Bændablaðið - 01.11.2018, Qupperneq 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 1. nóvember 2018 39
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Eigum til haugsugur frá Hispec á lager.
Tökum einnig á móti pöntunum fyrir vorið.
HISPEC HAUGSUGUR
Heimsmarkaður fyrir lífrænt
vottaðar vörur hefur meira
en fjórfaldast frá árinu 2001.
Framleiðendum hefur fjölgað
og land hagnýtt til lífrænnar
ræktunar, beitar og jurtasöfnunar
vaxið hröðum skrefum.
Eftirspurnin fer vaxandi og
hefur verið meiri en framboðið.
Langstærsti markaðurinn árið
2016 var Bandaríkin, á eftir honum
komu Þýskaland og Frakkland. Í
skýrslunni The World of Organic
Agriculture, sem kom út í ár, má
finna ítarlegar upplýsingar um þróun
lífræns landbúnaðar á heimsvísu.
En hvað er lífræn vottun?
Lífræn vottun er staðfesting
faggildrar vottunarstofu á því að vara
uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til
lífrænnar landbúnaðarframleiðslu.
Þær kröfur byggja á reglugerðum
sem Evrópusambandið gefur út og
innleiða yfirvöld í hverju landi þær í
lög og annast framkvæmdina. Hér á
landi er það í höndum atvinnuvega-
og nýsköpunarráðuneytisins og
Matvælastofnunar. Löggjöfin tekur
til framleiðslu, vinnslu, flutnings,
geymslu og dreifingar lífrænna
vara. Vottunarstofan Tún gefur út
reglur um lífrænar aðferðir byggðar
á löggjöfinni. Vottun veitir handhafa
rétt til að nota vottunarmerki á
umbúðir og í markaðssetningu.
Vottunarmerki
Merki landa eru ólík og má sjá
nokkur þeirra á mynd hér til hliðar.
Vörur vottaðar hér á landi bera merki
Túns en vörur vottaðar í öðrum
löndum bera merki viðkomandi
lands eða vottunarstofu, t.d. Soil
Association í Bretlandi. Eins er
löndum innan ESB og EES heimilt
að nota merki Evrópusambandsins,
Evrópulaufið, ásamt merki þess sem
vöruna vottaði. Í Bandaríkjunum
er merki bandaríska landbúnaðar-
ráðuneytisins, USDA Organic,
notað. Gagnkvæm viðurkenning
er á milli Evrópusambandsins og
Bandaríkjanna á Evrópulaufinu og
USDA Organic. Ekki er óalgengt
að framleiðendur sæki um að nota
fleiri en eitt merki til að tryggja að
neytendur, í þeim löndum sem þeir
flytja vörur sínar til, þekki merkið.
Hvað er hægt að votta lífrænt?
Matvæli, hreinlætis- og snyrtivörur
sem og vörur eins og fatnað sem
eiga uppruna í jurtaríkinu, búfé og
eldisfiski er hægt að votta lífrænar.
Náttúruafurðir eins og villibráð,
vatn, salt og ýmis steinefni falla ekki
undir þessar reglur, en unnt er að
votta þær á grundvelli sjálfbærni- og
umhverfisstaðla.
Hvað varð til þess að lífrænar
aðferðir voru þróaðar?
Frá sjónarhóli ræktunar þá voru
það áhyggjur manna af afleiðingum
þaulræktunar, mikillar notkunar
kemísks áburðar, sívaxandi notkunar
eiturefna og erfðabreytinga á
umhverfið og heilsu neytenda.
Hvað varðar búfé þá voru það
áhyggjur manna af afleiðingum
þauleldis, þrengslabúskapar og
langvarandi innivistar, svo og
sívaxandi notkunar hormóna og
sýklalyfja sem vaxtarhvata og til
að fyrirbyggja sýkingar, á velferð
og heilsu dýranna.
Þegar kemur að vinnslu matvæla
þá voru það áhyggjur manna af
afleiðingum geislunar matvæla,
sívaxandi notkunar kemískra
aukefna og vinnsluaðferða sem
draga úr næringargildi, fyrir heilsu
neytenda.
Hverjar eru helstu kröfurnar til
framleiðslu lífrænna afurða?
Í stuttu máli byggir lífræn ræktun
á frjósömum jarðvegi, lífrænum
áburði, náttúrulegum/lífrænum
vörnum og banni við notkun
erfðatækni.
Ræktun lífræns búfjár gerir mjög
ríkar kröfur um aðbúnað, rými í
húsum og kost á útivist allt árið til
að tryggja aðstöðu til eðlislægrar
hegðunar. Gefið er lífrænt fóður
og beitt er náttúrulegum aðferðum
eins og kostur er til að fyrirbyggja
sjúkdóma. Þá er notkun hormóna
og annarra vaxtarhvetjandi efna
bönnuð.
Þegar kemur að vinnslu er
óheimilt að geisla lífræn matvæli,
strangar reglur gilda um notkun
aukefna og vinnsluaðferðir og krafist
er skýrrar aðgreiningar vottaðra
hráefna frá óvottuðum á öllum
stigum vinnslunnar.
Markmiðið
Hvert er svo markmiðið með
þessu öllu saman? Heilbrigði allrar
lífkeðjunnar: Bætt lýðheilsa, velferð
sláturdýra og vernd umhverfisins.
– Oddný Anna Björnsdóttir
er bóndi og sjálfstætt starfandi
ráðgjafi. Greinar í Bændablaðinu
um vottanir og upprunamerkingar
byggjast á verkefni sem hún vann
fyrir Íslandsstofu veturinn 2018.
Greiningin er aðgengileg í heild
sinni á vef Íslandsstofu.
Oddný Anna Björnsdóttir
objornsdottir@gmail.com
VOTTANIR & UPPRUNAMERKINGAR MATVÆLA
Lífræn vottun
Feðgar á ferð í jólapakkann
Enn eru til nokkrir DVD diskar af
Feðgum á ferð ef einhvern vantar
sem tækifærisgjöf eða kaupa sem
jólagjöf fyrir jólin 2018, eða bara
til að eiga.
Um er að ræða þrjár þáttaraðir, alls
30 þætti af alls konar skemmtilegu
efni, ekki síst úr sveitum landsins
+ 16 innslög af þættinum „Ísland
í sumar“ frá sumrinu 2017. Diskur
1 (fyrsta og önnur þáttaröð, 20
þættir) kostar 1.500 krónur og
diskur 2 (þriðja Þáttaröðin (10
þættir) + Ísland í sumar innslögin)
kostar 1.500 krónur líka. Kaupi fólk
hins vegar báða diskana fara þeir
saman á 2.500 krónur. Hægt er að
kaupa beint af Magnúsi Hlyni á
Selfossi með því að senda honum
einkaskilaboð á Facebook (Magnús
Hlynur Hreiðarsson), eða í gegnum
netfangið, magnushlynurh@gamail.
com
Feðgar á ferð eru þættir sem voru á Stöð 2 og hafa nú verið gefnir út á DVD
diska. Þættirnir voru sýndir sumarið 2016 og 2017. Umsjónarmenn eru
feðgarnir Magnús Hlynur Hreiðarsson og Fannar Freyr Magnússon á Selfossi.