Bændablaðið - 22.03.2018, Síða 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. mars 2018
Hinn 17. febrúar opnaði
Bílabúð Benna glæsilegan nýjan
sýningarsal fyrir Ssang Yong og
Opel í nýju húsnæði á Krókhálsi
9.
Við opnunina var frumsýndur
nýr Opel Crossland X. Ég fékk
sjálfskipta Crossland-bílinn eftir
frumsýninguna til prufuaksturs.
Vélin ótrúlega kraftmikil þrátt
fyrir að vera ekki nema 1.200 cc
Fyrir fram gerði ég mér ekki miklar
vonir um þennan bíl þegar ég sá í
auglýsingabæklingi að vélin væri
ekki nema 1.200 rúmsentímetra
(cc) en annað kom á daginn. Þessi
litla vél skilar bílnum vel áfram,
snerpa er góð og er bíllinn snöggur
að ná umferðarhraða úr kyrrstöðu.
Þegar kemur að brekkum hefur
mér fundist nánast allir bílar með
minni vélar en 1.500 cc vera að tapa
leiðinlega mikilli ferð, en mér til
furðu tapaði Opel Crossland ekki
mikilli ferð í þeim brekkum sem
ég ók upp á meðan ég var með
bílinn. Það voru nokkrir búnir að
prufukeyra bílinn í næsta nágreni
við Bílabúð Benna og þegar ég
settist inn í bílinn var búið að keyra
hann yfir 400 km og meðaleyðsla
þeirra á hundraðið var 9,1 lítrar.
Fyrst prófaði ég bílinn
innanbæjar og var mín eyðsla 8,4 l
á hundraðið á meðalhraða upp á 32
km. Í akstri upp á Mosfellsheiði og
til baka á meðalhraða upp á 66 var
ég að eyða í langkeyrslu 6,0 lítrum
af bensíni á hundraðið, allavega
var ég vel sáttur við þessa túrbó-
bensínvél sem er ekki nema 1.199
cc og skilar 110 hestöflum.
Mismikið veghljóð frá fram- og
afturhjólum
Það er þægilegt að keyra bílinn
og fjöðrunin góð á malarvegi.
Þó fannst mér Crossland sóða
sjálfan sig full mikið að aftan eftir
aksturinn á malarveginum.
Veghljóð er lítið frá
framhjólunum en heldur meira
frá afturhjólum. Á malarveginum
heyrðist aðeins í steinum undir
bílnum aftan til en minna frá
framhjólum, en þess ber að
geta að bíllinn var á frekar
grófum vetrardekkjum, stíf
fjöðrunin heggur aðeins í verstu
malarvegaholunum.
Þegar ekið var í holur á
malarveginum var bíllinn aðeins að
höggva á fjöðruninni en á móti var
bíllinn afar skemmtilegur á bundnu
slitlagi og liggur vel í beygjum.
Akreinalesarinn les vel illa
málaðar línurnar í vegköntum og
lætur vita ef ekið er yfir miðlínu eða
línuna í kantinum með blikkljósi í
mælaborðinu og hljóðmerki líka.
Mikið lagt upp úr öryggi og
þægindum
Framsætin eru sérstaklega þægileg
og fara vel með þann sem í þeim
situr enda hefur Opel fengið
viðurkenningu frá læknum fyrir
góða hönnun þessara sæta þar sem
þau þykja öðrum sætum fremri fyrir
að halda vel við mjóbak og upp
með hliðum.
Flestir bílar eru með handfrjálsan
símabúnað í gegn um útvarpið, en
Opel bætir um betur og er með einn
takka upp undir baksýnisspeglinum
sem er neyðarhringitakki. Ef maður
er með „app“ í símanum virkjað
inn á þennan takka er nóg að ýta
á hann og maður fær samband við
neyðarlínuna. Síminn er það fyrsta
sem virðist týnast og jafnvel svífa
út úr bílnum við veltu, en ekki
það langt í burtu að hann missi
sambandið við útvarpið.
Vel útbúinn bíll og fáir ókostir
Í Opel Crossland X er mikið
af aukabúnaði, s.s. kæling í
hanskahólfi. Slíkt er ekki í mörgum
bílum. Þá er gott útvarp með sex
hátölurum, upphitaðir hliðarspeglar,
varadekk sem ég kalla almennt
aumingja, brekkuhjálp sem heldur
við bílinn á meðan verið er að fara af
stað í brattari brekkum, sjö tommu
litaskjár fyrir bakkmyndavélina
og fleira, upphitað stýri, hiti í
framsætum, en slíkt hefði alveg
mátt vera í aftursætunum líka.
Pláss inni í bílnum er gott og
fótarými ágætt, farangursrými gott
og með plötu til að stilla hæð eða
lagskipta farangursrýminu. Auglýst
opnunartilboðsverð á beinskiptum
Opel Crossland X Enjoy er
2.690.000 og dýrari bílnum af Opel
Crossland X Innovation sem er
sjálfskiptur er auglýst tilboðsverð
3.290.000. Ef einhver vill fræðast
meira er hægt að nálgast frekari
upplýsingar á vefsíðunni www.
benni.is.
Þyngd 1.163 kg
Hæð 1.605 mm
Breidd 1.976 mm
Lengd 4.212 mm
Helstu mál og upplýsingar
É ÁV LAB SINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
pe Cro O X:dl sslan
Opel Crossland X. Myndir HLJ
Svolítill sóði við sjálfan sig eftir aksturinn á mölinni.
Glettilega hátt undir lægsta punkt.
Bakkmyndavélin sýnir vel aftur og er með línur sem áætluð bakkleið er sýnd.
Rauði takkinn með merkingunni SOS er til að hringja í neyðarlínuna.
Framsætin í þessum bíl eru einhver þau bestu sem ég hef setið í.
Varadekkið er það sem ég kalla
aumingi, en allavega betra en að vera
án varadekks.