Bændablaðið - 25.02.2016, Síða 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. febrúar 2016
Í janúar 2016 heimsótti höfund-
ur þessar greinar nokkra jarðar-
berjaræktendur í Þýskalandi og
Hollandi með það markmið að fá
meiri þekkingu af jarðarberja-
ræktun og bera saman fram-
leiðslu þar og á Íslandi til að sjá
hvað er hægt að bæta í jarðar-
berjaræktun á Íslandi.
Í Þýskalandi og Hollandi eru
jarðarber ræktuð í stórum stíl. Fyrst
og fremst eru jarðarber ræktuð úti
í röðum í heilum spildum. Einnig
eru jarðarber ræktuð á hryggjum,
sem eru huldir svartri plastfilmu og
undir henni eru vökvunarkerfi sett
upp. Filman kemur í veg fyrir upp-
gufun vatnsins og spírun illgresis.
Með réttu vali á yrki er hægt að
lengja uppskerutímabilið en ýmsar
fleiri aðferðir eru til. Til dæmis er
hægt að rækta jarðarberin í ein-
földum plastgróðurhúsum sem
er færð hvert ár. Í þannig gróður-
göngum eru jarðarberin ræktuð í
asparhryggjum. Þetta er tiltölulega
fyrirhafnasamt ferli en plönturnar
fá vernd gegn veðri og það er hægt
að fá þroskuð ber 2–3 vikum fyrr
en við ræktun án ganga í heilum
spildum. Göngin eru 5,50–8,50 m
breið og 2,30–3,90 m á hæð. Það
er hægt að hafa annað hvort þrjá til
fimm hryggi með tvöföldum röðum
eða fimm til sjö hryggi með einni
röð. Ef ekki er hægt að ferja göng,
er hægt að rækta í föstum gróður-
göngum (mynd 1). En til að koma
í veg fyrir plöntusjúkdóma og verja
uppskeruöryggi er nauðsynlegt að
rækta í pottum sem settir eru ofan
á svarta plastfilmuna. Með því má
ábyrgjast að jarðarberjaræturnar
koma ekki í snertingu við jörðina.
Annar möguleiki er að rækta
í gróðurhúsum í pottum á háum
beðum. Dúkur er breiddur yfir
plönturnar þar til blómgun hefst.
Með þessari aðferð er hægt að að
fá þroskuð ber meira en einni viku
fyrr en án dúks (mynd 2).
Til að framleiða jarðarber
allt árið um kring eru raflýst og
upphituð gróðurhús nauðsynleg.
Garðyrkjustöð eins og sjá má
á mynd 3 var með sambærileg
skilyrði fyrir jarðarber eins og í
jarðarberjatilraunum á Reykjum.
Munurinn var bara plöntuþéttleiki,
þau voru með 12 jarðarberjaplöntur
af yrkinu 'Sonata' á metra, sem gaf
10 plöntur á fermetra en við vorum
með þrengri göng og því með 12
plöntur á fermetra. Þau fengu 60
ber á plöntu með 700 g söluhæfa
uppskeru á plöntu á 6 vikna upp-
skerutímabili. Meðalþyngd bers
var 11,7 g (þyngdin lækkaði frá 30
niður í 10 g yfir uppskerutímabilið).
Markmið okkar á Íslandi verður því
að ná sama árangri. Vonandi næst
það í næstu jarðarberjatilraun.
Jarðarberjaræktun í útlöndum
Jarðarberjaræktun á óhefðbundnum tíma á Íslandi
Uppskerutímabil af íslenskum
jarðarberjum hefur verið um
það bil frá maí til október og því
eru íslensk jarðarber ekki í boði
vetur og vor. Hins vegar vilja
íslenskir neytendur gjarnan líka
borða jarðarber yfir veturinn og
þess vegna eru jarðarber flutt til
landsins. En í Hollandi og Belgíu
er nokkurra áratuga hefð fyrir
ræktun jarðarberja í upphituðum
gróðurhúsum.
Svo eru einnig Norðmenn að
prófa sig áfram með gróðurhúsa-
ræktun jarðarberja yfir veturinn.
Vetrarræktun í gróðurhúsum á
Íslandi er algjörlega háð aukalýs-
ingu. Viðbótarlýsing getur því lengt
uppskerutímann og komið í stað inn-
flutnings að vetri til. Grænmetið er
ræktað yfir veturinn með lýsingu og
spurning hvort ekki er hægt að lengja
vaxtarskeið jarðarberja á sama hátt.
Í ljósi þessa var Landbúnaðarháskóli
Íslands að prófa vetrarræktun jarðar-
berja með það markmið að sjá, hvort
það er mögulegt á Íslandi og hvort
ljósstyrkur hefði áhrif á uppskeru
og gæði jarðarberja. Einnig var hag-
kvæmni slíkrar ræktunar skoðuð.
Verkefnisstjóri var Christina Stadler
og verkefnið var unnið í samstarfi
við jarðarberjabændur og styrkt af
Sambandi garðyrkjubænda.
Tilraunaskipulag
Gerðar voru tvær tilraunir með
jarðarber (Fragaria x ananassa, yrki
'Sonata'), sú fyrri (A) frá janúar til
maí 2015 og sú síðari (B) frá miðjum
maí til loka júlí 2015, í tilraunagróð-
urhúsi Landbúnaðarháskóla Íslands
að Reykjum. Jarðarber voru ræktuð í
pottum í fimm endurtekningum með
12 plöntur/m2 undir topplýsingu frá
háþrýsti-natríumlömpum (HPS) með
tvenns konar ljósstyrk (150 W/m2
og 100 W/m2) að hámarki í 18 klst.
Daghiti var 16° C og næturhiti 8°
C, CO2 800 ppm. Jarðarberin fengu
næringu með dropavökvun. Í hluta
A og hluta B voru áhrif ljósstyrks
prófuð og framlegð reiknuð út.
Niðurstöður og umræða
Það tók 1-2 daga frá blómgun til
frjóvgunar. Fjöldi blóm / ber náði
60 í hámarki við hærri ljósstyrk en
um 55 við lægri ljósstyrk í hluta A.
Hins vegar var fjöldi í öfugri röð í
hluta B við næstum 60 blóm / ber
við lægri ljósstyrk og næstum 55 við
hærri ljósstyrk (mynd 1). Eftir að ná
hámark, minnkaði fjöldi því jarðar-
berin voru byrjað að tina.
Ávextir voru þroskaðir eftir 42
daga í hluta A og í hluta B eftir 33-35
daga. Í upphafi uppskerutímabils
gaf meðferð með hærri ljósstyrk
nokkrum dögum fyrr þroskuð ber
en við 100 W/m2 (mynd 2). Í lok
uppskerutímabils fengust 600 g/
plöntu markaðshæfrar uppskeru við
150 W/m2 en 500 g/plöntu við 100
W/m2 í hluta A, en munurinn var
ekki tölfræðilega marktækur. Í hluta
B fengust 450 g/plöntu við 150 W/
m2 en rúmlega 350 g/plöntu við 100
W/m2 sem var heldur ekki tölfræði-
lega marktækur munur. Jákvæð áhrif
hærri ljósstyrks á markaðshæfa upp-
skeru var aukning um 13 % / 19 %
(hluta A / hluta B). Munurinn milli
mismunandi ljósstyrks þróast í upp-
hafi uppskerutímabils.
Ástæðan fyrir meiri uppskeru
við hærri ljósstyrk var aukinn fjöldi
jarðarberja í úrvalsflokki, en meðal-
þyngd minnkaði eftir því sem leið á
uppskerutímabilið frá 15–23 g/ber til
um 7 g/ber og var aðeins hærri við
150 W/m2 í hluta B en ekki í hluta
A (mynd 2).
Það virðist sem ómarkaðshæf
uppskera hafi minnkað við hærri
ljósstyrk. Hlutfall uppskerunnar
sem hægt var að selja var 90–94 %
í hluta A og 86–88% í hluta B. Hærra
hlutfall ómarkaðshæfrar uppskeru
í hluta B var vegna hærri hluta af
jarðarberjum sem voru illa löguð
vegna ófrjóvgunar (tafla 1).
Þegar hærri ljósstyrkur var notað-
ur, þá jókst uppskera um 0,8 kg/m2
(1 % hækkun í ljósstyrk jók uppskeru
um 0,3-0,4 %) og framlegð um 900
ISK/m2 í hluta A og 1.500 ISK/m2
í hluta B. Hærri rafmagnsgjaldskrá
breytir framlegð næstum ekkert. Það
skiptir ekki máli hvort gróðurhús er
staðsett í þéttbýli eða dreifbýli, fram-
legð er svipuð.
Ályktun
Frá hagkvæmnisjónarmiði er mælt
með því að nota hærri ljósstyrk til að
auka uppskeru og framlegð jarðar-
berja. Nú eru aftur farnar af stað
tilraunir við LbhÍ þar sem prófuð
verða áhrif ljósstyrks yfir hávetur-
inn 2015/2016 á tvö jarðarberjayrki,
'Sonata' og 'Elsanta'. Niðurstöður
verður kynntar í Bændablaðinu þegar
þær liggja fyrir.
Christina Stadler, LbhÍ, Reykjum, Hveragerði
Föst göng fyrir jarðarberjaræktun í janúar.
Hlutfallsleg skipting söluhæfra og ósöluhæfra jarðarberja
eftir ljósstyrk í hluta A og hluta B
úrvalsfl. 1. fl. 2. fl. of smá mygluð illa löguð græn
Hluti A
Hluti B
Söluhæf uppskera Ósöluhæf uppsker