Bændablaðið - 30.11.2017, Page 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 30. nóvember 2017
Hinn árlegi jólamarkaður hand-
verkstæðisins Ásgarðs verður
haldinn í Álafosskvosinni
laugardaginn 2. desember. Þar gefst
fólki kostur á að kaupa vandaða
smíðagripi sem smíðaðir eru af
mikilli alúð af starfsfólki staðarins.
Unnið er úr náttúrulegum efnivið
og nær eingöngu er notaður
íslenskur trjáviður.
Frá upphafi hafa starfsmenn
Ásgarðs lagt áherslu á að hanna og
þróa einföld, sterk og skemmtileg
leikföng sem eiga sér samsvörun í
íslenskum þjóðháttum. Hvort sem um
er að ræða sjávarútveg, landbúnað,
þjóðsögur eða ævintýri. Eingöngu
er unnið með náttúrulegan efnivið.
Heimir Þór Tryggvason
forstöðumaður segir að allar
hugmyndir af framleiðsluvörum
séu teknar til skoðunar. Þar sé
ekkert fyrirfram talið ómögulegt svo
framarlega að hægt sé að framkvæma
hlutina með skynsamlegu móti.
Heimir hóf störf í Ásgarði 1998
og tók við sem forstöðumaður árið
2001. Að öðrum ólöstuðum hefur
Óskar Albertsson án efa verið ötulasti
talsmaður Ásgarðs í gegnum tíðina,
en þar hefur hann starfað frá stofnun
1993.
Markaðurinn haldinn í
Bragganum
Markaðurinn er í smíðahúsinu að
Álafossvegi 14 sem venjulega er
kallað Bragginn. Þá geta gestir
einnig brugðið sér á kaffihlaðborð
í húsi sem er þar nokkur skref í
burtu, eða í Ásgarði númer 24
við Álafossveg gegnt Álafoss-
versluninni. Markaðurinn verður
opnaður klukkan 12 og mun standa
til klukkan 5 síðdegis.
Óskar Albertsson,
talsmaður Ásgarðs,
segir að alltaf sé góð
aðsókn að markaðinum.
Síðast hafi nær allt
selst upp svo vissara
sé fyrir fólk að
mæta tímanlega.
Það verður gott
veður og skemmtilegt
„Við ætlum líka að hafa
gott veður og hafa þetta
skemmtilegt. Hér verða
leikföng og margvíslegir
listmunir til sölu í Bragganum.
Hér í Ásgarði verður
svo boðið upp á
kökuhlaðborð, kaffi
og heitt súkkulaði,
en bakarar hafa verið
duglegir að styrkja
okkur á þessum degi.
Svo hafa tónlistarmenn verið svo
elskulegir að koma til okkar líka.
Við seljum annars okkar
framleiðslu allt árið um kring.
Starfsemin er rekin í gegnum
þjónustusamning við sveitarfélögin,
þannig að starfsemin er styrkt bæði
af sveitarfélögunum og ríkinu.
Hingað koma um 40 manns til
vinnu á hverjum degi. Sumir eru
bara fyrir hádegi, aðrir eftir hádegi
og einhverjir eru allan daginn.
Hér ríkir mjög góður andi og gott
að vera. Það verður því gaman að
fá gesti til okkar á laugardaginn,“
segir Óskar.
Ásgarður hand verkstæði var
stofnað 1993 sem
sjálfseignarstofnun
og hefur starfsleyfi
frá velferðar ráðu-
neytinu sem vernd-
aður vinnustaður.
Fyrst í
Lækjarbotnum
og síðan í
Álafosskvosina
Fyrstu árin var starfsemin
í húsi í Lækjarbotnum, ofan
við Lögbergsbrekkuna. Það
svæði tilheyrir Kópavogi. Í
byrjun desember árið 2000
brann verkstæðið sem þar var
þegar nýbúið var að ljúka við
að vinna alla jólaframleiðsluna
og hún fuðraði upp ásamt
húsinu. Þá var keyptur pöbb
í Álafosskvosinni og honum
breytt í vinnustað sem fékk
nafnið Ásgarður. Í framhaldinu
voru keyptir tveir braggar þar
rétt hjá og gerðir upp og sett
þar upp smíðaverkstæði og
listasmiðja var sett upp í
hluta af Ásgarði. Þar er einnig
matsalur starfsfólks og í plássi
listasmiðjunnar er nú búið að
Á verkstæðinu í Bragganum hjá Ásgarði. Frá vinstri: Gunnar Jónsson,
Pétur Steinþórsson, Kristinn Axel Ólafsson, Pawel Patynek frá Póllandi,
Erlendur Birgisson og nafnarnir Óskar Guðmundsson og Óskar Albertsson.
Í innklipptu myndinni má sjá sumt af þeirri hagleikssmíð sem þarna er unnin
af mikilli vandvirkni og hægt er að fá keypta. Myndir / HKr.
Óskar Albertsson kominn í jólajakkafötin og sýnir hér hluta af þeim leikföngum
Jólamarkaður í handverkstæðinu Ásgarði í Álafosskvosinni 2. desember:
Þar eru smíðuð leikföng og
skrautmunir af mikilli alúð
Braggar Ásgarðs í Álafosskvosinni
þar sem jólamarkaðurinn verður.