Bændablaðið - 30.11.2017, Síða 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 30. nóvember 2017
Framleiðnisjóður
landbúnaðarins kallar
eftir umsóknum 2018
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
Hvanneyri – 311 Borgarnes
Sími 430-4300
Framleiðnisjóður landbúnaðarins er leiðandi stuðningsaðili
við þróunar- og nýsköpunarstarf landbúnaðarins og kallar
nú eftir umsóknum um styrki í eftirfarandi flokkum:
# Umsóknir um styrki til verkefna á sviði nýsköpunar og þróunar
á bújörðum á vegum bænda (B flokkur). Forgangs njóta þau
verkefni sem fela í sér verulega nýbreytni og sem líkleg eru til
að leiða af sér umtalsverða atvinnusköpun.
# Umsóknir um námsstyrki til nema í landbúnaðarvísindum (MSc.
eða PhD). Forgangs njóta þeir umsækjendur sem sýna fram á í
umsókn sinni að viðkomandi sé líklegur til að starfa að eflingu
landbúnaðar í náinni framtíð. Í því samhengi er horft bæði til
vals námslínu, sem og efnisvals lokaverkefna.
Umsóknum skal skilað á sérstökum umsóknareyðublöðum
sem er að finna á heimasíðu sjóðsins, www.fl.is. Eyðublöð
sjóðsins hafa nýlega verið uppfærð og ekki verður tekið við
umsóknum á eldri eyðublöðum. Mikilvægt er að vanda til
gerðar umsókna og gera grein fyrir öllum efnisatriðum
sem farið er fram á í umsóknareyðublöðunum.
Umsóknarfrestur er til 29. janúar 2018 (póststimpill gildir).
Umsóknum skal skilað til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins,
Hvanneyrargötu 3, 311 Borgarnes.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Framleiðnisjóðs
landbúnaðarins, Hvanneyri. Sími 430-4300 / netfang fl@fl.is.
Styrkir þessir eru auglýstir með fyrirvara um fjárheimildir
Alþingis til sjóðsins fyrir árið 2018.
Umhverfismiðstöð Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum
í eftirtaldar bifreiðar og tæki:
» Volkswagen Transporter dobbule cab Syncro 4x4, árgerð 1996.
» Ford Escort CLX, árgerð 1999.
» Valmet 6400, árgerð 1996.
» Epoke PSL 6,5, árgerð 1987.
» Drifskaftsknúinn sand-/saltdreifari, árgerð 2012.
» Wirtgen W350 malbiksfræsari, árgerð 2000.
Allar frekari upplýsingar um tækin veitir Jónas Vigfússon
í gegnum netfangið jonasv@akureyri.is
Myndir af tækjunum má sjá á heimasíðu Akureyrarbæjar
www.akureyri.is
Tilboðum skal skila inn til Umhverfis- og mannvirkjasviðs
Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 4. hæð fyrir klukkan 15.00
mánudaginn 4. desember 2017 í lokuðum umslögum
merktum því/þeim tæki/tækjum sem tilboðið nær til.
Tilboð verða opnuð á sama tíma og stað að viðstöddum
þeim bjóðendum sem þess óska. Heimilt er að senda
tilboð í tölvupósti á netfangið dora@akureyri.is
Umhverfis- og mannvirkjasvið áskilur sér rétt til að taka
hvaða tilboði sem er eða hafna öllum tilboðum.
UMHVERFISMIÐSTÖÐ AKUREYRARBÆJAR
- TIL SÖLU BIFREIÐAR OG TÆKI -
• FASTEIGNASALA NORÐURLANDS • Sala - verðmat - þjónusta •
GUÐMUNDUR BJÖRNSSON
löggiltur fasteigna- og skipasali662 4704 fastnord.isgummi@fastnord.is
Jólamatarmarkaður Búrsins var
haldinn í Hörpu um síðastliðna
helgi.
Bændur, sjómenn og smá-
framleiðendur matvæla komu með
afurðir sínar og vörur til að kynna
og leyfa gestum að smakka á.
Ljósmyndari blaðsins var á
svæðinu á laugardeginum og tók
nokkrar myndir af sölubásunum.
Jólamatarmarkaður Búrsins haldinn í Hörpu:
Hangikjöt frá Helllisbúanum
og útigrísir frá Bjarteyjarsandi
Eiður E. Kristinsson og Anna Björg Stefánsdóttir búa í Hrólfsstaðahelli með hesta og kindur. Síðastliðið haust tóku
þau kjötvinnslu í notkun þar sem þau vinna lamba- og hrossakjöt til að selja beint frá býli.
Bændurnir í Hrólfsstaðahelli markaðs-
setja vörur sínar undir vörumerki Hellis-
búans.
Gómsæt heitreykt Hólableikja frá
Kokkhúsi – krydduð með hvönn.
Svava Hrönn Guðmundsdóttir fram-
leiðir þrjár gerðir af sælkerasinnepi.
Reykjavík Foods kynnti nýja vöru á
markaðnum; niðursoðið lamb.
Guðmundur bóndi Sigurjónsson
á Bjarteyjarsandi var með eigið
hangikjöt og afurðir af útigrísunum.
Myndir / smh