Bændablaðið - 30.11.2017, Blaðsíða 57
57 Bændablaðið | Fimmtudagur 30. nóvember 2017
Páfuglasjal
HANNYRÐAHORNIÐ
Kæru viðskipta vinir, um leið og
við óskum ykkur gleðilegra hátíðar
langar okkur að segja ykkur að við
höfum tekið ákvörðun um að taka
okkur gott og einstaklega notalegt
jólafrí. Við ætlum því að hafa lokað
hjá okkur í Gallery Spuna frá og
með 19. desember til og með 2.
janúar 2018.
Með þessum fréttum deilum við
með ykkur þessari æðislegu uppskrift
af páfuglasjali. Hægt er að versla í það
í netverslun okkar, galleryspuni.is, og
svo eru þið auðvitað ávallt velkomin
til okkar í verslunina í Grindavík.
Páfuglasjal frá DROPS Design:
Garðaprjóns DROPS sjal úr „ Delight“ með snúningum
DROPS Design: Mynstur nr de-097 (145/3)
Garnflokkur A
Stærð:
Breidd efst: ca 128 cm
Hæð: ca 70 cm
Efni: DROPS DELIGHT frá Garnstudio
350 gr litur nr 07, beige/blár
DROPS HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 – eða sú stærð
sem þarf til að 21 l og 41 umf með garðaprjóni verði
10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL NR 3 – fyrir lista
GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.
LEIÐBEININGAR:
Í hvert skipti sem snúið er við í miðri umf er 1. l tekin
óprjónuð. Herðið á bandi og prjónið síðan áfram eins
og áður. Þetta er gert til þess að koma í veg fyrir göt
í skiptingunum.
SJAL:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 60 l á hringprjóna nr 4 með Delight. Prjónið
garðaprjón með byrjun frá réttu þannig: Prjónið
1 umf þar til 58 l eru eftir, snúið við og prjónið til
baka. 1 umf þar til 56 l eru eftir, snúið við og prjónið
til baka. Prjónið 2 l í fyrstu l, prjónið þar til 54 l eru
eftir, snúið við og prjónið til baka. 1 umf þar til 52 l
eru eftir, snúið við og prjónið til baka. 1 umf þar til
50 l eru eftir, snúið við og prjónið til baka. Prjónið 2
l í fyrstu l, prjónið þar til 48 l eru eftir, snúið við og
prjónið til baka. Haldið áfram með snúninga þar
til 2 l eru færri en í fyrri umf fyrir hvert skipti sem
snúið er við þar til prjónaðar hafa verið 2 umf yfir 2
síðustu l, prjónið 2 umf yfir allar l. JAFNFRAMT í 6.
hverri umf eru prjónaðar 2 l í fyrstu l í umf frá réttu.
Þegar prjónuð hefur verið 1 heil mynstureining (=
60 umf)hefur verið aukið út um 10 l = 70 l.
Næsta mynstureining er prjónuð frá réttu
þannig: Prjónið 1 umf þar til 68 l eru eftir, snúið
við og prjónið til baka. 1 umf þar til 66 l eru eftir,
snúið við og prjónið til baka. Prjónið 2 l í fyrstu l,
prjónið þar til 64 l eru eftir, snúið við og prjónið til
baka. 1 umf þar til 62 l eru eftir, snúið við og prjónið
til baka. 1 umf þar til 60 l eru eftir, snúið við og
prjónið til baka. Prjónið 2 l í fyrstu l, prjónið þar til
58 l eru eftir, snúið við og prjónið til baka. Haldið
áfram með snúninga þar til 2 l eru færri en í fyrri umf
fyrir hvert skipti sem snúið er við þar til prjónaðar
hafa verið 2 umf yfir 2 síðustu l, prjónið 2 umf yfir
allar l. JAFNFRAMT í 6. hverri umf eru prjónaðar 2 l
í fyrstu l í umf frá réttu. Þegar prjónuð hefur verið
1 heil mynstureining (= 70 umf) hefur verið aukið
út um 12 l = 82 l.
Haldið áfram alveg eins, fyrir hverja mynstureiningu
sem prjónuð er verða fleiri og fleiri l í
mynstureiningunni og mynstureiningin nær yfir
fleiri umf.
Haldið áfram þar til prjónaðar hafa verið 8
mynstureiningar – nú eru ca 206 l á prjóni.
Fellið af. Herðið að í miðjunni með því að þræða band
í gegnum innstu l og herðið að.
HEKLAÐUR LISTI:
Heklið lista kringum allt sjalið með heklunál nr 3 með
Delight þannig: Heklið 1 fl, * 3 ll, 1 st í 1. ll, hoppið
fram um ca 1 cm, 1 fl *, endurtakið frá *-* í kringum
allt sjalið og endið með 1 kl í fyrstu fl.
Fjölskyldan Gallery Spuna
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
3 8 2
8 2 1 7 9
6 7 5 3 1
3 4 2 7
6 5
6 9 8 4
4 9 3 1 8
1 6 4 9 5
2 1 4
Þyngst
5 4 6 3
7 3 1 2
2 6
4 3 5 7 9
2 1 9 8 6
7 9
2 4 5 1
6 8 2 4
9 3 2 4
7 2 1
5 6
1 6 8
2 7
9 7 4
1 8
4 9 5
8 7 3 1
8 5 4
1 3 6
9
9 1 8
6
7 5 2
6
2 1 4
7 8 3
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Hrossabóndi eða hundatemjari
Erla er mikill dýravinur og
náttúrubarn. Henni finnst gaman í
fjárhúsunum með pabba sínum og
vera á hestbaki með vinum. Hún
er svo heppin að hafa getað verið
aðstoðarmanneskja í hestaleigu
hjá Active North síðastliðin tvö
sumur.
Nafn: Erla Bernharðsdóttir.
Aldur: 12 ára.
Stjörnumerki: Ljón.
Búseta: Ærlækjarsel í Öxarfirði.
Skóli: Öxarfjarðarskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Íþróttir og myndmennt.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Hestur
og hundur.
Uppáhaldsmatur: Pitsa.
Uppáhaldshljómsveit: Metallica og
fleiri.
Uppáhaldskvikmynd: Veit ekki.
Fyrsta minning þín? Þegar ég var 3
ára og stalst inn í búr og flysjaði allar
mandarínurnar.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég æfi á gítar og bassa.
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór? Hrossabóndi eða
hundatemjari.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Fór ein (ekki með neinum
úr fjölskyldunni) til New York, þegar
ég var 9 ára.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt
í sumar? Ég fór í nokkurra daga
hestaferð með fjölskyldu og vinum.
Næst » Erla skorar á Þorstein Sveinsson á
www.galleryspuni.is
Alpaca garn á 30% afslætti
til 31. desember
Lokað verður 19. desember - 2. janúar
Hægt að panta í vefverslun,
pantanir afgreiddar eftir 2. janúar.
Gleðilega hátíð
TURI .is
Spennandi
saga eftir
húnvetnskt
skáld
Pöntun á www.godar-baekur.is – frí heimsending
Látið þessa bók
ekki fram hjá
ykkur fara
Bændablaðið
Sendið jólakveðju til viðskiptavina
Auglýsingasíminn er 563-0303