Bændablaðið - 01.11.2018, Blaðsíða 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 1. nóvember 201846
Á Landbúnaðarsýningunni í
Laugardal var mikið af tækjum
sem gaman hefði verið að prófa.
Við innganginn á sýningunni stóð
Can-am Traxter, opinn pallbíll
sem ég kýs að kalla „Bóndabíl“
og er aðeins breiðari en fjór-
og sexhjól sem umboðsaðilinn
Ellingsen var að sýna.
Þessi vinnubíll er skráður sem
traktor og er þriggja manna bíll með
palli. Í lok sýningarinnar fékk ég að
prófa gripinn á götum Reykjavíkur
og eftir að Arnar sölumaður hafði
farið yfir helsta búnað bílsins og
sett sætishitarann í bílstjórasætinu
á mesta hita skellti ég mér út í
umferðina.
Ekki krafist hjálmaskyldu, þó
mæli ég eindregið með því
Bíllinn er ætlaður fyrir þrjá og er
með öryggisbelti og öryggisnet í
stað hurðar og þar sem hann er með
veltibúr er ekki skylda að vera með
hjálm þegar honum er ekið.
Við prófun á að hreyfa mig í
ökumannssætinu og líkja eftir því
að ég væri að velta bílnum sá ég að
efsti hluti líkamans náði að fara vel
út fyrir öryggisnetið og veltibúrið
og hefði ég hæglega getað barið
höfðinu í jörðina við veltu. Af
þessum sökum var ég með hjálm því
ég tók vel á bílnum og reyndi hann í
miklum halla í húsgrunni í borginni
(vel stöðugur og þolir mikinn halla).
Kraftmikil vél og mikið
torfærutæki
„Bóndabíllinn“ er skráður sem
dráttarvél og innfluttur í samræmi
við það, þá er reglan sú að bíllinn
er innsiglaður á hámarkshraðanum
60 km á klukkustund.
Í prufuakstrinum innanbæjar í
Reykjavík var ég alltaf eldsnöggur
að ná hámarkshraðanum 60 og ef
teknar voru beygjur á mikilli gjöf
„driftaði“ bíllinn nokkrum sinnum
hjá mér. Greinilegt að vélin er að
skila góðum krafti niður í jörðina.
Í húsgrunni sem ég stalst til að
keyra bílinn í var mikið af stórgrýti.
Þarna prófaði ég að láta bílinn labba
yfir stórgrýtið í lága drifinu með öll
hjól læst. Það var ekki laust við að ég
væri aðeins smeykur þegar ég varð
var við að ýmist fram eða afturhjól
fóru á loft, en alltaf hélt bíllinn áfram
lengra og lengra upp í grjóthauginn
þar til mitt hugleysi sagði stopp.
Vél, útbúnaður og grunnverð
Vélin í Traxter er V 2, 799,9cc
bensín-Rotaxvél og skilar 50 hest-
öflum, fjöðrunin að framan og aftan
eru 25,4 cm, hæð undir lægsta punkt
er 28cm, burðargeta er 680 kg og á
pallinn sem er 96,5 X 138,4 X 30,5
cm má setja 390 kg.
Dráttargeta er 907 kg,
bensíntankurinn tekur 40 lítra og er
bíllinn ætlaður fyrir þrjár persónur
að hámarki.
Bíllinn sem ég prófaði var
á upprunalegum dekkjum og
felgum eins og hann kemur úr
verksmiðjunni sem er 27 x 9 x 14
tommu felgustærð (hægt að setja
mun stærri dekk undir bílinn þar
sem plássið er mikið). Grunnverð
á Can-am Traxter er 2.990.000
kr. án nokkurs aukabúnaðar, en
prufubíllinn var afhentur nýjum
eigendum með mikið af aukabúnaði.
Prufubíllinn seldur og settur á
belti strax eftir sýningu
Strax eftir sýninguna fór bíllinn í
Ellingsen í breytingu fyrir nýjan
eiganda sem fékk bílinn afhentan á
beltum. Beltin sem sett voru undir
bílinn má keyra á öllu undirlagi og
gefa mikið flot í snjó og votlendi og
fer mun betur með gróið land heldur
en venjulegir hjólbarðar.
Ókosturinn við belti er mest í
hraða, en með belti á flestum tækjum
er niðurgírunin á bilinu 30–50%
og við prófun á þessum bíl sýndi
hraðamælirinn 44 en GPS mæling
var 26 km á klukkustund. Þannig
að á þessum beltum er niðurgírunin
nálægt 40%. Hægt er að fá mikið af
aukahlutum með bílnum aukalega
s.s. hús, hliðarhurðir, framrúðu,
miðstöð, hita í stýrið og margt fleira.
Leitaði upplýsinga hjá Varginum
Margir þekkja til „snapparans“,
eða „Vargsins“ sem er veiðimaður
á Snæfellsnesi og víðar, en hann á
svipað útbúinn beltabíl sem hann
notar mikið við minkaveiðar.
Minkur í íslenskri náttúru er að
mínu mati stærsta umhverfisslys
Íslandssögunnar og ætti að leyfa
að ganga ansi langt hvað varðar
veiðiaðferðir við útrýmingu á
honum, en þó innan skynsamlegra
marka.
Vitandi um hans notkun á sínum
beltabíl spurði ég hann um helstu
ráð varðandi kosti belta. Hann sagði
mér að sinn bíll væri á beltunum
allt árið og væri mikið notaður.
Aðspurður um ráð varðandi endingu
á beltinu þá sagðist hann vera farinn
að forðast að nota bílinn á beltunum
þegar þurrt er, en honum finnst
beltin slitna of mikið við slíkar
aðstæður. Í bleytu eru beltin betri
en allt annað og skilja nánast engin
för eftir í náttúrunni.
Allar nánari upplýsingar veita
sölumenn hjá Ellingsen eða á
vefslóðinni www.ellingsen.is.
É ÁV LAB SINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
– Fjölnota tæki með traktorsskráningu
Þyngd 673 kg
Hæð 1.930 mm
Breidd 1.575 mm
Lengd 3.050 mm
Helstu mál og upplýsingar
Myndir / HLJ