Bændablaðið - 30.11.2017, Side 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 30. nóvember 2017
Katrín í Ecospíru:
Fæðið reyndist lykillinn að heilsunni
„Ég stofnaði Ecospíru árið 2012
eftir að ég reyndi af eigin raun
lifandi spírað og grænt fæði sem
lækningafæði,“ segir Katrín um
upphaf Ecospíru. „Að upplifa
endurnýjunarmöguleika fæðisins á
líkamlega og andlega líðan var nánast
eins og að endurfæðast. Reynslan
vakti hjá mér áhuga á að kynna mér
nánar eiginleika lifandi og spíraðs
fæðis sem og söguna á bak við þetta
fæði. Niðurstaða þeirrar athugunar
sannfærði mig um mikilvægi þess
að koma þessari vöru á almennan
markað.“
Sérvirk heilandi jurtaefni
Katrín hefur skoðað vel rannsóknir
á þeim efnum sem myndast við
neyslu á spírunum. „Í þessu fæði
eru mikilvæg sérvirk jurtaefni sem
eru frumuverjandi ásamt ríkulegum
andoxunarefnum sem hlutleysa
sindurefni en sindurefni geta verið
skaðleg fyrir frumur líkamans og
flýtt fyrir hrörnun. Þá er fæðið mjög
auðmelt og ensímríkt sem auðveldar
upptöku næringarefnanna út í blóðið.
Spírur eru jafnframt auðugar af
trefjum sem næra góðu þarmaflóruna.
Neysla á spírum er í raun frábær leið
til að neyta meira af jurtaefnum sem
líkaminn okkar þarfnast því við
þurfum í raun einungis að neyta lítils
magns af spírum til að fá mikið af
jurtaefnum í líkamann,“ útskýrir
Katrín.
„Ég framleiði nú um tíu til tólf
tegundir af spírum og einnig ýmsar
smájurtir og kress (e. microgreens)
sem og grös, eins og sólblómagrös
og baunagrös. Ég hef mjög góða
aðstöðu til að framleiða hvaða
tegund sem er og í miklu magni;
er með afkastamiklar vélar og gott
rými. Ég hef því getað framleitt
það sem eftirspurn er eftir hverju
sinni. Vinsælustu spírurnar eru
radísuspírur. Ég framleiði fjórar
mismunandi tegundir af þeim,
grænar, hárauðar, bleikar og
rauðkálsrauðar. Þær eru ekki bara
bragðgóðar og fallegar heldur einnig
mjög afeitrandi fyrir líkamann,
innihalda m.a. ríkulegt magn C-
og A-vítamína og kalsíum auk
annara næringarefna. Enn fremur
bendir nýleg rannsókn til að að þær
hafi svipuð frumuverjandi áhrif
og brokkólíspírur sem fjölmargar
rannsóknir hafa sýnt að geti m.a.
hindrað æxlismyndun í líkamanum.“
Bragðsterkar spírur vinsælar á
veitingahúsum
Þó svo að Katrín hafi byrjað að
framleiða spírur aðallega sem
heilsufæði hefur notkun á þeim á
veitingahúsum farið vaxandi á þeim
fimm árum sem Ecospíra hefur verið
starfrækt. „Hjá veitingamönnum
hafa bragðsterkari spírurnar verið
vinsælastar; blaðlauks-, hvítlauks- og
radísuspírur.
Spírurnar eru borðaðar ferskar
með öllum mat – eins og salat. Þær
eru settar ofan á brauð, í hamborgara,
í vefjur, í samlokur og í græna drykki.
Það er í raun hægt að borða þær með
öllu. Bragðeiginleikar spíra eru mjög
mismunandi eins og grænmetið sem
kemur af þessum fræjum. Blaðlaukur,
hvítlaukur, brokkólí og radísur; allt
er þetta grænmeti með mismunandi
bragði sem við sækjumst eftir í
matnum okkar – og það sama á við
um spírurnar nema þær eru safaríkari
og bragðið ferskara.“
Lífrænt vottuð framleiðsla
Katrín sóttist strax eftir lífrænni
vottun fyrir starfsemi sína. „Ef
fræin eru ekki vottuð lífræn þá getur
maður ekki verið viss um að þau séu
laus við skordýraeitur og/eða önnur
svokölluð varnarefni. Spírur eru frá
sex til fimmtán daga gamlar þegar þær
eru tilbúnar til neyslu. Þess vegna er
mikilvægt að fræin hafi ekki verið
húðuð eða sprautuð fyrir framleiðslu
þar sem þá væri möguleiki á að efnin
séu enn til staðar í vörunni. Það er ekki
hægt að markaðssetja matvöru sem
heilsuvöru sem er mögulega blönduð
varnarefnum.
Brokkólíspírurnar mest
rannsakaðar
Að sögn Katrínar eru
brokkólíspírurnar mest rannsakaðar
af öllum spírum. „Það er
einkum vegna þess að í brokkólí
greindust efni sem reyndust hafa
frumuverjandi áhrif, einkum
gagnvart krabbameinsfrumum.
Þessi verndandi áhrif eru
talin stafa af glúkórafaníninu
(brennisteinsglýkósíð) sem plantan
inniheldur. Til þess að líkaminn geti
nýtt sér þetta efni verður að vera
til staðar plöntuensímið mýrósínasi
sem umbreytir efninu í lífvirka efnið
súlfórafan. Rannsóknir hafa sýnt
að súlfórafan getur meðal annars
hindrað æxlismyndun, örvað afeitrun
krabbameinsfruma úr líkamanum,
hindrað útbreiðslu krabbameins,
hægt á krabbameinsvexti auk
fjölmargra annarra heilsuverndandi
áhrifa. Til þess að plöntuensímið
mýrósínasi sé nýtilegt og til
staðar við niðurbrot glúkórafaníns
má ekki hita grænmetið við hærra
hitastig en 47 gráður á Celsíus. Því
er mikilvægt að borða brokkólíið
ferskt. Rannsóknir á brokkólíspírum
leiddu í ljós að þær innihalda upp í
100 sinnum meira af glúkórafaníni
en fullvaxta brokkólíplanta.
Þar sem spíranna er neytt ferskra
nýtist ensímið mýrósínasi við
niðurbrot glúkórafaníns í súlfórafani
í meltingarveginum sem fer síðan út
í blóðið og hefur þessi frumuverjandi
áhrif sem er í raun stórkostlegt. Það
ættu í raun allir að borða sem svarar
einni skeið af brokkólíspírum á dag,
á sama hátt og fólk tekur inn lýsi,“
segir Katrín.
Urban farming
– matvælarækt í þéttbýli
Katrín segist þakklát fyrir
hvatningarverðlaunin og hún muni
halda sínu striki og byggja upp. „Já,
það var sérlega skemmtilegt að fá
hvatningarverðlaun garðyrkjunnar,
ég er mjög þakklát og stolt af því.
Starfsemin hefur þróast á þann veg að
framleiðslan er ekki eingöngu spírur
heldur einnig smájurtir og grös. Ég
get í raun framleitt hvað sem er á þessu
sviði. Hef góð tæki, gott húsnæði hér í
Hafnarfirði og gott og reynt starfsfólk.
Ég er í raun með það sem vinsælt
er núna að kalla Urban farming,
matvælarækt í þéttbýli. Héðan er
stutt á markað og í flestum tilvikum
eru spírurnar komnar í verslanir og/
eða á borð neytandans daginn eftir
uppskeru. Þróunin framundan hjá mér
er að halda uppbyggingunni áfram,
framleiða meira og fjölbreyttari jurtir
og grös ásamt því að auka þjónustu
við einstaklinga varðandi heilsufæði
og ráðgjöf í þeim efnum.
Margir hafa leitað til mín
um heilsuráðgjöf vegna minnar
reynslu í þeim efnum og hef ég
fram að þessu haft lítinn tíma
til að sinna því. Hins vegar hef
ég rýmri tíma núna og langar að
miðla af reynslu minni til þeirra
sem þess þurfa. Ég er fullkomlega
sannfærð um að heilnæmt fæði
ásamt hæfilegri hreyfingu sé
lykillinn að heilbrigði. Núverandi
álag á heilbrigðiskerfið er ekki
náttúrulögmál heldur væri hægt
að minnka álagið mikið með
heilsusamlegri lífsstíl.
Með aukinni vitund fólks á
mikilvægi heilnæms fæðis kemur
Ecospíra sterkt inn,“ segir Katrín.
/smh
Κ
atrín H. Árnadóttir umhverfisfræðingur
framleiðir spírur, smájurtir (e. micro-
greens) og grös úr baunum, fræjum og
ertum af ástríðu í Hafnarfirði og markaðs-
setur vörur sínar undir merkinu Ecospíra. Hún fékk
hvatningarverðlaun garðyrkjunnar 2017 á sumardag-
inn fyrsta síðastliðinn. Neysla á spírum hefur farið
mjög vaxandi í kjölfar stofnunar Ecospíru en spírurnar
eru fáanlegar í flestum matvöruverslunum og eru dag-
lega á borðum margra mötuneyta og veitingahúsa.
Talið er að tilteknar spírur geymi ofurhollustu og að
við neyslu myndist ákveðið efni sem rannsóknir benda
til að geti veitt forvörn gegn ýmsum sjúkdómum og
hafi jafnvel lækningamátt.
Brokkóli- og smárablanda úr fram-
leiðslu Ecospíru.
Radísuspírur eru vinsælastar.
Katrín framleiðir um tíu til tólf tegundir spíra, auk smájurta og grasa.