Bændablaðið - 30.11.2017, Side 34
LEIÐIR TIL AÐ AUKA KOLEFNISBINDINGU Á ÍSLANDI | 30. NÓVEMBER 2017 34
Skógrækt og kolefnisbinding
Skógar eru eitt stærsta
kolefnisforðabúr jarðar. Áætlað er
að kolefnisforði í gróðri heimsins
sé um 560 milljarðar tonna en
af þeim séu 360-420 milljarðar
tonna í skógum. Að auki má
reikna með því að á milli 30 og 70
prósent kolefnisforða jarðvegs séu
í jarðvegi skóga.
Hversu hratt kolefni binst í
skógum fer eftir því hversu hratt trén í
skóginum vaxa. Samanburður á vexti
trjáa á Íslandi hefur sýnt að vöxtur
gjöfulustu tegundanna er svipaður
hér og gjöfulustu tegundanna á
sömu breiddargráðum í Skandinavíu.
Kolefnisbinding með skógi er því vel
raunhæf hér á landi.
Þegar illa farið eða örfoka land
breytist í skóg verður mikil og hröð
binding kolefnis. Hversu hröð hún
verður fer eftir því hvaða trjátegund
er notuð. Hér á landi hafa mælingar
sýnt að hraðvaxta alaskaösp bindur
hvað mest, vel yfir 20 tonn af CO2
á hektara á hverju ári þar sem
best lætur. Barrtegundir, t.d. lerki,
stafafura og sitkagreni, binda 7-11
tonn af CO2 á hektara á ári en
bindingin er minni hjá íslenska
birkinu, 3,5 tonn CO2 á hektara á
ári, enda vex það hægar.
Binding íslenskra skóga
Skóglendi ræktað á Íslandi eftir
1990 hafði árið 2015 bundið um
180 þúsund tonn af CO2. Ártalið
1990 er notað hér þar sem það
er viðmiðunarár í alþjóðlegum
samningum en ef litið er til allra skóga
landsins, óháð gróðursetningaári,
hafa þeir þegar náð 300 þúsund tonna
árlegri bindingu af CO2.
Í skýrslu Hagfræðistofnunar HÍ
frá 2017 er bent á að miðað við
sömu gróðursetningu trjáa megi gera
ráð fyrir að skógar landsins bindi
tæplega 370 þúsund tonn árið 2030.
Tvöföldun aðgerðarhraða myndi
hins vegar þýða að bindingin yrði
rúm 425 þúsund tonn og fjórföldun
myndi skila tæplega 535 þúsund
tonna bindingu af CO2 á ári.
Skógar hafa einnig temprandi
áhrif á loftslagsbreytingar og með
auknum hita og styrk koltvísýrings
binda skógar hraðar, svo framarlega
sem ekki er skortur á öðrum þáttum
svo sem vatni og næringu.
Tré í stað olíu og kola
Skógur er hins vegar ekki bara kolefni,
heldur er hægt að búa til úr trjánum
nánast hvað sem er. Þannig fer mikil
nýsköpunar- og þróunarvinna fram
vegna framleiðslu efna úr trjám sem
nota má í snyrtivörur, málningu, lyf,
bragðefni og fleira. Mikil tækifæri
felast í aukinni notkun viðarmassa
í lífeldsneyti og krosslímds viðar
til húsbygginga. Ef viðurinn úr
skóginum er nýttur til alls kyns
framleiðslu í stað jarðefnaeldsneytis
aukast loftslagsáhrif skógræktar
mikið.
Viður og hráefni unnin úr viði
geta leyst af hólmi steinsteypu, járn
og kol svo nokkuð sé nefnt. Plastefni
má framleiða úr trjám í stað jarðolíu.
Nýting okkar á trjáviði getur stuðlað
að varanlegri bindingu kolefnis.
Það sem gert er úr timbri eða
timburafurðum geymir í sér kolefnið
svo lengi sem það stendur, hvort
sem það eru byggingar, húsgögn eða
annað. Þegar viðurinn brotnar niður,
rotnar eða brennur, losnar kolefnið
aftur út í andrúmsloftið.
Ólíkt bruna jarðefnaeldsneytis og
kola er bruni viðar kolefnishlutlaus,
komi viðurinn úr sjálfbærum
skógum þar sem jafnmikið vex upp
aftur og það sem af var tekið. Þegar
viður brennur losnar aldrei meira
kolefni en bundið var á ævi trésins.
Þannig getur notkun á viðarafurðum
dregið verulega úr nettólosun
gróðurhúsalofttegunda, þegar litið
er á heildarmyndina.
Skyldur okkar til bjargar jörðinni
Skógar og kjarr þekja nú aðeins um
2% af flatarmáli Íslands og hér er
því einstakt tækifæri að rækta skóg
til að binda kolefni. Í þeirri umræðu
sem skapast hefur um kolefnismál
hefur verið lögð mikil áhersla á
skyldur okkar til að draga úr losun
og stundum látið að því liggja að
ekki beri að líta á kolefnisbindingu
sem hluta af lausninni. Staðreyndin
er hins vegar sú, að ef okkur á að
takast að halda jörðinni byggilegri
þá er ekki nóg að draga eingöngu
úr losun, við verðum líka að binda
kolefni sem þegar er í lofthjúpnum.
Engin ein leið er sú eina rétta.
Hins vegar stöndum við líka frammi
fyrir því að aðgerðir sem miða að
því að draga úr losun kalla í flestum
tilfellum á breytt hegðunarmynstur
fólks. Slíkt getur verið erfitt og
tekið nokkurn tíma. Binding með
skógrækt og landgræðslu er hins
vegar leið sem byggð er á traustum
grunni þekkingar og auðvelt er að
auka verulega.
Látum bókhaldið ekki ráða för
Margt bendir til þess að Ísland
verði með öðrum ríkjum
Evrópu þegar kemur að
losunar- og bindingarbókhaldi
á fyrsta skuldbindingartímabili
Parísarsamkomulagsins fram til
2030. Ekki liggur alveg ljóst fyrir
hversu mikla bindingu í landgræðslu
og skógrækt Ísland fær að telja sér þar
til tekna. Hafa þarf þó í huga að slíkir
samningar sem við undirgöngumst
byggjast á samkomulagi margra
þjóða með ólíka möguleika til
aðgerða í loftslagsmálum. Tryggja
þarf að okkar sérstaða með bindingu
í skógi, gróðri og jarðvegi á illa förnu
landi fáist viðurkennd.
Þegar öllu er á botninn hvolft
eru alþjóðlegir samningar
eingöngu verkfæri að ákveðnu
markmiði. Varast verður að
láta verkfærið stjórna ferðinni
og burtséð frá því hversu mikil
kolefnisbinding í skógi fæst talin
með í bókhaldskerfi Evrópu, þá
breytir ekkert þeirri staðreynd að
með ræktun skóga drögum við úr
styrk CO2 í andrúmslofti. Þannig
aukast líkurnar á því að jörðin verði
byggileg fyrir afkomendur okkar og
það er aðalatriðið.
Línuritið sýnir þrjár mismunandi spár um nettóbindingu CO2 með skógrækt frá 1990. Rauða línan sýnir bindinguna
miðað við óbreytta skógrækt (1092 ha árlega), græna línan sýnir bindingu ef skógrækt yrði tvöfölduð og sú dökka
ef skógrækt yrði fjórfölduð. Mynd / Arnór Snorrason, byggt á gögnum Íslenskrar skógarúttektar.
Edda S. Oddsdóttir, sviðsstjóri
rannsóknasviðs Skóg ræktarinnar.
timburnota eða til dæmis til framleiðslu á lífeldsneyti. Mynd / Edda S. Oddsdóttir