Bændablaðið - 22.03.2018, Qupperneq 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. mars 2018
Salat er ómissandi hluti af hverri
máltíð og hefur neysla þess og
framleiðsla margfaldast alla
undanfarna áratugi. Plantan
kemur upphaflega frá fjöllum
Mið-Asíu en salat eins og við
þekkjum það í dag finnst ekki villt
í náttúrunni.
Heimsframleiðsla á salati, af
tegundinni Lactuca sativa, árið 2016
er áætluð tæplega 27 milljón tonn
og hefur framleiðslan þrefaldast frá
1980.
Kína er langstærsti ræktandi
salats í heiminum og framleiddi
árið 2016 rétt tæp 15 milljón
tonn. Næststærsti framleiðandinn,
Bandaríkin Norður-Ameríku, er
ekki hálfdrættingur á við Kínverja
og framleiðir rétt rúm 4 milljón tonn.
Indland er í þriðja sæti með tæpa 1,1
milljón tonna, næst koma Spánn með
903 þúsund tonn og Ítalía með 734
þúsund tonn. Japan, Íran, Tyrkland
og Mexíkó eru í sjötta til tíunda sæti
með framleiðslu á salati frá 586
niður í 440 þúsund tonn árið 2016.
Áætlað er að salat sé ræktað á
rúmlega 1,4 milljónum hektara lands
í heiminum.
Samkvæmt tollskrá er innflutt
salat ekki flokkað eftir ættkvíslum
eða tegundum nema að litlu leyti
í jöklasalat og annað nýtt salat.
Ekki er því hægt að sjá fyrir víst
hversu mikið er flutt inn af salati af
tegundinni L. sativa. Jöklasalat, sem
langmest er flutt inn af, er afbrigði
af L. sativa en annað nýtt salat getur
aftur á móti verið hvaða planta sem
er sem kölluð er salat. Til dæmis er
mikið flutt inn af klettasalati, Eruca
sativa, ekki tilheyrir ættkvíslinni
Lactuca og er því ekki til umfjöllunar
að þessu sinni.
Árið 2017 var heildar
innflutningur salati rétt tæp 1.200
tonn. Mest var flutt inn af jöklasalati,
eða iceberg eins og það er stundum
kalla, um 1.000 tonn. Tæplega
helmingurinn kemur frá Spáni. Af
því sem er kallað er annað nýtt salat
voru flutt sama ár tæp 200 tonn.
Samkvæmt tölum frá Sambandi
garðyrkjubænda er áætluð innlend
framleiðsla á salati, ekki flokkað
eftir ættkvíslum og tegundum, árið
2015 377 tonn. Til samanburðar var
innlend framleiðsla á salati árið 2006
tæp 66 tonn.
Ættkvíslin Lactuca
Eina planta sem með réttu getur
kallast salat heitir Lactuca satviva
á latínu. Lactuca ættkvíslin
inniheldur um 50 tegundir sem
finnast villtar víða um heim en
aðallega í Evrópu og Mið-Asíu.
Plöntur af ættkvíslinni Lactuca
geta verið ein-, tví- eða fjölærar,
jurt- eða trjákenndar og með blóm
sem eru hvít, gul og blá og allt
þar á milli og marglit. Flestar eru
harðgerðar. Sumar er að finna í
eyðimörkum en við aðrar hátt til
fjalla.
Ættkvíslin tilheyrir ætt
körfublóma en körfublómaættin er
önnur stærsta plöntuætt blómstrandi
plantna og innan hennar eru ríflegar
1.600 ættkvíslir með um 23.000
tegundir.
Dæmi um plöntur af
körfublómaætt eru fíflar,
morgunfrú, þistill, silfurhnappur
og vallhumall. Blóm plantna af
körfublómaætt er kollur sem ber
mörg lítil blóm, ystu smáblómin
HELSTU NYTJAJURTIR HEIMSINS
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Blaðsalat með blöðum sem skarast og mynda lauslegt rósalaga höfuð.Kína er langstærsti framleiðandi salats í heiminum.
Blaðsalat er til bæði grænt og rauðleitt. Mynd / Tomas Atli Ponzi
Gróðrarstöðin Lambhagi er langstærsti framleiðandi salats á Íslandi og framleiðir tæp 400 tonn á ári.