Bændablaðið - 30.11.2017, Side 53
53Bændablaðið | Fimmtudagur 30. nóvember 2017
Spunasystur
Rangæska hópnum „Spunasystur“
var einnig boðið á Ullarvikuna.
Spunasysturnar flugu um Glasgow
til Leirvíkur. Fyrir hópnum fór Maja
Siska, hún kom með sýninguna sína
„Óður til kindarinnar“ sem vakti
mikla athygli og aðdáun. Maja var
einnig með námskeið í lokkaspuna
og Ingibjörg Sveinsdóttir kenndi um
opnun og lista á lopapeysum.
Aukið samstarf sunnlenskra
ullarkvenna er mjög ánægjulegt.
Austan Þjórsár hefur verið meiri
áhersla á spuna, það skilar sér t.d.
í „Uppspuna“, spunaverksmiðju
Huldu og Tyrfings, þar sem framleitt
er mjög fallegt band. Einnig má
þakka Spunasystrum fyrir töluverða
vakningu um feldfjárrækt.
Þingborgarkonur og Spunasystur
fóru saman í hópferð (æfing í vinstri
akstri) í veðri sem minnti helst á
íslenska haustlægð. Við heimsóttum
m.a. bónda sem var með hjaltneskar
stuttrófukindur, flestar mislitar,
ærnar kollóttar en hrútarnir
sívalhyrndir. Útlitið er kunnuglegt
og litanöfnin sömuleiðis, moorit
og moget heyra íslensk eyru sem
mórautt og mögótt.
Því miður verður þetta fé
samt undir í samkeppninni um
afurðasemi, fé af „ensku kyni“
skilar þyngri skrokkum og meiri ull.
Mikil virðing er borin fyrir
ullinni á Hjaltlandi.
Við hliðina á hótelinu þar sem við
gistum eru bækistöðvar Jamieson
og Smith, þeir kaupa ull frá
bændum og flokka, lita og spinna.
Þeir flokka reyfið í fimm hluta,
mjög nákvæm flokkun. Ullin er
síðan send niður á meginlandið í
spuna. Þarna keyptum við auðvitað
töluvert af bandi.
Mesta athygli okkar vakti
hins vegar Uradalebandið. Ullin
er frá þrem lífrænt vottuðum
sauðfjárbýlum sem búa með
hjaltneskt sauðfé, margir tónar af
sauðalitum og sömuleiðis band litað
með lífrænt vottuðum aðferðum.
Þetta band hyggjumst við í Þingborg
flytja inn og selja í versluninni.
Framtíðarsýn Þingborgar
Starfið í Þingborgarhópnum er
mjög gefandi og skemmtilegt.
Hópurinn hefur heldur verið að
stækka undanfarið, ,,gamlar“
Þingborgarkonur hafa verið að
koma aftur og eins hafa bæst í
hópinn nýjar konur sem allar
hafa eitthvað nýtt fram að færa.
Gæðaeftirlitið er alltaf jafn strangt
í Þingborg og það hefur skilað sér
í góðu orðspori.
Lopinn okkar er líka mjög
sérstakur, í náttúrulegum litum
og sérunninn fyrir okkur af Ístex.
Forsvarsmenn Ístex hafa sýnt okkur
sérstaka þolinmæði og kunnum við
þeim miklar þakkir fyrir þeirra
þátt í velgengni okkar. Þeir leyfa
okkur að fara í gegnum ullina
í Þvottastöð Ístex á Blönduósi
og velja það sem við viljum fá
í lopann okkar. Það er fróðlegt
að skoða ullina í þvottastöðinni,
margir bændur ganga mjög vel
um ullina en því miður eru alltof
margir pokar sem við gerum ekkert
annað við en loka aftur. Skítug ull
og stundum jafnvel blaut og þar
af leiðandi illa lyktandi. Íslenskir
bændur margir hverjir þurfa að
taka sig vel á í meðferð ullar, það
gengur ekki að senda ull sem er
skemmd af húsvist. Í það minnsta
lítum við ekki við svoleiðis ull.
Það eru verðmæti fólgin í ullinni
og því allra hagur að hugsa sem
best um hana.
Í janúar höldum við
Þingborgarkonur á Blönduós enn
eina ferðina, það er alltaf tilhlökkun
þó það sé mikil vinna að velja
ullina í lopann. Við vonum að við
fáum mikið af fallegri ull í öllum
litum, við hvetjum því alla bændur
sem nú á næstu vikum rýja sitt fé
að vanda sig í meðferð ullarinnar.
Katrín Andrésdóttir
Margrét Jónsdóttir Syðra-Velli
Á FAGLEGUM NÓTUM
Á öðrum kvöldfyrirlestri kynnti Hildur Hákonardóttir bók sína um
kljásteinavefstaðinn. Meðhöfundar Hildar og með henni á myndinni eru
þær Elizabeth Johnston and Marta Kløve Juuhl.
Málin rædd við sauðfjárbónda.
Samstilling gangmála áa
Fyrir um 50 árum var farið að
nota progestagen svampa víða um
heim til að samstilla gangmál áa á
fengitíma.
Á námsárum mínum í Wales
kynntist ég og notaði þessa tækni
og hóf tilraunir með hana við
Bændaskólann á Hvanneyri veturinn
1972. Þessi nýjung hlaut skjóta
útbreiðslu hér á landi, einkum við
skipulagningu sæðinga, og hafði
mikið hagnýtt gildi um árabil.
Reynslan hér á landi
Þótt tilraunir mínar á 8. áratug
liðinnar aldar bentu ekki til þess
að svampameðferðin skaðaði
frjósemi áa fóru síðar að koma fram
vísbendingar um nokkra lækkun á
fanghlutfalli og dálitla á frjósemi
mældri sem fjöldi fæddra lamba hjá
sæðingaám.
Með úrvinnslu umfangmikils
gagnasafns úr sæðingunum á
seinni árum staðfesti dr. Jón Viðar
Jónmundsson í grein í síðasta
Bændablaði að samstillingin lækki
fanghlutfallið um 20% og frjósemina
töluvert. Allt virðist vera með
eðlilegum hætti þegar hleypt er til
samstilltra áa.
Æskilegt væri að sæðingaskýrslur
yrðu kannaðar betur því að þar eiga
að vera skráðar upplýsingar frá
einstökum búum um þætti á borð
við tímalengd frá úrtöku svampa til
sæðingar. Utan ákveðinna marka
gæti sú tímasetning haft veruleg
áhrif á árangurinn. Þá má hugsanlega
bæta fanghlutfallið með því að sæða
tvisvar, t.d. upp úr hádegi og aftur
um kvöldið. Það virðist til bóta en
frekari rannsókna er þörf.
Ýmsar aðferðir reyndar
Ýmsar aðrar lyfjaaðferðir við
samstillingu gangmála hafa verið
reyndar, m.a. hér á landi, svo sem
með prostaglandini sem er mun
vandmeðfarnara, en engar þeirra
hafa tekið svömpunum fram , og
alls ekki með tilliti til kostnaðar og
dýravelferðar.
Þrátt fyrir framangreinda vankanta
má þó reikna með að svamparnir
verði notaðir áfram, einkum í smærri
hjörðum við skipulagningu sæðinga
og til að hagræða burði hjá ám sem
hleypt er til. Sumir meta það mikils
að geta látið ærnar bera á nokkrum
dögum í stað tveggja til þriggja vikna
á vorin.
Hvað sæðingarnar varðar gæti
skipt miklu máli ef unnt væri að
bæta árangur af notkun djúpfrysts
sæðis því að þá mundi þörfin fyrir
samstillingu gangmála dragast
enn meira saman. Vonandi tekst
sæðingastöðvunum okkar að feta
sig inn á braut Norðmannna þar sem
notkun djúpfrysts sæðis hefur þróast
með mjög jákvæðum hætti.
Minnkandi lyfjanotkun
Eins og staðan er í dag er reynt að
draga sem mest úr lyfja- og þar með
hormónanotkun í búfjárræktinni og
gengur lífræni geirinn lengst í þeim
efnum þar sem flest þau lyf sem þekkt
eru í hefðbundinni búfjárframleiðslu
eru annað hvort bönnuð eða
takmörkuð við neyðartilvik.
Því er töluverður áhugi á því
meðal búvísindamanna og dýralækna
að finna og þróa aðrar leiðir til að
samstilla gangmál áa. Þó hafa ekki
enn komið fram aðrar meðferðir,
byggðar á lyfjum eða öðrum
efnum, sem geta t.d. komið í stað
svampameðferðar fyrir ær. Einn
helsti kosturinn við samstillingu
með hormónum er tiltölulega mikil
nákvæmni, og á það ekki síst við um
svampana, hvort sem svamparnir eru
hafðir í ánum 13,14 eða 15 daga.
Náttúrulegar aðferðir
Vissulega væri það til mikilla
framfara ef unnt yrði að þróa
náttúrulegar aðferðir til samstillingar
gangmála áa sem gætu komið að
mestu eða öllu leyti í stað hormóna
og annarra lyfja.
Tiltæk er töluverð vitneskja um
þessi efni, ekki síst í sauðfé, en
þar eru hin svokölluðu hrútaáhrif
þekktust. Athugun á þeim var reyndar
dálítill liður í doktorsverkefni mínu í
Wales á árunum 1969–1972 en þar
var í fyrsta skipti í heiminum sýnt
fram á samstillingaráhrif frá hrútum
á gimbrar við kynþroska. Áður hafði
slíkt komið fram hjá fullorðnum ám
í nokkrum löndum þegar þær voru
einangraðar frá hrútum í a.m.k.
nokkrar vikur fyrir fengitíma. Egglos
og beiðsli urðu gjarnan á ákveðnum
tíma, jafnvel fáeinum dögum, eftir að
hrútarnir komu aftur til ánna. Lyktin
ein nægði.
Þá hafa komið fram sterkar
vísbendingar um að annars konar
snögg áhrif á ær, skömmu fyrir
fengitíma, geti framkallað egglos
og beiðsli, sem sagt töluverða og
jafnvel all góða samstillingu. Þar
hefur m.a. verið tilgreindir þættir á
borð við langflutninga og rúning
sem geti valdið snöggri streytu eða
sjokki er orsaki egglos og jafnvel
beiðsli, trúlega vegna áhrifa á
hormónastarfsemina í ánni.
Rannsókna er þörf
Þótt enn hafi ekki tekist að þróa
náttúrulegar aðferðir til að samstilla
gangmál áa með sambærilegri
nákvæmni og t.d. svampameðferðin,
finnst mér full ástæða til að við
gefum þeim gaum. Það hefur ekki
enn verið gert hér á landi.
Öðru hvoru hafa bændur sagt
mér sögur um tilvik þar sem
t.d. snögg áhrif frá hrútum eða
haustrúningur virðast hafa haft
samstillingaráhrif á ærnar. Því
legg ég til að Landbúnaðarháskóli
Íslands, Ráðgjafarmiðstöð
landbúnaðarins ehf. og báðar
sauðfjársæðingastöðvarnar beiti sér
fyrir rannsóknum á þessu sviði, helst
á nokkrum búum, og væri ég til í að
leggja á ráðin um skipulagninguna.
Slíkar rannsóknir gætu haft bæði
vísindalegt og hagnýtt gildi fyrir
sauðfjárræktina.
Dr. Ólafur R. Dýrmundsson
Höfundur er sjálfstætt starfandi
búvísindamaður sem hefur unnið
töluvert við æxlunarlíffræðilegar
rannsóknir á sauðfé og stundar
örbúskap með kindur o.fl.
Kistumel 2 // 116 Reykjavík
Sími 480 0444 // vinnuvelar@vinnuvelar. is
www.vinnuvelar.is
Bobcat er með mikið úrval
skotbómulyftara fyrir bændur,
verktaka og önnur fyrirtæki.
Getum við hagnýtt hrútaáhrif til samstillingar gangmála?