Bændablaðið - 26.09.2019, Blaðsíða 4

Bændablaðið - 26.09.2019, Blaðsíða 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. september 20194 Veiðifélagið Strengur ehf. stefnir að því að auðga líf massa Selár í Vopnafirði með gróðursetningu trjágróðurs meðfram ánni og hrogna greftri. Auk þess fjármagnar félagið samstarfsverkefni milli Hafrannsóknastofnunar og Imperial Colleges í London þar sem lagt verður fé í að rannsaka lífríki áa á Norðausturlandi. Á kynningarfundi sem Veiði­ félagið Strengur stóð fyrir í veiðihúsi félagsins við Selá í Vopnafirði kom fram að til stendur að auka rannsóknir á lífríki árinnar á næstu árum. Á fundinum voru meðal annarra Gísli Ásgeirsson, framkvæmdastjóri veiðifélagsins Strengs, dr. Peter S. Williams, tæknistjóri INEOS Group, Else Möller, skógfræðingur Vopnafjarðar hrepps, Guðni Guðbergsson, sviðsstjóri deildar ferskvatns fiska hjá Hafrannsókna­ stofnun, og Þór Steinarsson, sveitar­ stjóri Vopnafjarðarhrepps. Breski auðmaðurinn Sir Jim Ratcliffe hefur á undanförnum árum keypt fjölda jarða á Norðausturlandi og í Vopnafirði í gegnum Veiði­ félagið Streng ehf. Tilgangur kaup anna, að sögn Ratcliffe, er að eignast laxveiðiréttindi áa sem fylgja jörðunum og verndun villtra laxastofna í þeim. Á fundinum kom fram að Ratcliffe er mikill áhugamaður um verndun Norður­Atlantshafs­ laxins og að hann vilji leggja sitt fram til verndunar hans. Verndar­ áætlun áa á Norðausturlandi byggir á áratugalangri sögu verndarstarfs og þeim áherslum sem Strengur hefur unnið eftir. Samkvæmt því sem kom fram er stofni Norður­ Atlantshafslaxins ógnað og hefur tegundinni hnignað hvarvetna á norður hveli undanfarna áratugi. Í verndaráætluninni er áhersla lögð á varðveislu lands og vistkerfis áa á Norðausturlandi og að við­ halda uppeldisstöðvum Norður­ Atlantshafslaxins á svæðinu. Samstarf Hafró og Imperial College Peter S. Williams, tæknistjóri INEOS Group, fór yfir hvernig samstarfi Imperial College London og Hafrannsóknastofnunar er háttað og greindi frá mark miðum rannsóknanna og hvernig þeim verður háttað. Að rannsóknunum koma tveir doktorsnemar, annar með aðsetur á Íslandi og hinn hjá Imperial College London. Heildarfjárfesting rannsóknar­ áætlunarinnar er um 85 milljónir króna á næstu þrem til fjórum árum. Segulmögnunarhlið Samstarfsverkefni milli Haf­ rannsókna stofnunar og Imperial Colleges felst meðal annars í að merkja seiði í ánni og í útgöngu og setja upp segulmögnunarhlið sem fylgist með gangi laxins í ánni, við útgöngu hans og þegar hann snýr aftur í árnar. Fyrstu hliðin verða sett niður 1. október næstkomandi og þegar er búið að merkja einhverjar þúsundir seiða. Annað verkefni sem Strengur ehf. hefur staðið fyrir í nokkur ár í samstarfi við Hafrannsókna­ stofnun er hrognagröftur í ám á Norðausturlandi og mun það verkefni halda áfram. Hrognagröftur Guðni Guðbergsson, sviðsstjóri hjá Hafrannsóknastofnun, lýsti því á fundinum hvernig efla megi ár með hrognagrefti og hvaða skilyrði þurfi að vera til staðar áður en kemur að hrognagrefti. Tilgangurinn að auðga lífríkið Á fundinum kom fram að Else Möller, skógfræðingur hjá Vopnafjarðar­ hreppi, hefur verið ráðin í verkefni hjá Streng ehf. til að kanna kosti þess að græða land og planta trjám meðfram Selá og hliðarám sem að henni renna. „Tilgangur verkefnisins er að athuga hvort hægt sé að auðga lífríkið í ánni með því að auka gróðurfarið við bakka hennar og nokkurra hliðaráa. Verkefnið felst ekki í að græða upp samfelldan skóg því hugmyndin er að rækta upp þyrpingar af gróðri í mismunandi stærðum og eitthvað af runnum á bökkum ánna. Með þessu er ætlunin að styrkja og athuga hvort aukinn gróður og skordýralíf efli fæðuframboð og lífríki Selár.“ Else segir að um langtímaverkefni sé að ræða. „Verkefnið er enn í mótun. Í sumar var plantað út 800 plöntum, birki, lerki, gul­ og loðvíði á tíu mismunandi stöðum hvað varðar hæð frá sjávarmáli meðfram efri hluta Selár og hliðarám hennar. Tilgangur útplöntunarinnar í sumar er meðal annars að sjá hversu hátt yfir sjávarmáli lerki getur vaxið og hversu vel birki dafnar á svæðinu.“ Ekki verið gert áður Gísli Ásgeirsson hjá Veiðiklúbbnum Streng ehf. segir að útplöntunin sé ekki skógræktarverkefni í hefð­ bundnum skilningi heldur felist það í að planta út trjáplöntum meðfram Selá og hliðarám hennar og efla lífmassa og frjóvga ána með laufi og skordýrum. Veiðiklúbburinn Strengur ehf. fjármagnar verkefnið sem er enn á byrjunarstigi og segir Gísli að um sé að ræða einhverjar milljónir króna sem lagðar verði í það á hverju ári næstu árin. „Verkefni af þessu tagi hefur ekki verið prófað hér á landi áður þannig að við rennum blint í sjóinn með það og því fer fjármögnunin eftir framvindu þess.“ /VH FRÉTTIR TORT INNHEIMTA SLYSABÓTA Átt þú rétt á slysabótum? Við hjálpum þér HAFÐU SAMBAND 511 5008 Í þingsályktunartillögu þing manna Framsóknarflokksins, sem hefur verið lögð fyrir yfirstandandi löggjafarþing, er gert ráð fyrir að lögfestar verði reglur um að skilgreind tengsl við Ísland séu forsenda fyrir eignarhaldi á jörðum hér á landi og að takmarkanir verði á fjölda jarðeigna í eigu sama aðila. Í tillögunni kemur fram að ríkis­ stjórninni verði falið að hrinda í framkvæmd aðgerðaáætlun til styrkingar á lagaumgjörð og reglum um ráðstöfun og nýtingu auðlinda á landi, ásamt aðgerðum til að styrkja grundvöll til eftirfylgni slíkra reglna. Aðgerðaáætlunin hafi það að markmiði að tryggja eignarhald landsmanna á jörðum á Íslandi, ásamt því að skapa frekari tækifæri til heilsársbúsetu í dreifbýli og fjölbreyttrar sjálfbærrar landnýtingar og matvælaframleiðslu í landinu. Leyfisskyld jarðarkaup Í aðgerðaráætluninni verði einnig gert ráð fyrir að jarðarkaup verði leyfisskyld með það að markmiði að tryggja byggð í dreifbýli og halda jörðum í landnýtingu. Varðandi útfærslur á slíkum reglum yrði litið meðal annars til norskrar og danskrar fyrirmyndar, þannig að hægt verði að vinna hlutlæg viðmið sem fylgt verði við ákvarðanatöku um leyfisveitingu. Þá er meðal annars gert ráð fyrir að í aðgerðaráætluninni sé hraðað gerð leiðbeininga um flokkun landbúnaðar­ lands og mótaðar verði leiðir til að skilgreina búsetu skilyrði í dreifbýli í skipulagi. Í tillögunni er gert ráð fyrir að forsætisráðherra flytji Alþingi skýrslu um fram gang áætlunar­ innar fyrir 1. febrúar 2021, en flutnings menn tillögunnar eru þau Líneik Anna Sævarsdóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir, Silja Dögg Gunnars dóttir, Willum Þór Þórsson og Þórarinn Ingi Pétursson. /smh Þingsályktunartillaga um ráðstöfun og nýtingu auðlinda á landi: Eignarhald landsmanna á jörðum verði tryggt – jarðakaup verði leyfisskyld til að tryggja landnýtingu jarða Fyrir Alþingi liggur þingsályktunartillaga frá þingmönnum Framsóknarflokksins um eignarhald á jörðum. Breski auðmaðurinn Sir Jim Ratcliffe og Veiðifélagið Strengur ehf.: Kynna rannsóknir á lífríki og auðgun Selár Else Möller skógfræðingur að setja niður plöntur. Mynd / Úr einkasafni Richard Longden, samskiptastjóri INEOS Group, Bill Reid, viðskiptastjóri INEOS Group, Michael Murphy, varaforseti Imperial College London, Guðni Guðbergsson, sviðsstjóri deildar ferskvatnsfiska hjá Hafrannsóknastofnun, dr. Rasmus Lauridsen, yfirmaður fiskveiðirannsókna hjá náttúruverndar­ samtökunum Game & Wildlife Conservation Trust, Else Möller, skógfræðingur og verkefnastjóri á skógræktarsviði Vopnafjarðarhrepps, Gísli Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Veiðiklúbbsins Strengs, dr. Peter Williams tæknistjóri INEOS Group, og Olivia Morris, doktorsnemi við Imperial College London. Mynd / VH Gísli Ásgeirsson, framkvæmdastjóri veiðifélagsins Strengs ehf. Mynd / VH Laxastiginn í efri hluta Selár fellur vel að landslaginu og opnar laxinum leið að nýjum hrygningarslóðum ofar í ánni. Mynd / VH
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.