilegur
að stærð og lögun. Mjög gekk á
stofn landnámshæna þegar leið á
18. öldina og dó stofninn næstum
út á tíma. Íslenskar landnámshænur
eru hraustar og langlífar.
Getið er um hænur í Hænsna-
Þóris sögu og sagt að hann hafi
ræktað og selt fiðurfé og hana
auk þess sem hænsna er getið í
Flóamannasögu. Hanarnir Fjalar
og Gullinkambur eru nefndir
í Völuspá. Eggert Ólafsson og
Bjarni Pálsson segja í Ferðabók
sinni að þeir hafi séð svört hænsni
í Öræfasveit.
Búkur landnámshæna er þéttur
og hálsinn stuttur og breiður. Bakið
er stutt og breitt og bringan hvelfd.
Hausinn er fremur lítill og oft með
fjaðratopp. Goggurinn er stuttur og
breiður. Stélið er hátt sett og spor-
ar hananna langir og uppsveigðir.
Íslenskar hænur hafa gulgræn eða
gulbrún augu.
Vinsældir þess að eiga nokkrar
landnámshænur hafa farið vaxandi
meðal borgarbúa undanfarin ár.
Hauslausar hænur
Fyrst eftir að hausinn er höggvinn
af hænsnfuglum geta þeir tekið
hraustlega á rás og jafnvel virst
fljúga. Ástæða þess er að öll lík-
amsstarfsemi hænsnanna er virk og
hjartað slær fyrst eftir hausmissinn.
Að lokum hættir starfsemi líkamans
vegna súrefnisskorts.
Heimsframleiðsla kjúklingakjöts árið 2015 er áætluð rúm 100 milljón tonn.
Framleiðsla á eggjum á Íslandi árið 2014 var 3.617 tonn.
Egg eru gerð úr skurn sem er yst. Undir skurninni er himna sem kallast skjall. Innan við skjallið er hvíta og í henni
rauða.
Í Japan er hænsnakyn sem er ræktað sérstaklega vegna langra stélfjaðra.
Goggunarröð í hænsnahópum er mikil og dýr ofar í goggunarröðinni hafa
forgang að æti. Finni ríkjandi hani fæðu kallar hann oft á hænurnar sínar