Bændablaðið - 26.09.2019, Blaðsíða 47

Bændablaðið - 26.09.2019, Blaðsíða 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 26. september 2019 47 Sennilega er ég sá penni sem síst ætti að vera að skrifa um heilsufar, óreglulegur svefn, reyki mína pípu, stunda áhættusport svo eitthvað sé nefnt. Þrátt fyrir ofantalið þá hef ég ekki verið rúmfastur nema einn dag síðastliðin tvö ár vegna veikinda. Vinna mín er töluvert erfiði og tel ég mig fá þar ágætis hreyfingu, en vissulega mætti ég hreyfa mig meira, hætta þessum reykingum og fara almennt fyrr að sofa á kvöldin. Það er of algengt að fólk borði of mikið miðað við hreyfingu og að úthald til erfiðisvinnu hjá Íslendingum er almennt of lítið. Var brugðið í réttunum fyrir skemmstu Eins og flest undanfarin ár þá hef ég farið í réttir til að reyna að gera gagn hjá vinahjónum mínum. Í þessari rétt finnst mér stundum vera fleira fólk en fé, sem er engan veginn rétt því að það fé sem í gegnum réttina fer er hátt í 20.000 hausar. Í ár var veðrið ekkert sérstakt og fannst mér vera erfiðara að eiga við féð en venjulega. Skýringin eflaust sú að ég er að eldast, en féð var líka erfitt á köflum. Fullt af fólki, margar röskar hendur, dró féð í sundur, en í miðjum réttum sá ég mann sem greinilega hafði ofreynt sig í byrjun dags og virtist ekki vera alveg í lagi. Þegar ég ætlaði að ræða við hann sá ég konu hans vera fyrri til og tala við hann. Heyrði hana segja honum að hægja á sér því að hann vissi vel að heilsa sín væri ekki sú besta. Við þetta varð mér hugsað til sjálfs mín vitandi það að ég væri kannski aðeins að eldast og hægði á mér og hugsaði með sjálfum mér: Best að hlusta á þessa konu, þetta fé fer ekkert út úr réttinni þó að ég hægi aðeins á mér. Hefur einhverjum dottið í hug hjartastuðtæki í réttarsjoppuna? Þegar ég sá þarna í réttinni þetta litla atvik vakti það hjá mér hugsanir um að eflaust væru margir þarna ekki í neinu líkamlegu formi til að vinna erfiðisvinnu í marga klukkutíma. Þetta varð allavega til þess að ég áttaði mig á því að það er orðið nokkuð síðan að ég fór í allsherjar læknisskoðun. Ekki nóg að skoða bílana og mótorhjólin árlega, ég þarf víst skoðun líka. Eftir réttirnar varð mér hugsað til þess hvort einhverjir hugsi fyrir því að hafa góðan sjúkrakassa og hjartastuðtæki í sjoppunni á réttardag. Allavega hefði ég haldið að góður sjúkrakassi, sé hann til staðar í stóðréttum, væri eitthvað notaður. Þessar hugrenningar mínar eru kannski óþarfar og jafnvel óþarfi að vera nokkuð að minnast á þetta. Munum að þakka fyrir erfiða vinnudaga og jafnvel verðlauna vel unnin störf Sá sem vanur er að vinna þá vinnu sem felst í að draga í sundur fé veit vel að þetta er erfiðisvinna. Í lok dags eru flestir þreyttir og jafnframt ánægðir með unnið dagsverk. Í þessi nokkur ár sem ég reyni að hjálpa til er það ánægjunnar vegna, enda er þetta alltaf jafn gaman. Ofan á ánægju mína þá kunna vinahjón mín að þakka fyrir sig og eru þær þakkir bara bónus á ánægjuna. Oft hefur mér fundist vinnu­ veitendur þakka vinnufólki of lítið vel unnin verk og of sjaldan er verið að hæla vinnufólki sem vinnur vel og er ötult í starfi. Það að vera að detta í sextugt hef ég unnið með fjölda manns og oftast sem verkamaður. Að sjá vinnufélaga sem verið er að hæla og verðlauna getur verið innspýting fyrir aðra og ánægja. Verðlaun, skemmtun, ferðalag eða góð máltíð eftir vel unnið starf eða starfstímabil (oft nefnt starfstörn) getur skipt sköpum fyrir marga. ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI KROSSGÁTA Bændablaðsins Lausn á krossgátu í síðasta blaði Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Bænda Smáauglýsingar 56-30-300 LEGGJA AF STÖKUM FAÐMLAG LOGA RÍKI Í AFRÍKU YNDIS RÖÐ SSNYRTI-LEGUR M E K K L E G U R TFYRIR-BOÐI E I K N STRIKSETT L Í N U ABEITA G N Ú L D N A N R U S S A ELLEGARLJÓSKER E Ð A F HANDA SKELLURTVEIR EINS H L A M M ÍLÁTÁTT G L A S FUGL LISTA- MAÐURSTÆÐA FPUÐRAHNOÐ ROTNA TOLLSVIK J A F N I POTA HLEYPA SMÁ- MJAKA Y S T A ÁRS-GAMALL NÝLEGRI ÖJAFNOKI A R F I GARGAANGAN O R G A LINGEÐJATÍÐUM M E Y RJURT L M HEITIKRYDDA T I T I L SKJÓL- LAUS UNGDÓMUR O P I N NRÓMVERSK TALA L A G DRAUPGOÐ L A K ÞJÁLFUNPENINGAR Æ F I N G SJÚKDÓMTÆKIFÆRI S BORGPRÍS R Ó M HVIÐA K A S T HEIÐURHAGGA Æ R A H V A Ð A Í VIÐBÓTHVÍLD A U K KIRTILLÞUKL B R I SHVER L E S I N N SAGGIÍ RÖÐ R A K I Í RÖÐ SRÍÐNI TFRÓÐUR Í Ð R Ð A OFAN N N SVIF I Á Ð T U A R FRAM- VEGIS SKORÐAÐA Á F F A R S A T M A RÍKI Í ARABÍU TVEIR EINS (M Y N D : B R A G I H A LL D Ó R SS O N ( CC B Y 2 .0 ) 114 H Ö FU N D U R B H • K R O SS G A TU R .G A TU R .N ET KRYDD- BLANDA ANGAR DANS KANN SJÁVAR- BOTN UM- TURNUN GLÓÐA ÞIL HRÓPA Á FLÍK GUFU- HREINSA MAÐK VEIÐAR- FÆRI RUNNI BAUN NAFNGIFT ÆTÍÐ JURT TVEIR EINS TVEIR EINSTRIMMA KROTI MÁLHELTI STAFIR SNERILL RJÚKA MEGIN SKELDÝR FRAMRÁS JURT SAMTÖKFERMA VANSÆMD AF- HENDING HLERI TRÉ EIN- SÖNGUR MAGN KÁRNA SPILLA BJÚGA TVEIR EINS ÍLÁT HVÍLD ERGJA VEFENGJA BIKSTARFS-GREIN FARVEGUR ÁLITS MÖKK KÆRLEIKUR AÐ- RAKSTUR MÁTTUR TÆKIFÆRI VÖRU- MERKI FITA NIÐUR- LÆGJA AUSTUR- ÁLFA ÓNEFNDUR SKÓLI REYNDAR KRYDD AND- SPÆNIS GEGNA LEIÐSLA GÁSKIÁN Í RÖÐ M Y N D : LI N É1 ( CC B Y -S A 3 .0 ) 115 H Ö FU N D U R B H • K R O SS G A TU R .G A TU R .N ET Hvernig hefurðu það, er heilsan góð? Þegar ég sá þarna í réttinni þetta litla atvik vakti það hjá mér hugsanir um að eflaust væru margir þarna ekki í neinu líkamlegu formi til að vinna erfiðisvinnu í marga klukkutíma. Þetta varð allavega til þess að ég áttaði mig á því að það er orðið nokkuð síðan að ég fór í allsherjar læknisskoðun. Hvar auglýsir þú? Sími 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is 45,6% fólks á landsbyggðinni les Bændablaðið 20,4% 45,6% á landsbyggðinniá höfuðborgarsvæðinu 29,5% landsmanna lesa Bændablaðið Lestur Bændablaðsins: BÆNDABLAÐIÐ ER GEFIÐ ÚT Í 32 ÞÚSUND EINTÖKUM Á TVEGGJA VIKNA FRESTI Heimild: Prentmiðlakönnun Gallup, okt.-des. 2018. Aldur 12-80 ára.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.