Bændablaðið - 26.09.2019, Blaðsíða 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. september 2019 45
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
www.vallarbraut.is vallarbraut@vallarbraut.is S-8411200 & 8417300
Ávinnsluherfi galv. 4 og 6m
VALLARBRAUT BÆTIR SÍFELLT VIÐ VÖRUÚRVALIÐ
Seljum pallhús fyrir allar gerðir
japanskra og evrópskra pallbíla frá
TRUCKMAN sem hefur framleitt
pallhús í yfir 35 ár.
Erum einnig með útdraganlegar
skúffur frá DECKED fyrir flestar
tegundir. Frábær lausn fyrir iðnað,
veiði, búskap eða sendibílinn.
Mikil gæði gott verð!
LESENDABÁS
Minningarorð um
Framleiðnisjóð landbúnaðarins
Ég hef stundum skrifað
nokkur minningar orð
um horfna samferða
menn, þó aldrei fyrr
en þeir hafa kvatt.
Nú segir í fréttum
að ríkisstjórnina
með atbeina Alþingis
langi til þess að gera
eitthvað í mál efnum
l a n d b ú n a ð a r i n s :
Hún hyggst leggja
niður Framleiðni sjóð
sem þar með mun
hverfa úr tölu lifandi stofnana.
Því verðskuldar sjóðurinn
dálitla minningargrein byggða
á nokkrum kynnum mínum af
honum.
Framleiðnisjóður var stofnaður
árið 1966 og var angi af ýmsum
umbótum sem unnið var að á
Viðreisnarárunum svonefndu.
Brýnt var talið að efla framleiðni
landbúnaðar, bæði í hinum
hefðbundna búrekstri sem og
úrvinnslugreinum hans. Lagðir
voru fram myndarlegir fjármunir
sem beint var til vænlegra
verkefna. Að stjórnarborði komu
fulltrúar stjórnvalda og bænda svo
tryggja mætti eðlileg samráð um
verkefni. Sjálfur minnist ég þess
frá fyrstu árum sjóðsins að hafa
unnið að rannsóknaverkefnum hjá
Bútæknideild Rala á Hvanneyri
sem fjármögnuð voru af sjóðnum
– verkefnum sem sneru að bættri
heyverkun, sem þá var talin
nauðsynjaverk.
Studdi hagræðingu og umbætur
Framleiðnisjóður studdi hagræðingu
og umbætur í afurðastöðvum
bænda, bæði hvað snertir sláturhús
og mjólkurbú. Þegar ný tækni við
mjólkurmeðferð tók að breiðast út
átti Framleiðnisjóður þátt í að létta
mjólkurbrúsabaxi af bændafólki með
stuðningi sínum við tankvæðinguna
svonefndu. Voru það hvað fyrstu
beinu kynnin sem bændafólk hafði
af starfi Framleiðnisjóðs.
Um miðjan níunda áratuginn var
gerð mikil breyting á framleiðslu
umhverfi landbúnaðar. Meðal annars
var umtalsverðum fjármunum sem
áður höfðu farið til útflutningsbóta
nú beint í Framleiðnisjóð sem
skyldi með þeim leggja lið
nauðsynlegum búhátta breytingum.
Vitanlega sýndist sitt hverjum
eins og jafnan þegar breytingar
eru óumflýjanlegar. Víst er þó að
sjóðurinn studdi marga bændur sem
þá og síðar vildu skjóta nýjum og
fleiri stoðum undir búrekstur sinn.
Nýbúgreinarnar loðdýrarækt og
fiskeldi reyndust ekki henta öllum,
en mörg glæsilegustu ferðaþjónustu
býli landsins í dag rekja sig til
upphafs þar sem Framleiðnisjóður
lagði dugandi og hugmyndaríku
bænda fólki fjárhagslegt lið. Hið
sama á við glæsilega hestabúgarða
víða um land að ekki sé gleymt
smávirkjununum sem bændur tóku
ýmist að endurnýja eða reisa nýjar
um síðustu aldamót, og þykja nú
spennandi kostur til orkuöflunar að
stórvirkjunum kvöddum.
Árangursríkt starf
Smáverkefnasjóðs
Handverk í dreifðum byggðum
naut sérstakrar athygli undir hatti
Framleiðnisjóðs með árangursríku
starfi Smáverkefnasjóðs hans.
Stór og öflug fyrirtæki eins og t.d.
Límtré Vírnet hf. er svo heitir í dag,
fór af stað austur á Flúðum með
myndarlegum stuðningi Framleiðni
sjóðs og fyrirtækið ORFlíftækni
naut hins sama með mikilvægu
framlagi til ungra og hugmynda
ríkra vísindamanna er það fyrirtæki
sköpuðu.
Í útflutningi hesta stríddu menn
við sumarexem erlendis svo illa
horfði. Tilraunastöðin á Keldum
og samstarfsaðilar hennar hófu
rannsóknir með myndarlegu fjár
framlagi sjóðsins og hafa nú unnið
sleitulaust og við vaxandi athygli
annarra sjóða og fagaðila svo nú
er lausn vandans í augsýn.
Stuðningur við rannsókna
verkefni í þágu lands og land
búnaðar hefur alla tíð verið á
verkefnalista Framleiðnisjóðs.
Um tíma var þar höfð samvinna
við Rannsóknaráð ríkisins um val
verkefna og fjármögnun þeirra
svo unnt var að sinna fleiri fyrsta
flokks rannsóknaverkefnum. Og
enn styður sjóðurinn slík verkefni,
sbr. ársskýrslu hans fyrir árið 2018,
og fyrri ársskýrslur sem lesa má
á heimasíðu Framleiðnisjóðs.
Væri of langt upp að telja, nefna
má þó rannsóknir á kornrækt sem
skapað hafa þeirri búgrein nýjan
grundvöll hérlendis, sem og öðrum
rannsókna og þróunarverkefnum
í jarðrækt og plöntukynbótum,
sem og í búfjárrækt er stuðla að
jöfnum og stöðugum framförum
búgreinanna.
Hefur komið að ótrúlega
mörgum verkefnum
Þegar nánar er að gáð sést að
Framleiðnisjóður hefur á æviskeiði
sínu allt til þessa dags komið að
ótrúlega mörgum verkefnum sem
hafa átt eða eiga sinn þátt í að bera
uppi atvinnu í byggðum landsins og
að skapa fjölbreytileika í afurðum
og þjónustu landbúnaðarins. Að
þessu rituðu skal tvennt sérstaklega
áréttað:
Í fyrsta lagi það að fjárhags
legur stuðningur Framleiðnisjóðs
í hinum ýmsu verkefnum hefur
sjaldnast numið tugum prósenta af
heildarkostnaði þeirra. Þar hefur
meira munað um dugnað þeirra
sem fyrir verkum stóðu, vinnu
þeirra og önnur framlög. En aurar
Framleiðnisjóðs hafa verið og
eru frumkvöðlum og athafnafólki
hvatning og viðurkenning sam
félagsins á því að það hafi verið
að gera rétt.
Í öðru lagi það að við stjórnar
borð Framleiðnisjóðs sitja og
hafa setið fulltrúar ríkisvaldsins
og stofnana þess annars vegar en
samtaka bænda hins vegar. Með
samráði þar um ráðstöfun fjármuna
sjóðsins, sem jafnan hafa verið hluti
af starfskjarasamningum bænda og
ríkis, hefur mátt hafa veruleg áhrif
á landbúnaðarstefnuna í reynd, ekki
síst með verkefnum er stuðlað geta
að nýsköpun svo og öflun og miðlun
nýrrar þekkingar, sem samfélaginu
er svo nauðsynleg.
Áður en Framleiðnisjóður verður
borinn til grafar hvet ég bæði bændur
og stjórnvöld til þess að gefa reynslu
af hvetjandi starfi sjóðsins í áranna
rás gaum en spyrja jafnframt hvort og
hvernig stuðningur við margvísleg
framfaramál landbúnaðarins verði
tryggður nýr farvegur.
Starfsformin geta verið fleiri
en eitt en tilgangi og starfi til
stuðnings margvíslegra og vænlegra
vaxtarsprota í síbreytilegu umhverfi
má ekki glutra niður. Gerist það veri
blessuð minning Framleiðnisjóðs
landbúnaðarins.
Bjarni Guðmundsson