Bændablaðið - 01.11.2018, Blaðsíða 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 1. nóvember 2018 47
Fyrir nokkru kom ég við á
verkstæði og lenti í ágætis spjalli
við vini mína þar sem spjallað var
vítt um daginn og veginn og kom
mér til að hugsa aðeins.
Síðastliðið ár hefur töluvert verið
rætt um meðal vinnandi fólks um
að lítið sé hugsað um kvilla sem
margir þjást af sem er m.a. kulnun
í starfi, streita og síþreyta og fleira.
Margir af þessum kvillum eru
raktir til of mikils álags og langs
vinnutíma. Fyrir þá sem telja sig
hugsanlega vera að staðna í starfi
eða ekki með fulla starfsorku út af
einhverju af ofangreindu er hægt að
finna ráðleggingar á veraldarvefnum
með því einfaldlega að nota leitarvef
eins og Google. Ef slegið er upp
einföldum leitarorðum sem dæmi:
síþreyta, kulnun í starfi, streita þá
kemur ýmis fróðleikur upp.
Síþreyta
Um þann kvilla er meðal annars ritað
á Vísindavefnum:
Síþreyta er sjúkdómur sem getur
herjað á fólk af báðum kynjum og á
öllum aldri, en er algengust meðal
yngri kvenna. Stundum fylgir
síþreyta í kjölfar flensu, lungnabólgu
eða annarrar sýkingar en það er þó
langt frá því að vera algilt.
Sumir telja sjúkdóm í
miðtaugakerfi orsök síþreytu en
aðrir að sjúkdómurinn sé aðallega
af sálrænum toga. Ekkert er
þó vitað með vissu um orsakir
síþreytu og hafa tilraunir til að finna
skýringu ekki gefið afdráttarlausar
niðurstöður.
Síþreyta einkennist af stöðugri
þreytu sem byrjar nokkuð skyndilega
og getur staðið yfir vikum eða
mánuðum saman. Önnur
algeng einkenni eru til dæmis
hægari hugsun, lélegt minni,
einbeitingarleysi, fælni,
kvíði, þunglyndi, of lítil eða
of mikil svefnþörf, vöðva-
og liðverkir, hitaslæðingur,
hálsbólga, meiri viðkvæmni
fyrir hita og kulda,
óvenjulegir höfuðverkir,
ljósfælni, óregla á hægðum
og munn- og augnþurrkur. Þessi
einkenni þurfa þó ekki að vera öll
til staðar hjá sama sjúklingnum.
Kulnun í starfi
Sálfræðingar sem starfa á vegum
Vinnuverndar hafa víðtæka reynslu
af ýmiss konar sálfræðistörfum og
þekkja til þeirra vandamála sem
geta komið upp á vinnustöðum og
hjá starfsfólki. Þau vandamál geta
verið af margvíslegum toga, má þar
nefna streitu, kulnun í starfi, einelti,
kvíða og þunglyndi. Einnig getur
starfsfólk þurft á aðstoð að halda
við að byggja upp sjálfstraust og við
að auka vellíðan og ánægju í starfi.
Streita
Á vefnum doktor.is segir m.a. í grein
eftir Björn Vernharðsson sálfræðing:
Streita er almennt hugtak yfir
upplifun og líffræðileg viðbrögð
við álagi. Víðtækar breytingar í
blóðflæði og efnaskiptum undirbúa
líkamann fyrir átök og álag. Þeir sem
lærðu læknisfræðina á seinni hluta
síðustu aldar vissu þetta og að heilinn
stýrði framleiðslu streituhormóna
í nýrnahettum og um áhrif þeirra
á vöðva og hjarta til eflingar í
bardaganum við ógnina. Rætt var um
jákvæða streitu, þegar streitan nýttist
til að flýja, og neikvæða streitu ef
hún varð langvinn og skemmandi.
Það hafði nefnilega komið í ljós
við rannsóknir að streitan gat verið
skaðleg fyrir hjarta og æðakerfi og
andlega líðan. Í Svíþjóð hefur verið
náð góðum árangri með þeim sem
hafa fundið fyrir kulnun sem byggir
á því að ná fram betri samskiptum á
vinnustað með því að fá eins góðar
upplýsingar um aðstæður félagslegar
og starfslegar og meta hvað er hægt
að gera. Hafa síðan upplýsingafund
með yfirmanni og skjólstæðingi í
sitthvoru lagi og síðan sáttafund þar
sem sett er fram samkomulag um
aðgerðir í framhaldinu.
Þau atriði sem þarf að efla með
einstaklingnum á vinnustaðnum og
innra með sér eru:
1. Að efla kraft og styrk.
2. Að fá fram stefnu í sín mál sem
viðkomandi er sáttur við og sér
tilgang í.
3. Að forðast alla óljósa
verkaskiptingu.
4. Að viðkomandi fái þann
stuðning sem skiptir máli á
vinnustaðnum bæði félagslega
og með öðrum því sem er
mögulega tiltækt.
5. Að stuðla að því að viðkomandi
hafi þau áhrif sem skiptir
máli í þeim verkefnum sem
viðkomandi á að leysa
6. Að stuðla að því að viðkomandi
geti tekið heilbrigðar og
eðlilegar ákvarðanir um sitt
starf.
7. Að samskipti á vinnustað séu
eðlileg og miðist við að ná
árangri fyrir alla.
8. Að samskipti miðist að því að
ná fram sáttum um málefni sem
skipta máli á vinnustaðnum, þar
sem tekið sé tillit til allra sem
skipta máli.
Kulnun er alvarlegt
heilsufarslegt vandamál sem
þarf að taka skipulega á. Ef
viðkomandi fær ekki faglega
aðstoð og stuðning við að
ná sér út úr aðstæðum getur
þetta orðið mjög langvarandi.
Oft þess verra og langvinnara ef
viðkomandi er meira lærður og hefur
verið í áreynandi starfi.
Heilsan er of dýrmæt til að fórna,
vinnan má ekki vera mikilvægari
Hér að ofan eru bara nokkur dæmi
um orsakir þess að vinna of mikið
sem ég fór að hugsa um eftir
kaffistofuspjall fyrir nokkru. Það
eru allt of margir á aldrinum 40+
sem ganga um skakkir og skældir
vegna þess að þeir hugsuðu ekki
um heilsuna. Ástæða þess að ég
skrifa þetta var að fyrir nokkru
kom ég á verkstæði á þeim tíma sem
starfsmennirnir voru að fara í það
sem þeir kalla „föstudagsvöfflukaffi“
og buðu mér. Ég taldi að ég hefði
ekki tíma vegna mikillar vinnu. Við
þetta svar var ég skammaður og bent
á sem dæmi að stutt frá verkstæðinu
væri kirkjugarður sem væri fullur
af mönnum sem héldu sig vera
ómissandi. Þó að það væri mikið
að gera hjá mér ætti ég að setjast með
þeim niður og hætta þessu stressi
sem á endanum mundi drepa mig.
Ég varð að játa mig sigraðan, settist
niður og var vafflan góð.
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
KROSSGÁTA Bændablaðsins
Lausn á krossgátu í síðasta blaði
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
POTTUR ÁVÖXTUR SKJÓTUR FUGL ÆXLUN GÁSKI SAMTALS
KKLUNNA-LEGA L A U F A L E G A
LÁÞEKKUR Í K U R
ÆTTAR-
SETUR
SJÁVARDÝR Ó Ð A L
AÓHREINKA T A Á F A L L L
R R A R I SUSSOFSÖGUR U S S
AUÐN
Í VAFA
TVEIR EINS E F I N S
STIKK-
PRUFA
HREYFING S Ý N I ESPA
TVEIR
EINSAMLÓÐI
UFISKURAKUR
SJOKK
MATARÍLÁT
S E R K I ARINN
ÁNÆGJU-
BLOSSI
SYSTIR K I K K ILMUR GILDRA ÆKYRTLA
K Y R R TÚTTAFELL S N U Ð
TÓNLISTAR-
STEFNA
EFNI J A S SLYGN
A Ð Á NÝMAGN A F T U R ÁMAHRÆÐA T U N N ASMÁORÐ
R I M KK NAFNRÍKI J Ó N GRIMMURHÓTUN Ó A R G A KRASSAPILI
F
UPP-
HRÓPUN
SPENDÝR A H A NÆGILEGA N Ó G U
STRUNS
MIKILL A R K
A F S A L TÁLBEITAHAMINGJA A G N SKJÓTURÍSKUR S N A RAF-HENDING
K Í S I L L UXISKÓLI N A U T SAMTÖK VÖRU-MERKI OFRUMEFNI
Á
L
L
L
I
ÚT
T
I
KERALDI
N
Á
N
M
A
U
N
SEFAST
KRYDDA
R
G
Ó
R
A
A
S
S
T
A
UMSÖGN
TVEIR
EINS
94
ÁRSTÍÐ SPILLA HVIÐA KVK NAFN HAPP-DRÆTTI STEFNUR SÁLDRA
SVISS
FANGA
BRÚKA
ÁNÆGJU-
BLOSSI
SIGAÐ
AÐ
NIÐRA
STEFNA FRÁ
BRESTIR
FROST-
SKEMMD
KRAFSA
SAMTÖK
SPRIKLKVARTA
KÚSTUR
TÍUND
ASKJA
ÓHREINKA
VÆTU
STAÐNA
GÓLA BLÁSA TVEIR EINS
GEFA
EFTIR
AUSTUR-
ÁLFA
FRAMVEGIS
SAKLAUS
HEIÐUR
FLÉTTA
MESSING
ÞÍÐA
ÁFORM
GOSEFNI
EKKI
SPOR
SÖNG-
LEIKUR
RUSL
ÖFGA-
FULLUR
GÖSLASVELGUR
YFIRGAF
SKOTT
LÍFFÆRI
ÓÐAGOT
SJÓ
KEYRA
ANGAN
HVAÐ SKELFINGGÓMA
NÖLDRA
TVÍHLJÓÐI
BELTI
KRINGUM
HÆGLÆTI
VESÆLL
HÝRA
SKÁN
SPJÁTRUNG-
URMJÖG
ÁTT
95
Heilsan er dýrmæt, hugsum vel um hana:
Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur