Bændablaðið - 30.11.2017, Síða 33
Leiðir tiL að auka koLefnisbindingu á ÍsLandi | 30. NÓVEMBER 2017 33
Ekki gefa bara eitthvað,
gefðu frekar hvað sem er.
Með gjafakorti Landsbankans er ekkert
mál að velja réttu jólagjöfina. Þú ákveður
upphæðina og sá sem þiggur velur gjöfina.
Þú færð gjafakortið í næsta útibúi.
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Uppgrætt land á Íslandi rúmlega 110 þúsund hektarar frá árinu 1990:
Kolefnisbinding á
landgræðslusvæðum
Miðað er við að landgræðsla hafi
hafist árið 1907 með setningu
laga þar um, en á 19. öld höfðu
ýmsir bændur unnið að heftingu
sandfoks á jörðum sínum í kjölfar
þess landhnignunarskeiðs sem þá
reið yfir. Þetta átti sérstaklega við
á Rangárvöllum og í Landsveit.
Að ná upp gróðurhulu tekur
tíma
Frá árinu 1990 er áætlað að uppgrætt
land sé rúmlega 110 þúsund
hektarar. Umfangsmesta aðgerðin
sem beitt er við landgræðslu í dag er
notkun áburðar á lítt gróið land. Þar
er alla jafna verið að styrkja svæði
sem enn framleiða talsvert fræ og
geta því jafnað sig með áburðargjöf
og friðun. Á örfoka landi, þar sem
engin fræframleiðsla er til staðar,
þarf hins vegar að sá grastegundum
jafnhliða áburðargjöfinni. Þar með
fæst gróðurþekja sem stöðvar
yfirborðshreyfingar vegna foks
og frosts, og þar með hafa skapast
góðar aðstæður fyrir náttúrulegan
gróður til að nema land, á borð
við birki. Oft er látið staðar numið
þegar þessum áfanga er náð, en
landið síðan friðað.
Tíminn sem það tekur slíkt land
að ná ásættanlegri gróðurhulu og
uppskeru er breytilegur, en verður
þó að mæla í árum, áratugum,
og við allra erfiðustu aðstæður, í
árhundruðum.
Moldin bindur mikið kolefni
Kolefnisbinding á landgræðslu
svæðum fer fyrst og fremst fram í
jarðveginum. Hraði hennar fer eftir
því hversu öflugan gróður er þar að
finna. Land sem tekur hraðast við sér
er alla jafna land þar sem enn er að
finna leifar lífræns jarðvegs, mold.
Það er jafnframt land sem oftast dugar
að bera einungis á áburð. Slíkt land
getur hæglega bundið rúmlega 2,5
2,8 tonn koltvísýrings á hektara á
ári í jarðvegi. Að jafnaði binda land
græðslusvæði hins vegar um 2,1 tonn
koltvísýrings á hektara á ári í jarðvegi
þegar litið er til allra landgræðslu
aðgerða og allra landgræðslusvæða.
/Jóhann Þórsson, LR
Sjálfsáið birki á uppgræðslusvæði sem áður var örfoka. Landgræðsluaðgerðir eru oft forsenda þess að annar
gróður nái að nema land. Myndir / Jóhann Þórsson
Á ÍSLANDI
RÁÐSTEFNA
5. DES BÆNDAHÖLLINNI
LEIÐIR TIL AÐ AUKA
KOLEFNIS
BINDINGU
Ráðstefna um leiðir
og möguleika í
kolefnisbindingu
verður haldin í
Bændahöllinni,
Hótel Sögu, 2. hæð,
þriðjudaginn
5. desember
kl. 13-16 á
alþjóðlegum degi
jarðvegs.
SKRÁNING Á VEFNUM
BONDI.IS
ENGINN AÐGANGSEYRIR
Unnið að uppgræðslu á örfoka landi á Rangárvöllum. Hér er verið að dreifa
kjötmjöli sem hefur reynst afbragðs áburður við svona aðstæður.