Bændablaðið - 30.11.2017, Side 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 30. nóvember 2017
bæði við fjárskiptin sjálf og einnig
vegna þess að mun meira land
vantaði til haustbeitar en tiltækt var
í Breiðholtsgirðingunni þótt margir
fjáreigendur væru að nýta afgirt tún
og bletti á ýmsum stöðum í bænum.
Reyndar heyjuðu þeir mikið á slíku
landi á sumrin og notuðu jafnvel líka
til beitar á vorin. Þá voru sinubrunar
fátíðir.
Eftir miklar kannanir og umræður
ákvað stjórnin 1957 að stofna
félagið Sauðafell hf um kaup
á rúmlega 2000 hektara landi í
Hvassahrauni á Vatnsleysuströnd.
Fjáreigendafélagið átti og á enn
rúmlega 45% hlut en erfingjar
25 einstakra fjáreigenda, sem
keyptu misstóra hluti á sínum
tíma, samtals tæplega 55%. Síðan
2004 hefur félagið verið skráð sem
Sauðafell sf. Þetta víðáttumikla,
ógirta land nýttu sumir reykvískir
fjáreigendur til haustbeitar og
á sauðfjárstríðsárunum byggðu
tveir þeirra myndarleg fjárhús þar,
fluttu þangað féð ásamt nokkrum
öðrum, aðallega úr gömlu Fjárborg,
og höfðu fé sitt þar líka á sumrin.
Þeir síðustu sem það gerðu
voru reyndar úr Kópavogi og
Hafnarfirði, fram yfir 1990, þegar
mest allur Reykjanesskaginn var
beitarfriðaður.
Uppgræðsla í afrétti
Allt frá 1978 hafa félög fjáreigenda
í Reykjavík og Kópavogi lagt
sérstakt uppgræðslugjald á allt
sauðfé félagsmanna og hafa í
samvinnu við sveitarfélögin þrjú
og Landgræðslu ríkisins unnið að
uppgræðslu í afréttinum. Búið var
að græða upp á 2.hundrað hektara
við Arnarnípur og í Lakheiði með
góðum árangri þegar allt svæðið
sunnan Suðurlandsvegar var friðað
2001. Þá voru tekin fyrir ný svæði
norður undir Lyklafelli og suðaustur
af því og lofar sú uppgræðsla líka
góðu enda landið hóflega setið.
Útrýming riðuveiki
Riðuveiki kom upp á
höfuðborgarsvæðinu 1966, þó aldrei
í gömlu Fjárborg, og magnaðist hún
mjög í sumum hjörðunum í nýju
Fjárborg í Hólmsheið á 8. áratug
liðinnar aldar.
Farsælt samstarf hófst haustið
1978 á milli Fjáreigendafélags
Reykjavíkur og Sauðfjárveikivarna,
með Sigurð Sigurðarson dýralækni í
broddi fylkingar, þar sem farið var í
markvissan niðurskurð á sýktum og
grunuðum hjörðum, hús og nánasta
umhverfi sótthreinsað og keypt að
lömb úr Vestur-Skaftafellssýslu
eftir fjárleysi um skeið. Þarna
tók meirihluti Fjárborgara þátt í
merkilegri tilraun á landsvísu því
að þar með var lagður grunnur að
þeim aðgerðum sem síðan hefur
verið beitt við útrýmingu riðuveiki
hér á landi og hafa gefist vel.
Talið er að tekist hafi að útrýma
riðuveiki í Fjárborg fyrir fullt og
allt en þar var síðast greind riðuveik
kind 1979. Utan Fjárborgar kom
riðuveiki síðast upp í Reykjavík
1981 og er bæði Reykjavíkur- og
Kópavogsfé, svo og annað fé í
Landnámi Ingólfs Arnarsonar,
sennilega alveg laust við þennan
vágest.
Menningarlegt- félagslegt og
uppeldislegt framlag
Þótt mikið hafi breyst í Reykjavík
á þeim 90 árum sem liðin eru síðan
Fjáreigendafélag Reykjavíkur var
stofnað hefur hlutverk þess ætíð
verið með svipuðum hætti , að stuðla
að sauðfjárbúskap í sátt við umhverfi
og aðra starfsemi í borginni. Hér
hefur verið stiklað á stóru en margt
fleira mætti tilgreina um fjölþætt
starf félagsins. Hafin er ritun sögu
þess.
Lengi framanaf voru bændur á
bújörðum áberandi í hópi fjáreigenda
í Reykjavík. Sá síðasti í hópi
þeirra var Stefnir Ólafsson, bóndi
í Reykjaborg í Laugardal, sem bjó
þar til dauðadags 1993. Síðustu
áratugina hafa allir félagarnir verið
tómstundabændur utan lögbýla,
bæði karlar og konur úr ýmsum
stéttum. Þau taka virkan þátt í
framkvæmd fjallskila á haustin,
mynda þannig félagslegan hlekk
sem skiptir máli fyrir fjárbændur
í aðliggjandi sveitarfélögum, þau
viðhalda menningarlegum arfi sem
er liður í sögu Reykjavíkur og þau
bjóða borgarbörn og foreldra þeirra
velkomin í sauðburð í Fjárborg á
vorin og Fossvallarétt á haustin.
Þess er vert að geta að í eftirtöldum
bókum er að finna margvíslegan
fróðleik um Fjáreigendafélag
Reykjavíkur og fjárbúskap í
Reykjavík:
1. Sveitin við sundin, safn til
sögu Reykjavíkur eftir Þórunni
Valdimarsdóttur, útg. Sögufélag,
Reykjavík 1986.
2. Sveitin í sálinni, búskapur í
Reykjavík og myndun borgar
eftir Eggert Þór Bernharðsson,
útg. JPV útgáfa, 2014.
3. Sauðfjárbúskapur í Kópavogi
eftir Ólaf R. Dýrmundsson,
útg. Sögufélag Kópavogs og
Héraðsskjalasafn Kópavogs,
2017.
Dr. Ólafur R. Dýrmundsson.
Höfundur greinarinnar hefur
haldið fé í Reykjavík, og um skeið
í Kópavogi, síðan 1957.
Ólafur í fjárhúsinu sínu í febrúar 1964 ... Mynd / Úr safni ÓRD
... og 50 árum síðar í Reykjavík sem fyrr. Mynd / HKr.
Símon Sveinsson, einn af stofnendum Fjáreigendafélags Reykjavíkur 1927
og fyrrv. sjómaður á Grímsstaðaholti, með fé sitt í gömlu Fjárborg 1965.
Margt Reykjavíkurfé er mislitt, hér
golsótt og ein golbíldótt til vinstri.
Forystusauðurinn Hringur.
Mynd / ÓRD
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Gúmmíbelti
- Fyrir smágröfur
Fjárhús og hlaða Ólafs R. Dýrmundssonar sem hann byggði í gömlu Fjárborg 1962–1963. Mynd / ÓRD