Bændablaðið - 26.09.2019, Blaðsíða 1

Bændablaðið - 26.09.2019, Blaðsíða 1
24 18. tölublað 2019 ▯ Fimmtudagur 26. september ▯ Blað nr. 547 ▯ 25. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is Pálmi Einarsson, bóndi í Gautavík í Berufirði, reyndi fyrir sér með ræktun á iðnaðarhampi í sumar og var vöxtur plantna góður þrátt fyrir slæma tíð. Tilgangur ræktunarinnar er að athuga hvort hægt sé að framleiða trefjaplöntur úr heimaræktuðum hampi og nota plönturnar sem hráefni í gjafavörur og leikföng sem ábúendurnir í Gautavík framleiða. Búnaðarstofa MAST lögð niður um áramót – Starfsemin ekki lengur eyrnamerkt landbúnaði sérstaklega og mun heyra beint undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið Í lagafrumvarpi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um breytingu á ýmsum laga ákvæðum um stjórnsýslu búvörumála, er Matvælastofnun felld út úr laga textanum um breytingu á búnaðarlögum. Það hlutverk MAST er sett beint undir ráð herra. Sömuleiðis eru gerðar breytingar á lögum um Matvæla stofnun sem fela í sér að Búnaðarstofa verður lögð niður. Breytingarnar öðlast gildi 1. janúar 2020. Búnaðarstofa var stofnuð árið 2015 þegar stjórnsýsluverkefni sem voru á hendi Bændasamtaka Íslands, meðal annars útdeiling beingreiðslu og styrkja frá ríki til greina landbúnaðarins, færðist til Matvælastofnunar. Þá fór undir Búnaðarstofu margvísleg starfsemi sem byggð höfðu verið upp hjá Bændasamtökum Íslands. Það varðar t.d. gagnasöfnun um búfjárhald og framleiðslu sem og talnaupplýsingar um slátrun og sölu afurða. Í inngangi greinargerðar segir að með frumvarpinu er lögð til breyting á stjórnsýslu landbúnaðar­ mála þannig að stjórnsýsluverkefni við framkvæmd búvörusamninga og framleiðslustjórn verði færð í atvinnuvega­ og nýsköpunar­ ráðuneytið. Starfsmenn Búnaðar­ stofu Matvælastofnunar sem eru í starfi við gildistöku laganna verða starfsmenn hjá atvinnuvega­ og nýsköpunarráðuneytinu með sömu ráðningarkjörum og áður giltu. Búnaðarstofa lögð niður Ekki er annað að sjá á frumvarpinu en til standi að leggja niður Búnaðarstofu og er það þvert á nefndar álit atvinnuveganefndar Alþingis frá því í sumar. Nefndin bendir á að verkefni Búnaðarstofu eru skýrt afmörkuð innan Matvælastofnunar og því ætti ekkert að vera því til fyrir­ stöðu að slíkt hið sama verði gert innan ráðuneytisins. Nefndin telur mikilvægt að skilvirkni sé tryggð innan stjórnsýslunnar og hún styrkt eins og kostur er og telur nefndin umræddar breytingar verða til þess. Nefndin beinir því þó til ráðuneytisins, í ljósi mikilvægi og umfangs þeirra verkefna sem Búnaðarstofa sinnir í dag við framkvæmd búvörusamninga, hagtölusöfnun og þróun tölvukerfa, að ráðuneytið afmarki með skýrum hætti verkefni Búnaðarstofu innan ráðuneytisins. Fyrirspurn til ráðuneytisins Bændablaðið sendi atvinnuvega­ og nýsköpunarráðuneytinu eftirfarandi fyrirspurnir vegna þessa. – Er rétt að starfsmenn Búnaðar­ stofu muni flytjast inn í atvinnuvega­ og nýsköpunarráðuneytið 1. janúar 2020 og enginn þeirra verði settur undir skrifstofu matvæla og landbúnaðar? – Er rétt að þess í stað fari starfs­ menn Búnaðar stofu undir skrif stofu fjárlaga, rekstrar og innri þjónustu sem vinnur fyrir öll fjögur grunnsvið ráðuneytisins, þ.e. er varðar land­ búnað, sjávarútveg, ferðamál og nýsköpun og orku, iðnaðar og viðskiptamál? – Er ekki í raun verið að þurrka landbúnaðinn út úr ráðuneytinu sem afgerandi einingu og leggja landbúnaðarráðuneytið endanlega niður? Stefnt að flutningi starfsfólks Búnaðarstofu í desember Í svari ráðuneytisins er spurningum Bændablaðsins ekki svarað beint heldur segir þar: „Samruni Búnaðarstofu við atvinnuvega­ og nýsköpunar ráðu­ neytið er liður í því að styrkja stjórn­ sýslu landbúnaðarmála. Stefnt er að því að starfsmenn Búnaðar stofu flytji í ráðuneytið í desember til að tryggja að allar greiðslur og þjónusta við bændur gangi sem best fyrir sig eins og hingað til. Mikilvægt er að tryggja hnökralausa framkvæmd gagn vart bændum sem njóta greiðslna sam­ kvæmt samningum. Í samræmi við fyrrgreinda áherslu um að efla landbúnaðarhluta ráðuneytisins verður við flutning Búnaðarstofu í ráðuneytið megin­ áhersla á að styrkja skrifstofu matvæla og landbúnaðar. Fjárhagsleg verkefni, líkt og greiðslur til bænda, munu þó falla undir skrifstofu fjárlaga og innri þjónustu. Það er því ekki rétt, líkt og fram kemur í fyrirspurn, að enginn starfsmanna Búnaðarstofu verði settir undir skrifstofu matvæla og landbúnaðar. Til að tryggja sem minnst rask á störfum Búnaðarstofu var það talið mikilvægt að starfsemin komi inn í ráðuneytið sem ein eining til að byrja með og það verði síðan sameiginlegt verkefni starfsmanna ráðuneytisins og starfsmanna Búnaðarstofu að greina verkefnin og ákveða hvar þeim verði best komið fyrir til frambúðar.“ /VH/HKr. Aðlögunarstyrkir að lífrænt vottaðri ræktun 28–29 Hugmyndin kviknaði austur á fjörðum Hefur bara komið á Vestfirðina á Íslandi, aldrei neitt annað 30–31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.