Bændablaðið - 01.11.2018, Blaðsíða 47

Bændablaðið - 01.11.2018, Blaðsíða 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 1. nóvember 2018 47 Fyrir nokkru kom ég við á verkstæði og lenti í ágætis spjalli við vini mína þar sem spjallað var vítt um daginn og veginn og kom mér til að hugsa aðeins. Síðastliðið ár hefur töluvert verið rætt um meðal vinnandi fólks um að lítið sé hugsað um kvilla sem margir þjást af sem er m.a. kulnun í starfi, streita og síþreyta og fleira. Margir af þessum kvillum eru raktir til of mikils álags og langs vinnutíma. Fyrir þá sem telja sig hugsanlega vera að staðna í starfi eða ekki með fulla starfsorku út af einhverju af ofangreindu er hægt að finna ráðleggingar á veraldarvefnum með því einfaldlega að nota leitarvef eins og Google. Ef slegið er upp einföldum leitarorðum sem dæmi: síþreyta, kulnun í starfi, streita þá kemur ýmis fróðleikur upp. Síþreyta Um þann kvilla er meðal annars ritað á Vísindavefnum: Síþreyta er sjúkdómur sem getur herjað á fólk af báðum kynjum og á öllum aldri, en er algengust meðal yngri kvenna. Stundum fylgir síþreyta í kjölfar flensu, lungnabólgu eða annarrar sýkingar en það er þó langt frá því að vera algilt. Sumir telja sjúkdóm í miðtaugakerfi orsök síþreytu en aðrir að sjúkdómurinn sé aðallega af sálrænum toga. Ekkert er þó vitað með vissu um orsakir síþreytu og hafa tilraunir til að finna skýringu ekki gefið afdráttarlausar niðurstöður. Síþreyta einkennist af stöðugri þreytu sem byrjar nokkuð skyndilega og getur staðið yfir vikum eða mánuðum saman. Önnur algeng einkenni eru til dæmis hægari hugsun, lélegt minni, einbeitingarleysi, fælni, kvíði, þunglyndi, of lítil eða of mikil svefnþörf, vöðva- og liðverkir, hitaslæðingur, hálsbólga, meiri viðkvæmni fyrir hita og kulda, óvenjulegir höfuðverkir, ljósfælni, óregla á hægðum og munn- og augnþurrkur. Þessi einkenni þurfa þó ekki að vera öll til staðar hjá sama sjúklingnum. Kulnun í starfi Sálfræðingar sem starfa á vegum Vinnuverndar hafa víðtæka reynslu af ýmiss konar sálfræðistörfum og þekkja til þeirra vandamála sem geta komið upp á vinnustöðum og hjá starfsfólki. Þau vandamál geta verið af margvíslegum toga, má þar nefna streitu, kulnun í starfi, einelti, kvíða og þunglyndi. Einnig getur starfsfólk þurft á aðstoð að halda við að byggja upp sjálfstraust og við að auka vellíðan og ánægju í starfi. Streita Á vefnum doktor.is segir m.a. í grein eftir Björn Vernharðsson sálfræðing: Streita er almennt hugtak yfir upplifun og líffræðileg viðbrögð við álagi. Víðtækar breytingar í blóðflæði og efnaskiptum undirbúa líkamann fyrir átök og álag. Þeir sem lærðu læknisfræðina á seinni hluta síðustu aldar vissu þetta og að heilinn stýrði framleiðslu streituhormóna í nýrnahettum og um áhrif þeirra á vöðva og hjarta til eflingar í bardaganum við ógnina. Rætt var um jákvæða streitu, þegar streitan nýttist til að flýja, og neikvæða streitu ef hún varð langvinn og skemmandi. Það hafði nefnilega komið í ljós við rannsóknir að streitan gat verið skaðleg fyrir hjarta og æðakerfi og andlega líðan. Í Svíþjóð hefur verið náð góðum árangri með þeim sem hafa fundið fyrir kulnun sem byggir á því að ná fram betri samskiptum á vinnustað með því að fá eins góðar upplýsingar um aðstæður félagslegar og starfslegar og meta hvað er hægt að gera. Hafa síðan upplýsingafund með yfirmanni og skjólstæðingi í sitthvoru lagi og síðan sáttafund þar sem sett er fram samkomulag um aðgerðir í framhaldinu. Þau atriði sem þarf að efla með einstaklingnum á vinnustaðnum og innra með sér eru: 1. Að efla kraft og styrk. 2. Að fá fram stefnu í sín mál sem viðkomandi er sáttur við og sér tilgang í. 3. Að forðast alla óljósa verkaskiptingu. 4. Að viðkomandi fái þann stuðning sem skiptir máli á vinnustaðnum bæði félagslega og með öðrum því sem er mögulega tiltækt. 5. Að stuðla að því að viðkomandi hafi þau áhrif sem skiptir máli í þeim verkefnum sem viðkomandi á að leysa 6. Að stuðla að því að viðkomandi geti tekið heilbrigðar og eðlilegar ákvarðanir um sitt starf. 7. Að samskipti á vinnustað séu eðlileg og miðist við að ná árangri fyrir alla. 8. Að samskipti miðist að því að ná fram sáttum um málefni sem skipta máli á vinnustaðnum, þar sem tekið sé tillit til allra sem skipta máli. Kulnun er alvarlegt heilsufarslegt vandamál sem þarf að taka skipulega á. Ef viðkomandi fær ekki faglega aðstoð og stuðning við að ná sér út úr aðstæðum getur þetta orðið mjög langvarandi. Oft þess verra og langvinnara ef viðkomandi er meira lærður og hefur verið í áreynandi starfi. Heilsan er of dýrmæt til að fórna, vinnan má ekki vera mikilvægari Hér að ofan eru bara nokkur dæmi um orsakir þess að vinna of mikið sem ég fór að hugsa um eftir kaffistofuspjall fyrir nokkru. Það eru allt of margir á aldrinum 40+ sem ganga um skakkir og skældir vegna þess að þeir hugsuðu ekki um heilsuna. Ástæða þess að ég skrifa þetta var að fyrir nokkru kom ég á verkstæði á þeim tíma sem starfsmennirnir voru að fara í það sem þeir kalla „föstudagsvöfflukaffi“ og buðu mér. Ég taldi að ég hefði ekki tíma vegna mikillar vinnu. Við þetta svar var ég skammaður og bent á sem dæmi að stutt frá verkstæðinu væri kirkjugarður sem væri fullur af mönnum sem héldu sig vera ómissandi. Þó að það væri mikið að gera hjá mér ætti ég að setjast með þeim niður og hætta þessu stressi sem á endanum mundi drepa mig. Ég varð að játa mig sigraðan, settist niður og var vafflan góð. ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 KROSSGÁTA Bændablaðsins Lausn á krossgátu í síðasta blaði Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is POTTUR ÁVÖXTUR SKJÓTUR FUGL ÆXLUN GÁSKI SAMTALS KKLUNNA-LEGA L A U F A L E G A LÁÞEKKUR Í K U R ÆTTAR- SETUR SJÁVARDÝR Ó Ð A L AÓHREINKA T A Á F A L L L R R A R I SUSSOFSÖGUR U S S AUÐN Í VAFA TVEIR EINS E F I N S STIKK- PRUFA HREYFING S Ý N I ESPA TVEIR EINSAMLÓÐI UFISKURAKUR SJOKK MATARÍLÁT S E R K I ARINN ÁNÆGJU- BLOSSI SYSTIR K I K K ILMUR GILDRA ÆKYRTLA K Y R R TÚTTAFELL S N U Ð TÓNLISTAR- STEFNA EFNI J A S SLYGN A Ð Á NÝMAGN A F T U R ÁMAHRÆÐA T U N N ASMÁORÐ R I M KK NAFNRÍKI J Ó N GRIMMURHÓTUN Ó A R G A KRASSAPILI F UPP- HRÓPUN SPENDÝR A H A NÆGILEGA N Ó G U STRUNS MIKILL A R K A F S A L TÁLBEITAHAMINGJA A G N SKJÓTURÍSKUR S N A RAF-HENDING K Í S I L L UXISKÓLI N A U T SAMTÖK VÖRU-MERKI OFRUMEFNI Á L L L I ÚT T I KERALDI N Á N M A U N SEFAST KRYDDA R G Ó R A A S S T A UMSÖGN TVEIR EINS 94 ÁRSTÍÐ SPILLA HVIÐA KVK NAFN HAPP-DRÆTTI STEFNUR SÁLDRA SVISS FANGA BRÚKA ÁNÆGJU- BLOSSI SIGAÐ AÐ NIÐRA STEFNA FRÁ BRESTIR FROST- SKEMMD KRAFSA SAMTÖK SPRIKLKVARTA KÚSTUR TÍUND ASKJA ÓHREINKA VÆTU STAÐNA GÓLA BLÁSA TVEIR EINS GEFA EFTIR AUSTUR- ÁLFA FRAMVEGIS SAKLAUS HEIÐUR FLÉTTA MESSING ÞÍÐA ÁFORM GOSEFNI EKKI SPOR SÖNG- LEIKUR RUSL ÖFGA- FULLUR GÖSLASVELGUR YFIRGAF SKOTT LÍFFÆRI ÓÐAGOT SJÓ KEYRA ANGAN HVAÐ SKELFINGGÓMA NÖLDRA TVÍHLJÓÐI BELTI KRINGUM HÆGLÆTI VESÆLL HÝRA SKÁN SPJÁTRUNG- URMJÖG ÁTT 95 Heilsan er dýrmæt, hugsum vel um hana: Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.