Bændablaðið - 25.02.2016, Qupperneq 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 25. febrúar 2016
Allt er breytingum háð – líka sauðfjárbúskapur
Gömlum frænda mínum þótti
lítt til menntunar koma og leit
á skólagöngu sem tímasóun.
Kannski voru það varnarviðbrögð
hjá honum því hann átti ekki kost
á að mennta sig. Eða, kannski var
hann bara ekki tilbúinn að viður-
kenna að það að hleypa heimdrag-
anum og sækja sér þekkingu utan-
frá væri til bóta.
Hann var sauðfjárbóndi af gamla
skólanum. Hann hélt sauði sem gengu
við opið veturlangt og var gefið með
beitinni. Hann hafði um 400 ær á
vetrarfóðrum. Þeim var gefið tvisvar
á dag; lágu við opið en byrgðar inni
yfir blánóttina. Hrútarnir voru settir
í hjörðina um jólaleytið og náttúran
látin hafa sinn gang. Frændi hleypti
ekki til gemsanna en hýsti þá og gaf
þorra vetrarmánaðanna. Þegar fór
að síga á einmánuð voru þeir, ásamt
sauðunum, reknir á beit til fjalla. Á
algróna bala þar sem snjóa leysti
snemma.
Sauðburður fór fram undir blá-
himni maísólarinnar sem oft á tíðum
lét ekki sjá sig en sendi norðangarr-
ann eða hraglanda og vosbúð í sinn
stað. Ærnar voru vaktaðar með reglu-
legu millibili allan sólarhringinn og
nýbærur aðeins hýstar ef það rigndi
eða slyddaði hressilega á þær. Eitt
lamb á á þótti gott og burðarhjálp
var með öllu óþörf. Krummi sem
bjó í nálægu gili var svarinn óvinur
frænda míns enda var fuglinn sá fljót-
ur að fara í veikburða lömb eða ær
og kroppa úr augu eða slíta út garnir.
Smala og smala aftur
Ánum var sleppt inn í heiði eins fljótt
og hægt var. Fyrst var rekið í heima-
réttina, ormalyfi dengt í hjörðina og
lömbin mörkuð og merkt áður en
þau stukku á vit íslenska sumarsins
með mæðrum sínum. Í byrjun júlí
var svo þarfasti þjónninn beislaður
og fénu smalað til rúnings. Sumu
hleypt inn á afrétt, annað var kyrrt í
heimaheiðinni.
Halda fénu á meðan hand-
klippurnar gengu í gríð og erg eftir
skinni skepnanna var verkefni okkar
krakkanna. Miserfitt því ærnar voru
misvel framgengnar og misskapstór-
ar. Að loknu dagsverki var ullin sett
í balla og reidd á klyfberum áleiðis
heim, því engin var vegurinn þarna
inni í heiðinni. Að hausti var smalað
á ný. Dregið í sundur, ásetningurinn
valinn og sláturlömbin send burtu
eins fljótt og auðið var, jafnvel á
smaladaginn. Minnstu lömbin voru
höfð á túnum fram að næstu slátr-
un en grænfóðurræktun þótti ekki
valkostur á þessum bæ. Ánum var
sleppt aftur á úthagann þar til þær
voru teknar á hús, ef vel viðraði ekki
fyrr en í desember.
Leggur og læri
Fjárstofninn hans frænda míns var
fremur þunnur á lendar og malir.
Háfættar og læranettar fjallafálur
sem unnu sér oft fríðleika til lífs,
ekki síður en læragerð. Kynbætur
sem miðuðu að stuttum legg og
holdugum lendum höfðu ekki náð
hans eyrum og voru því ekki hluti
af hans skilningi og sýn á sauðfjár-
rækt. Hvort afurðirnar sem hann
framleiddi væru þóknanlegar neyt-
endum var ekki hans mál. Hann stóð
sína plikt og markaðurinn skyldi bara
gera sér það að góðu.
Hann og kaupfélagið voru eitt. Í
kaupfélaginu fékkst allt sem þurfti
svo frændi og Sambandið stunduðu
í raun vöruskipti. Innlögn að hausti
vó upp úttekt af reikningnum næstu
12 mánuðina; ja, eða skuldajafnaði
stöðuna. Ríkisframlagið meðtalið því
kaupfélagið af stakri gæsku sá um
að geyma það á reikningnum góða.
Soðið kindakjöt var hversdags, ofn-
steik á sunnudögum, saltkjöt við og
við og hangikjöt á hátíðisdögum.
Heimsmyndin var einföld, um það bil
8000 hektarar. Hversdagurinn samt
aldrei eins því fénu fylgdi stöðugt
og breytilegt stúss, allt eftir árstíma.
Upp úr 1980 fór unglingurinn á
næsta bæ til náms við Bændaskólann
á Hvanneyri. Frændi taldi hann og
aðra búfræðinga ekkert skárri en
þessa spekinga „að sunnan“ sem
allt þóttust vita. Frændi minn lærði
búskaparhætti af föður sínum og
hafði djúpan skilning á þeim vinnu-
brögðum. En, rétt eins og þekking án
skilnings er lítt vænleg til árangurs
mun skilningur án aukinnar þekk-
ingar ekki leiða til framfara.
Í næstu sveit
Á níunda áratugnum, meðan frændi
minn bjó í tímalausum heimi
sauðfjárbúskapar fortíðarinnar,
voru aðrir bændur á þeysireið
eftir kynbótabrautinni. Þar héldu
búfræðingar um taumana og þar var
hrútunum ekki hleypt stjórnlaust
í ærnar. Ó nei. Allan fengitímann
var valið handvirkt hvaða hrútur
skyldi feðra hvaða lömb og allt
skráð af ítrustu nákvæmni í fjár-
bókina. Svampar og strá; eitthvað
sem ég vissi ekki að þekktist fyrr
en þá. Tilhleypingar búnar að mestu
um jólaleytið. Féð byrgt inni á gjöf
frá miðjum nóvember að jafnaði,
fram á vor. Ær með stuttan legg
og samvaxin læri langt niður undir
hækil. Vetrarrúið. Sauðburður inni,
endalausar stíur, vatn í fötum og
burðarhjálp fastur liður í daglegri
rútínu. Markað fljótlega eftir burð;
tvö lömb á á, jafnvel þrjú, fjögur
eða fimm þegar best lét.
Úthagabeit yfir sumarið, græn-
fóður og grösug tún að hausti. Allt
viktað við smalamennsku, ekkert
sent beint til slátrunar. Viktað aftur
og jafnvel aftur áður en sláturbíllinn
náði að leggja að. Ásetningur valin
eftir ætterni föður, frjósemi móður
og gerð skepnunnar. Fallþungi dilka
skráður eftir númerum og tengd-
ur lífþunga. Meðalafurðir eftir á
reiknaðar, kynbótastuðull hrútanna
grandskoðaður og strá næstu til-
hleypinga valin eftir lúslestur gegn-
um hrútaskrána.
Seytján, ekki sautján
Allt var öðruvísi, meira að segja
tungumálið. Skjóla hét fata, reka var
skófla, bura var allt í einu orðin að
jakka, mögótt var golótt og vellótt
var írautt! Sumt var þó eins – kaup-
félagið og bændurnir í þessari sveit
voru líka eitt. Og – þeir framleiddu
afurðir eftir eigin kynbótastefnu án
þess að hlusta eftir óskum neytend-
anna þarna „fyrir sunnan“. Það hraut
af vörum sumra að þetta lið þyrfti
bara að læra að éta kjöt og bera
virðingu fyrir íslenskri framleiðslu.
Kynbætur fjárstofnsins hafa
verið helsta aðalsmerki sauðfjár-
ræktarinnar um langt árabil og leitt
til ótrúlegra breytinga á vaxtarlagi
og vöðvafyllingu skepnanna. Eitt
virðist þó ekki hafa breyst mikið;
enn er framleitt útfrá áhuga og
þekkingu bændanna á kynbótum,
en ekki svo mikið útfrá forsendum
markaðarins né óskum neytandans.
Hvar er kjötið mitt?
Ánægjuleg þróun hefur engu að
síður átt sér stað síðustu árin í sér-
vinnslu og sölu landbúnaðarafurða.
Í dag getur sá „fyrir sunnan“ með
útsjónarsemi og þolinmæði pantað
vörur beint frá þeim framleiðend-
um sem neytandinn vill beina við-
skiptum sínum til. Það eru meira
að segja nokkrar sérvöruverslanir á
höfuðborgarsvæðinu þar sem hægt
er að versla upprunamerktar land-
búnaðarvörur. Í hversdeginum fara
allflestir þéttbýlisbúar aftur á móti
í stórmarkaðinn.
Nokkrar greinar landbúnaðarins
bjóða þar upp á vöru sem er upp-
runamerkt framleiðanda og jafnvel
val á milli lífrænna og hefðbundinna
afurða. Því miður er lambakjötið
ekki í þessum flokki og neytandinn
hefur almennt enga hugmynd um
hvað hann er að kaupa.
• Hvar er rekjanleikinn sem
Gæðastýringin átti að skila?
• Af hverju getur neytandinn ekki
sannreynt muninn á gæðaflokk-
um sláturmatsins?
• Hvar er lífræna framleiðslan?
Það er löngu tímabært að sauðfjár-
bændur kanni hvað neytandinn vill
og geri allt til að mæta þeim óskum.
Lambakjöt er hágæðavara og á skil-
ið mun meiri virðingu en að vera selt
í hálfum skrokkum fyrir smáaur í
stórum sekk úr þykku glæru plasti
sem á stendur „súpukjöt“.
Þórunn Pétursdóttir land-
græðsluvistfræðingur
REYKJAVÍK
Krókháls 5F
110 Reykjavík
Sími: 414-0000
AKUREYRI
Baldursnes 2
603 Akureyri
Sími: 464-8600
www.VBL.is
REYKJAVÍK Sími: 414-0000 /// AKUREYRI Sími: 464-8600 /// www.VBL.is
NÚ ER GÓÐUR TÍMI TIL AÐ PANTA
PANTIÐ TÍMALEGA!
Pantið merkin fyrir 20. mars
til að tryggja að þau komi
fyrir sauðburð
LAMBAMERKIN