Bændablaðið - 26.09.2019, Side 1
24
18. tölublað 2019 ▯ Fimmtudagur 26. september ▯ Blað nr. 547 ▯ 25. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Pálmi Einarsson, bóndi í Gautavík í Berufirði, reyndi fyrir sér með ræktun á iðnaðarhampi í sumar og var vöxtur plantna góður þrátt fyrir slæma tíð. Tilgangur ræktunarinnar er að athuga hvort
hægt sé að framleiða trefjaplöntur úr heimaræktuðum hampi og nota plönturnar sem hráefni í gjafavörur og leikföng sem ábúendurnir í Gautavík framleiða.
Búnaðarstofa MAST lögð niður um áramót
– Starfsemin ekki lengur eyrnamerkt landbúnaði sérstaklega og mun heyra beint undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið
Í lagafrumvarpi sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra um
breytingu á ýmsum laga ákvæðum
um stjórnsýslu búvörumála,
er Matvælastofnun felld út úr
laga textanum um breytingu á
búnaðarlögum. Það hlutverk
MAST er sett beint undir ráð herra.
Sömuleiðis eru gerðar breytingar
á lögum um Matvæla stofnun sem
fela í sér að Búnaðarstofa verður
lögð niður. Breytingarnar öðlast
gildi 1. janúar 2020.
Búnaðarstofa var stofnuð árið
2015 þegar stjórnsýsluverkefni
sem voru á hendi Bændasamtaka
Íslands, meðal annars útdeiling
beingreiðslu og styrkja frá ríki til
greina landbúnaðarins, færðist til
Matvælastofnunar. Þá fór undir
Búnaðarstofu margvísleg starfsemi
sem byggð höfðu verið upp hjá
Bændasamtökum Íslands. Það varðar
t.d. gagnasöfnun um búfjárhald og
framleiðslu sem og talnaupplýsingar
um slátrun og sölu afurða.
Í inngangi greinargerðar segir
að með frumvarpinu er lögð til
breyting á stjórnsýslu landbúnaðar
mála þannig að stjórnsýsluverkefni
við framkvæmd búvörusamninga
og framleiðslustjórn verði færð
í atvinnuvega og nýsköpunar
ráðuneytið. Starfsmenn Búnaðar
stofu Matvælastofnunar sem eru í
starfi við gildistöku laganna verða
starfsmenn hjá atvinnuvega og
nýsköpunarráðuneytinu með sömu
ráðningarkjörum og áður giltu.
Búnaðarstofa lögð niður
Ekki er annað að sjá á frumvarpinu
en til standi að leggja niður
Búnaðarstofu og er það þvert á
nefndar álit atvinnuveganefndar
Alþingis frá því í sumar.
Nefndin bendir á að verkefni
Búnaðarstofu eru skýrt afmörkuð
innan Matvælastofnunar og því
ætti ekkert að vera því til fyrir
stöðu að slíkt hið sama verði gert
innan ráðuneytisins. Nefndin telur
mikilvægt að skilvirkni sé tryggð
innan stjórnsýslunnar og hún styrkt
eins og kostur er og telur nefndin
umræddar breytingar verða til
þess. Nefndin beinir því þó til
ráðuneytisins, í ljósi mikilvægi
og umfangs þeirra verkefna sem
Búnaðarstofa sinnir í dag við
framkvæmd búvörusamninga,
hagtölusöfnun og þróun tölvukerfa,
að ráðuneytið afmarki með skýrum
hætti verkefni Búnaðarstofu innan
ráðuneytisins.
Fyrirspurn til ráðuneytisins
Bændablaðið sendi atvinnuvega og
nýsköpunarráðuneytinu eftirfarandi
fyrirspurnir vegna þessa.
– Er rétt að starfsmenn Búnaðar
stofu muni flytjast inn í atvinnuvega
og nýsköpunarráðuneytið 1. janúar
2020 og enginn þeirra verði
settur undir skrifstofu matvæla og
landbúnaðar?
– Er rétt að þess í stað fari starfs
menn Búnaðar stofu undir skrif stofu
fjárlaga, rekstrar og innri þjónustu
sem vinnur fyrir öll fjögur grunnsvið
ráðuneytisins, þ.e. er varðar land
búnað, sjávarútveg, ferðamál og
nýsköpun og orku, iðnaðar og
viðskiptamál?
– Er ekki í raun verið að þurrka
landbúnaðinn út úr ráðuneytinu
sem afgerandi einingu og leggja
landbúnaðarráðuneytið endanlega
niður?
Stefnt að flutningi starfsfólks
Búnaðarstofu í desember
Í svari ráðuneytisins er spurningum
Bændablaðsins ekki svarað beint
heldur segir þar:
„Samruni Búnaðarstofu við
atvinnuvega og nýsköpunar ráðu
neytið er liður í því að styrkja stjórn
sýslu landbúnaðarmála. Stefnt er að
því að starfsmenn Búnaðar stofu flytji
í ráðuneytið í desember til að tryggja
að allar greiðslur og þjónusta við
bændur gangi sem best fyrir sig eins
og hingað til. Mikilvægt er að tryggja
hnökralausa framkvæmd gagn vart
bændum sem njóta greiðslna sam
kvæmt samningum.
Í samræmi við fyrrgreinda
áherslu um að efla landbúnaðarhluta
ráðuneytisins verður við flutning
Búnaðarstofu í ráðuneytið megin
áhersla á að styrkja skrifstofu
matvæla og landbúnaðar. Fjárhagsleg
verkefni, líkt og greiðslur til bænda,
munu þó falla undir skrifstofu
fjárlaga og innri þjónustu. Það er
því ekki rétt, líkt og fram kemur í
fyrirspurn, að enginn starfsmanna
Búnaðarstofu verði settir undir
skrifstofu matvæla og landbúnaðar.
Til að tryggja sem minnst rask á
störfum Búnaðarstofu var það talið
mikilvægt að starfsemin komi inn í
ráðuneytið sem ein eining til að byrja
með og það verði síðan sameiginlegt
verkefni starfsmanna ráðuneytisins
og starfsmanna Búnaðarstofu að
greina verkefnin og ákveða hvar
þeim verði best komið fyrir til
frambúðar.“ /VH/HKr.
Aðlögunarstyrkir
að lífrænt
vottaðri ræktun
28–29
Hugmyndin kviknaði
austur á fjörðum
Hefur bara komið á Vestfirðina á
Íslandi, aldrei neitt annað
30–31