Bændablaðið - 22.03.2018, Page 24

Bændablaðið - 22.03.2018, Page 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. mars 2018 Vísindadagur á Keldum á sjötíu ára starfsafmæli Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum fagnar sjötíu ára starfsafmæli í ár. Meðal viðburða er Vísindadagur sem fer fram 20. apríl 2018 á bókasafni Tilraunastöðvarinnar og er allan daginn. Tilraunastöðin er fyrst og fremst rannsóknastofa á háskólastigi og þar fara fram rannsóknir og greiningar á dýrasjúkdómum. Vísindadagur Vísindadagurinn hefur að undanförnu verið haldinn annað hvert ár. Hann hefur fest sig í sessi sem vettvangur fyrir kynningu á starfseminni og er nú haldinn í áttunda sinn. Ráðstefnan verður 20. apríl 2018 frá kl. 8.30-16 og er skipt upp í nokkra ráðstefnuhluta (sjá dagskrá). Meginefni ráðstefnunnar eru rannsóknir og vísindastörf á Keldum í tilefni sjötíu ára starfsafmælis, nú með almennara sniði en áður. Ráðstefnan verður haldin í bókasafni Tilraunastöðvarinnar og er aðgangur öllum heimill og að kostnaðarlausu. Á Vísindadegi Keldna 2018 verður fræðsluefni um helstu nýjungar í rannsóknum og greiningum á dýrasjúkdómum. Vísindadagurinn verður sam- ráðsvettvangur hagsmunaaðila, einkum dýralækna og starfsmanna í dýrasjúkdómageiranum. Stefnt er að því að koma saman starfsmönnum Keldna og starfandi dýralæknum á Íslandi á þessum vísindadegi. Níu fyrirlesarar munu sjá um fræðsluna, einn gestur erlendis frá, hinir eru sérfræðingar á Keldum. Erlendi gestafyrirlesarinn er Martin Krarup Nielsen frá University of Kentucky Research Center, sérfræðingur í sníkjudýrum, og hann mun halda tvo fyrirlestra. Í vísindanefndinni sem sér um undirbúning og skipulag eru: Sigurbjörg Þorsteinsdóttir, Stefanía Þorgeirsdóttir og Þórunn Sóley Björnsdóttir. Keldur í sjötíu ár Meginviðfangsefni Tilrauna- stöðvarinnar er rannsóknir á dýrasjúkdómum og varnir gegn þeim. Sjötíu ár eru síðan rannsóknastarfsemi hófst á Tilraunastöðinni. Aðdragandinn var talsverður en áður fóru rannsóknir á búfjársjúkdómum fram á Rannsóknastofu Háskólans við Barónsstíg. Ríkið keypti jörðina Keldur í Mosfellssveit með öllum mannvirkjum ásamt eyðibýlinu Keldnakoti árið 1941. Í fyrstu var aðstaðan á Keldum nýtt til dýrahalds en fyrsta rannsóknastofuhúsið var reist árið 1948. Forstöðumaður var Björn Sigurðsson læknir. Margt hefur breyst á þessum sjötíu árum. Ný smitefni greinast stöðugt og sumum hefur verið útrýmt með skilvirkum aðgerðum, byggðum á fræðilegum grunni. Fræðasviðin hafa þróast, nýjar aðferðir eru notaðar við greiningar og rannsóknir og nákvæmni og afkastageta margra rannsóknatækja hefur margfaldast. Samhliða þróun í tölvumálum og netvæðingu er upplýsingastreymi á auknum hraða. Rannsóknatæki hafa verið tölvuvædd og úrvinnsla gagna er öflugri og oft notendavænni en áður, má t.d. nefna stafræna myndgreiningu og greiningu á gögnum raðgreiningar erfðaefnis. Kostnaðurinn og fyrirhöfnin við uppbyggingu á nýrri aðferðafræði og úrvinnslu gagna getur verið talsverð. Því hefur Tilraunastöðin nýtt sér kjarnaaðstöðu og uppbyggingu á henni innanlands og erlendis og er lífsýnasöfn gefa aukna möguleika á nýjum samanburðarrannsóknum af ýmsum toga. Starfsemin í dag Tilraunastöðin starfar fyrst og fremst sem rannsóknastofa á háskólastigi og er eini vettvangurinn í landinu þar sem rannsóknir fara fram á dýrasjúkdómum á mörgum fræðasviðum. Rannsakaðir eru sjúkdómar í flestum spendýrategundum Íslands og allmörgum fugla- og fisktegundum. Tilgangur rannsóknanna er að efla skilning á eðli sjúkdóma og skapa nýja þekkingu. Heilbrigð dýr eru forsenda arðvænlegs landbúnaðar og fiskeldis. Einnig er mikilvægi heilbrigðra dýra sem bera ekki sjúkdóma í menn hvati að hagnýtingu rannsóknanna. Tilraunastöðin er í nánu samstarfi við atvinnulífið, má þar nefna landbúnað, fiskeldi, matvælaframleiðslu og líftækniiðnað. Starfið er rótgróið og gott dæmi um samlegðaráhrif vísindastarfs og atvinnulífs. Á Keldum er fagleg forysta á ýmsum fræðasviðum og mikil þekking og reynsla. Helstu fræðasviðin eru príonfræði, veiru- fræði, bakteríufræði, sníkju- dýrafræði, meinafræði, ónæmis- fræði, sameindalíffræði og tilraunadýrafræði. Tilraunastöðin er í öflugu tengslaneti vísindastarfs á alþjóðavísu. Rannsóknaverkefni síðustu ára eru m.a. ónæmis- og sjúkdómafræði fiska, sníkjudýra- og bakteríufræði, veirur í sauðfé og hestum, riða og skyldir sjúkdómar Hvað er fram undan? Ýmsar áskoranir eru á döfinni og mörgum áleitnum rannsókna- spurningum þarf að svara með nýjum nálgunum við sýnatöku og í aðferðafræði og úrvinnslu gagna. Framtíðarsýnin er skýr m.t.t. þess hvernig efla má fræðasviðin. Breytingar eru fram undan á loftslagi, ferðamannastraumi, flutningi fóðurs, í fiskeldi, inngripum mannsins í vistkerfi o.fl. Þetta kallar á uppbyggingu innviða og aukinn viðbúnað og viðbragðsþjónustu. Mikilvægt er að við rannsökum hvaða þýðingu þessar breytingar hafa fyrir dýrasjúkdómastöðuna á Íslandi. Sigurður Ingvarsson, forstöðumaður og prófessor á Keldum TILRAUNASTÖÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS Í MEINAFRÆÐUM AÐ KELDUM Rafvirkjar LED rakaþétt ljós S: 5272600 - www.velavit.is Varahlutir - Viðgerðir Vélavit Sala Þjónusta Startarar og Alternatorar í flestar gerðir véla og tækja Sigurður Ingvarsson Setning Vísindadags 2018 Lilja Alfreðsdóttir Ávarp mennta- og menningarmálaráðherra Martin Nielsen Equine helminth parasites: Matthías Eydal Rannsóknir á sníkjudýrum hrossa á Íslandi Karl Skírnisson Um hunda- og kattasníkjudýr á Íslandi Guðný Rut Pálsdóttir Um tríkinur (Trichinella spp.) Eggert Gunnarsson Nokkrir alvarlegir bakteríusjúkdómar í búfé á Íslandi Vala Friðriksdóttir Salmonella og Campylobacter í dýrum og mönnum Þórunn Rafnar Þorsteinsdóttir Sýklalyfjaónæmar bakteríur í dýrum á Íslandi Árni Kristmundsson Áhrif sjúkdóma á nytjastofna ferskvatns og sjávar á Íslandi Vilhjálmur Svansson Veirur í dýrum á Íslandi Martin Nielsen Equine parasitology research: What’s new? Sigurður Ingvarsson. Tilraunastöðin er fyrst og fremst rannsóknastofa á háskólastigi og þar fara fram rannsóknir og greiningar á dýrasjúkdómum. Þar verður haldinn Vísindadagur 20. apríl í tilefni af 70 ára afmæli stöðvarinnar.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.