Bændablaðið - 30.11.2017, Síða 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 30. nóvember 2017
bara í efnisöflun. Þá var ég að heyja
mér heimildir, bæði úr prentuðum
ritum og í skjalasöfnum, einnig að
safna upplýsingum úr munnlegri
geymd. Það var svo ekki fyrr en
á árunum 1997 og 1998 sem ég
byrjaði að skrifa eitthvað að ráði
og fyrsta bókin kom út 1999. Ég
byggði strax grindina að verkinu
og hafði þá ekkert til fyrirmyndar,
nema kannski helst ritið Sveitir og
jarðir í Múlaþingi. Byggðasaga
Skagafjarðar er samt miklu
viðameira verk.
Sem betur fer gerði ég mér
grein fyrir því í upphafi að setja
þyrfti inn í þetta skemmtilegt
efni sem hjálpaði þá þurrum og
leiðinlegum staðreyndatexta. Þessar
innskotsgreinar hafa tvímælalaust
skapað verkinu vinsældir. Þarna
eru sögur af körlum og kerlingum,
draugum og huldufólki. Þá eru líka
vísur og eitt og annað skemmtilegt
og fróðlegt sem tilheyrir hverri
jörð. Þá legg ég mikið upp úr
myndatextum og kem þar fyrir
upplýsingum sem ekki eru í
megintextanum.
Eignarhald á bújörðum rek
ég eins langt aftur og heimildir
finnast. Vinnan við þetta verk
hefur þó þróast og ég er farinn að
vinna suma hluti betur en ég gerði
í fyrsta bindinu. Ég hæli mér líka
af því að strax í fyrsta bindinu setti
ég inn GPS-staðsetningarpunkta á
t.d. seljum, fornum eyðibýlum og
ýmsu fleiru eins og álagablettum.
Þannig geta menn gengið beint að
þessum stöðum. Ég stend í þeirri
meiningu að þetta sé fyrsta ritið þar
sem þetta er gert, a.m.k. með svo
skipulegum hætti. Byggðasagan
kemur því að margvíslegum notum.
Bækurnar eru mikið notaðar, t.d. í
ferðaþjónustu, við skipulagsvinnu
og fornleifaskráningu og
fasteignasalar sækja þangað að
sjálfsögðu upplýsingar.“ Auk þess
sem Byggðasagan verður fjölnota
uppflettirit um allar bújarðir í
Skagafirði.
Munnlegar heimildir hafa reynst
ómetanlegar
Hjalti segist hafa lagt mikið upp úr
því að ná í munnlegar heimildir hjá
fólki sem er staðkunnugt og þekkir
landið sitt.
„Þeir eru færri nú en áður sem
þekkja landið sitt vel. Fólk sem
fæddist í byrjun tuttugustu aldar
gjörþekkti sitt umhverfi. Á þeim
tíma þurfti fólk til sveita að snúast
í kringum búpening sinn sem
fór hingað og þangað og þá var
nauðsynlegt að geta vísað fólki með
því að nota nöfn á kennileitum. Nú
þurfa menn lítið á þessu að halda og
örnefnin eru óðum að týnast. Tilurð
örnefna á sér yfirleitt einhverja sögu
sem í flestum tilfellum er gleymd.
Stundum hef ég náð slíkum sögum
bak við örnefnin.“
Í efnisöflun förum við
byggðasöguritarar á hverja einustu
jörð og yfirleitt oft á hverja. Þá fáum
við upplýsingar úr munnlegri geymd
sem hefðu annars glatast og fáum
líka einhverja þekkingu á landinu
sem við erum að skrifa um. Nú erum
við farnir að sjá fyrir endann á þessu
verki og komnir út í Fljót. Ég hef oft
„unnið framfyrir mig“ ef svo má að
orði komast og talað við fólk sem
ég gat ekki búist við að yrði á lífi
þegar ég kæmi að þeirra búsvæðum.
Þannig hef ég stundum náð í mjög
dýrmæta heimildarmenn í tæka tíð.
Nú eru heilu dalirnir komnir í eyði
og fáir eða engir lengur sem vita
deili á stöðum eða bújörðum sem
löngu eru komnar í eyði. Ég get
nefnt Flókadal í Vestur-Fljótum.
Þar er ég með 20 bæi sem hafa
verið í ábúð einhvern tímann frá
1780. Nú er aðeins búseta á tveimur
þessara bæja. Á þriðja bænum er
reyndar rekið fjárbú, en ábúendur
með aðsetur á Sauðárkróki. Á þessu
svæði eru fjölmargir heimildarmenn
horfnir. Fyrir 20 árum síðan ræddi ég
ítarlega við mann sem bjó innarlega
í Flókadal og gjörþekkti hann. Hann
fór með mér ríðandi um innhluta
dalsins og reyndist mér ómetanlegur
heimildarmaður. Hann er nú dáinn
fyrir áratug síðan.“
Eins og Hjalti nefnir er slík
söfnun á munnlegum heimildum
ómetanleg fyrir framtíðina. Hann
bendir á að þegar heimildamaður
sé horfinn af vettvangi, þá er ekki
á öðru að byggja en skráðum
heimildum. Eins og menn þekkja eru
slíkar heimildir síður en svo alltaf
réttar jafnvel þótt þær séu ritaðar á
sama tíma og atburðir gerðust. Eftir
því sem lengra líður fækkar þeim
sem leiðrétt geta heimildirnar. Því
verður sagnfræðin stundum röng
vegna rangra heimilda.
Ritaðar heimildir geta í sumum
tilfellum verið rangar
„Sá sem skrifar sögu verður
óhjákvæmilega að leggja mat á
fyrirliggjandi heimildir og reynir
að finna það sem réttast er og
ritaðar heimildir eru stundum ekki
áreiðanlegri en munnlegar,“ segir
Hjalti. „Það er bara eðlilegt og oft
óhjákvæmilegt að sá sem skrifar
frétt eftir einhverjum öðrum, og
þekkir sjálfur ekki vel til, getur
hæglega misskilið hluti og farið
rangt með.“
Hann segir að ekki þurfi
annað en að fletta dagblöðum
í dag. Í fréttum verða stundum
skekkjur og staðreyndavillur
sem enginn áttar sig á nema
sá sem stóð nærri viðkomandi
atburði. Staðreyndirnar fari því
ekki alltaf réttar í prent, en verða
samt uppleggið að heimildum
sagnfræðinga í framtíðinni.
„Í opinberum heimildum eru
einnig stundum rangfærslur. Nægir
að nefna þar framtöl búpenings,
það er ekkert nýtt að menn séu að
reyna að stela undan skatti og telji
ekki rétt fram. Maður hefur lent
í því að opinberar heimildir, sem
eiga að vera réttar, stangast á eða
stemma ekki þegar á reynir. Svo er
sannleikur líka oft afstæður. Tveir
aðilar sem verða vitni að sama
atburði geta hæglega upplifað hann
á mismunandi hátt.“
Hefði kannski þurft að byrja
30 árum fyrr
„Ég finn til þess að hafa oft orðið
of seinn eða á síðustu stundu að ná
ýmsum munnlegum heimildum. Í
raun hefði ég þurft að byrja 30–40
árum fyrr. En þá hefði ég heldur
ekki haft þá tækni sem nú er til
staðar til upplýsingaöflunar og
úrvinnslu. Maður hefði þá ekki
heldur getað gert þetta verk eins
vel úr garði og nú er kostur með
allri tækninni sem til er í dag,“ segir
Hjalti Pálsson. /HKr.
DALEN snjóblásarar
Snjóblásararnir frá DALEN hafa slegið í gegn á undanförnum árum
enda gífurlega öflugir og vel smíðaðir blásarar.
Alla DALEN snjóblásara er hægt að nota á þrjá vegu: Að framan, að aftan og dreginn.
Eigum fyrirliggjandi blásara á lager til afhendingar strax.
Við bjóðum DALEN snjóblásarana í þremur stærðum:
DALEN 2014
Vinnslubreidd: 270
Aflþörf: 160 hö.
DALEN 2013
Vinnslubreidd: 255 cm
Aflþörf: 130 hö.
DALEN 2011
Vinnslubreidd: 233 cm
Aflþörf: 100 hö.
ÞÓR FH
REYKJAVÍK:
Krókháls 16
Sími 568-1500
AKUREYRI:
Lónsbakka
Sími 568-1555
Vefsíða:
www.thor.is