Bændablaðið - 01.11.2018, Blaðsíða 39

Bændablaðið - 01.11.2018, Blaðsíða 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 1. nóvember 2018 39 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Eigum til haugsugur frá Hispec á lager. Tökum einnig á móti pöntunum fyrir vorið. HISPEC HAUGSUGUR Heimsmarkaður fyrir lífrænt vottaðar vörur hefur meira en fjórfaldast frá árinu 2001. Framleiðendum hefur fjölgað og land hagnýtt til lífrænnar ræktunar, beitar og jurtasöfnunar vaxið hröðum skrefum. Eftirspurnin fer vaxandi og hefur verið meiri en framboðið. Langstærsti markaðurinn árið 2016 var Bandaríkin, á eftir honum komu Þýskaland og Frakkland. Í skýrslunni The World of Organic Agriculture, sem kom út í ár, má finna ítarlegar upplýsingar um þróun lífræns landbúnaðar á heimsvísu. En hvað er lífræn vottun? Lífræn vottun er staðfesting faggildrar vottunarstofu á því að vara uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til lífrænnar landbúnaðarframleiðslu. Þær kröfur byggja á reglugerðum sem Evrópusambandið gefur út og innleiða yfirvöld í hverju landi þær í lög og annast framkvæmdina. Hér á landi er það í höndum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og Matvælastofnunar. Löggjöfin tekur til framleiðslu, vinnslu, flutnings, geymslu og dreifingar lífrænna vara. Vottunarstofan Tún gefur út reglur um lífrænar aðferðir byggðar á löggjöfinni. Vottun veitir handhafa rétt til að nota vottunarmerki á umbúðir og í markaðssetningu. Vottunarmerki Merki landa eru ólík og má sjá nokkur þeirra á mynd hér til hliðar. Vörur vottaðar hér á landi bera merki Túns en vörur vottaðar í öðrum löndum bera merki viðkomandi lands eða vottunarstofu, t.d. Soil Association í Bretlandi. Eins er löndum innan ESB og EES heimilt að nota merki Evrópusambandsins, Evrópulaufið, ásamt merki þess sem vöruna vottaði. Í Bandaríkjunum er merki bandaríska landbúnaðar- ráðuneytisins, USDA Organic, notað. Gagnkvæm viðurkenning er á milli Evrópusambandsins og Bandaríkjanna á Evrópulaufinu og USDA Organic. Ekki er óalgengt að framleiðendur sæki um að nota fleiri en eitt merki til að tryggja að neytendur, í þeim löndum sem þeir flytja vörur sínar til, þekki merkið. Hvað er hægt að votta lífrænt? Matvæli, hreinlætis- og snyrtivörur sem og vörur eins og fatnað sem eiga uppruna í jurtaríkinu, búfé og eldisfiski er hægt að votta lífrænar. Náttúruafurðir eins og villibráð, vatn, salt og ýmis steinefni falla ekki undir þessar reglur, en unnt er að votta þær á grundvelli sjálfbærni- og umhverfisstaðla. Hvað varð til þess að lífrænar aðferðir voru þróaðar? Frá sjónarhóli ræktunar þá voru það áhyggjur manna af afleiðingum þaulræktunar, mikillar notkunar kemísks áburðar, sívaxandi notkunar eiturefna og erfðabreytinga á umhverfið og heilsu neytenda. Hvað varðar búfé þá voru það áhyggjur manna af afleiðingum þauleldis, þrengslabúskapar og langvarandi innivistar, svo og sívaxandi notkunar hormóna og sýklalyfja sem vaxtarhvata og til að fyrirbyggja sýkingar, á velferð og heilsu dýranna. Þegar kemur að vinnslu matvæla þá voru það áhyggjur manna af afleiðingum geislunar matvæla, sívaxandi notkunar kemískra aukefna og vinnsluaðferða sem draga úr næringargildi, fyrir heilsu neytenda. Hverjar eru helstu kröfurnar til framleiðslu lífrænna afurða? Í stuttu máli byggir lífræn ræktun á frjósömum jarðvegi, lífrænum áburði, náttúrulegum/lífrænum vörnum og banni við notkun erfðatækni. Ræktun lífræns búfjár gerir mjög ríkar kröfur um aðbúnað, rými í húsum og kost á útivist allt árið til að tryggja aðstöðu til eðlislægrar hegðunar. Gefið er lífrænt fóður og beitt er náttúrulegum aðferðum eins og kostur er til að fyrirbyggja sjúkdóma. Þá er notkun hormóna og annarra vaxtarhvetjandi efna bönnuð. Þegar kemur að vinnslu er óheimilt að geisla lífræn matvæli, strangar reglur gilda um notkun aukefna og vinnsluaðferðir og krafist er skýrrar aðgreiningar vottaðra hráefna frá óvottuðum á öllum stigum vinnslunnar. Markmiðið Hvert er svo markmiðið með þessu öllu saman? Heilbrigði allrar lífkeðjunnar: Bætt lýðheilsa, velferð sláturdýra og vernd umhverfisins. – Oddný Anna Björnsdóttir er bóndi og sjálfstætt starfandi ráðgjafi. Greinar í Bændablaðinu um vottanir og upprunamerkingar byggjast á verkefni sem hún vann fyrir Íslandsstofu veturinn 2018. Greiningin er aðgengileg í heild sinni á vef Íslandsstofu. Oddný Anna Björnsdóttir objornsdottir@gmail.com VOTTANIR & UPPRUNAMERKINGAR MATVÆLA Lífræn vottun Feðgar á ferð í jólapakkann Enn eru til nokkrir DVD diskar af Feðgum á ferð ef einhvern vantar sem tækifærisgjöf eða kaupa sem jólagjöf fyrir jólin 2018, eða bara til að eiga. Um er að ræða þrjár þáttaraðir, alls 30 þætti af alls konar skemmtilegu efni, ekki síst úr sveitum landsins + 16 innslög af þættinum „Ísland í sumar“ frá sumrinu 2017. Diskur 1 (fyrsta og önnur þáttaröð, 20 þættir) kostar 1.500 krónur og diskur 2 (þriðja Þáttaröðin (10 þættir) + Ísland í sumar innslögin) kostar 1.500 krónur líka. Kaupi fólk hins vegar báða diskana fara þeir saman á 2.500 krónur. Hægt er að kaupa beint af Magnúsi Hlyni á Selfossi með því að senda honum einkaskilaboð á Facebook (Magnús Hlynur Hreiðarsson), eða í gegnum netfangið, magnushlynurh@gamail. com Feðgar á ferð eru þættir sem voru á Stöð 2 og hafa nú verið gefnir út á DVD diska. Þættirnir voru sýndir sumarið 2016 og 2017. Umsjónarmenn eru feðgarnir Magnús Hlynur Hreiðarsson og Fannar Freyr Magnússon á Selfossi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.