Bændablaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 28

Bændablaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 201928 Í undanförnum tölublöðum hefur verið fjallað um aðlögunarstyrki fyrir lífræna framleiðsluhætti sem Búnaðarstofa Matvælastofnunar úthlutar ár hvert. Mæðgurnar Nanna Stefánsdóttir og Sunna Hrafnsdóttir stýra garðyrkjunni á Ósi í Hörgársveit, en þær hafa tvisvar fengið úthlutað styrkjum til aðlögunar og hafa nýlega fengið sitt land vottað. Þær hafa einnig fyrst um sinn veðjað á ræktun lífrænt vottaðra gulróta – í það minnsta til að byrja með. Þær hafa lengi dreymt um að geta stundað lífræna ræktun á landi sínu og aðlögunarstyrkirnir hafa gert þeim það kleift. Í síðasta blaði var sagt frá Elínborgu Erlu Ásgeirsdóttur sem keypti eyðijörðina Breiðargerði þar sem hún hefur hreiðrað um sig til framtíðar með lífræna útiræktun grænmetis – og einnig fyrst um sinn með gulrætur. Vandlega valin jörð til ræktunarinnar „Við keyptum jörðina Ós í Hörgár­ sveit haustið 2016. Við vorum búin að leita okkur að jörð í ákveðinni fjarlægð frá Akureyri í nokkur ár. Við vorum með viss skilyrði til ræktunar í huga eins og sólargang, ræktunarland og frosthættu en þessi staður hentaði vel. Hér er þó vindasamt þannig að við byrjuðum strax í skjólbeltarækt,“ segir skrúð­ garðyrkju meistarinn Nanna, sem býr á Ósi ásamt dóttur sinni, manni hennar, Andra Sigurjónssyni, og sonum þeirra, Breka og Emil. „Ég hef unnið við garðyrkju í meira en 30 ár. Sunna útskrifaðist úr garðyrkjuskólanum vorið 2018 af lífrænni braut skólans. Við vorum búin að hugsa um þessa lífrænu ræktun í mörg ár og ég hef alltaf gengið með þennan draum í maganum. Til að mynda er til á heimilinu fyrsta reglu­ bókin sem Tún gaf út. Ég hef mikla reynslu af margs konar ræktun og Sunna hefur lengi verið með mér í ýmiss konar garðyrkju, en Andri starfar sem smiður,“ segir Nanna. Nýr heimur opnaðist í náminu í lífrænni ræktun Sunna ákvað að drífa sig í garðyrkjuskólann eftir að hafa klárað háskólanám en hún fann sig ekki á þeirri braut. Hún segir að hún hafi fundið að garðyrkjan togaði sífellt meira í sig og þegar hún sá nám í lífrænni ræktun matjurta auglýsta lét hún slag standa og skellti sér í nám við skólann. „Námið tók tvö ár og þar opnaðist alveg nýr heimur, skólinn er algjörlega frábær staður. Þar höfðum við kennara sem hafa stundað lífræna ræktun lengi og eru hafsjór af þekkingu. Samfélag lífrænna ræktenda er lítið á Íslandi en ég kynntist mörgum þeirra í gegnum námið. Það voru allir tilbúnir að deila sinni reynslu og hjálpa nýjum ræktendum. Eitt af því sem er erfitt við lífrænu ræktunina er að það er erfitt að afla sér þekkingar eins og til dæmis á netinu. Eins sorglegt og það nú er, þá eru lífrænir bændur fáir á Íslandi og lítið til af rannsóknum í greininni,“ segir Sunna. „Við höfum nýtt tímann vel á meðan jörðin var í lífrænni aðlögun að byggja upp landið okkar og aðstöðu fyrir ræktunina. Það kemur sér vel að Andri er smiður og höfum við byggt mikið síðan við keyptum jörðina. Búið er að byggja 100 fm gróðurhús og einnig er búið að innrétta stóran bragga sem mun nýtast undir grænmetis vinnsluna. Í bragganum verður pökkunar­ og kaffiaðstaða ásamt vinnsluherbergi þar sem hægt verður að vinna áfram vörur eins og þær sem lenda í öðrum flokki. Komin lengra en ella vegna styrkjanna Garðyrkjustöðin Sólbakki hefur lokið tveggja ára aðlögun og því forvitnilegt að vita hvernig umsóknar­ og aðlögunarferlið hafi gengið fyrir sig – hvort því hafi til dæmis fylgt mikil skriffinnska. „Aðlögunarferlið er tvö ár og því fylgir töluverð skriffinnska en ekkert sem við teljum vera mjög flókið,“ segir Sunna. „Við fáum reglulega úttektaraðila frá Tún sem tekur út okkar starfsemi og passar að við fylgjum settum reglum. Fremur strangt eftirlit er með lífrænum ræktendum en við teljum það vera af hinu góða og hægt er að treysta því að vörur sem eru vottaðar lífrænar séu ræktaðar eftir skilyrðum lífrænnar ræktunar. LÍF&STARF Byggja upp vottað garðyrkjubýli í Hörgársveit Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is Nanna og Andri á gulrótarakrinum. Myndir / úr einkasafni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.