Bændablaðið - 02.08.2018, Qupperneq 40

Bændablaðið - 02.08.2018, Qupperneq 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. ágúst 201840 Á Eyjardalsá í Bárðardal er bland- að bú með mikið landrými. Býli: Eyjardalsá. Staðsett í sveit: Bárðardal. Ábúendur: Anna Guðný Baldursdóttir, Árni F. Sigurðsson, Laufey Elísabet Árnadóttir. Fjölskyldustærð (og gæludýra): 3–5 í heimili, foreldrar Önnu eru mikið á bænum. Stærð jarðar? 2.400 ha. Gerð bús? Sauðfjárbú með hestahaldi. Fjöldi búfjár og tegundir? 170 vetrarfóðraðar kindur, 15 hestar, 8 hænsn, 2 hundar og köttur. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? gefa kindunum, svo hverfum við til annarra starfa, eftir vinnu sumarið er engin regla á hlut- unum, hey er hirt þegar hægt er og viðhaldi og öðru sinnt með- fram því. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Skemmtilegast er sauðburður og réttir, leiðinlegast er að handmoka taði úr gömlum fjárhúsum. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Á svipuðu róli, hófum í ár rekstur á hestaleigu sem við vonumst til að geti orðið fullt sumarstarf fyrir allavega einn. Hvaða skoðun hafið þið á félags- málum bænda? Að þau séu mikilvæg og að til að ná fram einhverjum málefnum verði bændur að geta unnið saman að sínum markmiðum, lítið gerist sínu horni. Hvernig mun íslenskum land- búnaði vegna í framtíðinni? Það fer eftir hvort stjórnvöld muni ná að mynda heildræna stefnu er varðar byggð, landbúnað og matvælaöryggi. Hvar teljið þið að helstu tæki færin séu í útflutningi íslenskra búvara? Við verðum seint samkeppnishæf í verði vegna veðurfars en eigum möguleika á að koma á framfæri gæðavöru. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Uppáhald er góð folaldasteik en mest eldað eru ýmsir réttir úr ærhakki. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Þegar tveir fullorðnir hrútar krækt- ust saman á hornunum beint fyrir framan okkur í hrútaspilinu, var þónokkuð maus að ná þeim í sundur. MATARKRÓKURINN LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR Hong Kong-kjúklingur og ljúffeng grillspjót Við ferðumst til Singapúr í þessum pistli en endum í grænmetisgrilli á íslenskri útihátíð. 51 árs kokkur á matarbás í Singapúr hefur notið heims- athygli fyrir Hong Kong-stíl af sojasósukjúkling með núðlum eða hrísgrjónum. Þetta er ómetanleg uppskrift sem hann lærði í Hong Kong fyrir 35 árum og hefur skilað honum Michelin-stjörnu! Rétturinn samanstendur af hægsoðnu og mjúku kjúklingakjöti í laug af dökkri sojasósu, sem venjulega fylgir núðlum eða hrísgrjónum og chili sósu. Ég var í Singapúr á dögunum og fékk að smakka réttinn á ódýrasta Michelin- veitingastað í heimi. Hér er eftirlíking af Michelin sojasósu- kjúklingaréttinum frá Singapúr. Hong Kong-kjúklingur fyrir 5–6 manns Hráefni: › 10 kjúklingabitar, skolaðir og þurrkaðir með klút › 1 msk. salt › 4 rif hvítlaukur, marinn › 8 sneiðar af ferskum engifer › 6 vorlaukar Fyrir soðvökva: › 3/4 bolli ljós sojasósa › 1/4 bolli dökk sojasósa › 3 bollar vatn › 3 msk. hrísgrjónavín eða edik › 2 msk. sykur › Ögn af hvítum pipar Aðferð Fyrst skal bæta við matarolíu í heitan pott og hræra engifer, hvítlauk og vorlauk út í og elda á lágum hita þar til þetta er aðeins mjúkt. Nú getur þú bætt við sojasósu ásamt vatni. Leyfðu því að sjóða áður en þú setur sykur og hrísgrjónavín eða edik. Lækkið hitann og látið malla. Bætið kjúklingnum í og eldið í aðra 15–20 mínútur þar til að kjúklingurinn er fullsoðinn. Takið síðan kjúklinginn úr soðvökvanum. Og þarna hefur þú það – ljúffengur einfaldur Michelin-réttur í Hong Kong-stíl! Berið fram með hvítum hrísgrjónum eða núðlum og bætið í chiliolíu til að krydda upp réttinn. Grænmetis grillspjót › 1 stk. rauð paprika › 1 stk. gul paprika › 1 súkkíni › 180 g sveppir › 2 rauðlaukur › 1 ferskur rauður chili › 1 sítróna › ólífuolía › 2 greinar af fersku rósmarín › 200 g kirsuberjatómatar Aðferð: Setjið 12 tréspjót í bakka af köldu vatni til að bleyta upp viðinn – þetta mun seinka því að þau brenni. Skerið grænmetið til í 2 cm bita og setjið í stóra skál. Skerið sveppina í helminga eða fjórð unga, allt eftir stærðinni, bætið í skálina. Skrælið laukinn og bætið í skálina. Skerið chili og kryddjurtir. Fínt saxað og bætið í skálina. Notið fínt rifjárn og rífið af sítrónuberkinum til þess að krydda. Bætið kirsuberjatómötum við. Dreifið yfir 2 matskeiðum af ólífuolíu. Blandið saman með hreinum höndum. Þræðið svo grænmetið upp á spjót. Setjið á grillið á miklum hita og eldið í um það bil 8 mínútur, eða þar til eldað er í gegnum. Snúið á 2 mínútna fresti til að brúna á öllum hliðum – það gæti þurft að gera þetta í skömmtum. Berið fram með salati og hrísgrjónum eða brauði. Bjarni Gunnar Kristinsson matreiðslumeistari Eyjardalsá Árni F. Sigurðsson og Anna Guðný Baldursdóttir.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.