Bændablaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 201948
MATARKRÓKURINN
LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR
Við tókum við búi af foreldrum
Jórunnar árið 2000. Árið eftir
var farið í að breyta básafjósinu
í lausagöngufjós með mjaltabás
í hlöðunni.
Árið 2005 var byggt við og yfir
gamla fjósið og útbúin lausaganga
fyrir geldneyti og fóðuraðstaða.
Árið 2018 var settur mjaltaþjónn.
Býli: Drumboddsstaðir 1 í Biskups
tungum.
Staðsett í sveit: Bláskógabyggð
í Árnessýslu.
Ábúendur: Jón Gunnarsson og
Jórunn Svavarsdóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Gamla settið er heima en
krakkarnir, Laufey Ósk, 19 ára, og
Ólafur Magni, 16 ára, stunda vinnu
og framhaldsskólanám í Reykjavík.
Hundurinn Kátur gætir bæjarins
ásamt fjósakettinum.
Stærð jarðar? Um 400 ha og þar
af ca 90 ha ræktaðir.
Gerð bús? Kúabú.
Fjöldi búfjár og tegundir? Um
60 mjólkurkýr og annað eins af
geldneytum.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Þó kominn sé mjaltaþjónn er enn
farið í fjós á „mjaltatímum“.
En á milli eru árstíðabundin
störf og svo er endalaust hægt að
laga og þrífa ef maður nennir.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Skemmtilegast er
að horfa yfir heilbrigða hjörð.
Leiðinlegast er að gera við eitthvað
bilað og þá sérstaklega flórsköfur.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm
ár? Vonandi blómlegan kúabúskap
því að jörðin býður upp á það.
Hvaða skoðun hafið þið á félags
málum bænda? Þeir sem gefa sig í
það eiga heiður skilinn en grasrótin
þyrfti að vera öflugri.
Hvernig mun íslenskum land
búnaði vegna í framtíðinni? Við
höfum tækifæri í hreinleika en við
þurfum að passa vel upp á hann.
Fá ekki inn alls konar sjúkdóma og
sýklalyfjaónæmar bakteríur.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í útflutningi íslenskra búvara?
Alltaf er maður að vona að það takist
að flytja út skyr framleitt á Íslandi.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Mjólk, ostur, egg og gerjað fljótandi
brauð.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Grillað nautakjöt.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Það var minnisstætt
þegar kýrnar komust út um miðja
nótt í dymbilvikunni og trömpuðu
allt í kringum nýja íbúðarhúsið. Það
vildi til happs að það var hvorki
snjór né hálka og fullt tungl svo
allar kýrnar fundust og engri varð
meint af.
Mexíkóskur og indverskur matur
Í ferðalagi bragðlaukanna er
best að nota íslenskt hráefni en
framandi krydd og matarhefðir
til að gera skemmtilega máltíð.
Hér eru tvær hugmyndir að
klassískum þjóðarréttum með
grænmeti í aðalhlutverki, sem er
ferskt beint frá bónda þessa dagana.
Eitt það besta við að borða er
að smakka rétti frá mismunandi
löndum án þess að þurfa að taka upp
vegabréfið. Kryddið og hráefnið sem
notuð eru í hverri matarhefð gera
matinn einstakan. Ævintýrið byrjar
þegar þú reynir að endurskapa þessa
rétti heima.
Mexíkóskur matur
Tacos er einn vinsælasti mexíkóski
rétturinn, en matur frá Mexíkó er
mjög breytilegur milli svæða. Flestir
þekkja mat í NorðurMexíkó, þar
sem grillað kjöt er borið fram með
hrísgrjónum og baunum. Maís
tortillas eru notað sem brauð og sterk
salsa er notuð með sem krydd fyrir
marga réttina. Í SuðurMexíkó er
að finna sjávarrétti með limesósum
sem bornir eru fram með grilluðu
grænmeti og svörtum baunum.
Loftslag í Mexíkó hentar mjög vel
til ræktunar ávaxta og grænmetis
– og ræktunartíminn er langur.
Helstu krydd og bragðtegundirnar
í mexíkóskri matargerð eru meðal
annars oregano, kúmen, chili,
chiliduft og tómatur.
Ef þessu er öllu blandað saman
geturðu búið til dýrindis salsasósu.
Flestar salsasósur eru byggðar á
tómötum.
Notkun á chilipipar er líka
heillandi og mjög einkennandi fyrir
mexíkóska matargerð. Chilialdin
eru oft soðin, reykt eða þurrkuð.
Indverskur matur
Karrí, samosas og naan brauð
Túrmerik virðist vera mikilvægasta
indverska kryddið. Þegar því hefur
verið bætt út í olíu losar það bragð
og ilm sem er indverskt sérkenni.
Það kemur líka með þennan gullna
lit sem er í indverskum réttum.
Það hefur einnig verið tengt við
lækningaáhrif og bólgueyðandi
eiginleika. Verið varkár þegar
túrmerik er notað því það litar
auðveldlega hendur og föt.
Að auki er indverskur matur oft
með Garam Masala. Það er blanda
af möluðum kanil og negul – eða
kóríander og cummeni. Cummen
er annað mjög indverskt krydd.
Ásamt kóríanderfræjum búa þessar
kryddtegundir til hið lokkandi bragð
af indverskri matargerð.
Taco-salat í steiktum tortillaskálum
Þetta salat í steiktum tortillaskálum er
auðvelt og ljúffengt. Heimabakaðar
ætar skálar eru bakaðar í ofni í
ofnfastri skál til að móta lagið og fá
stökku gullnu áferðina, síðan fylltar
með tacokjöti og fersku salati að
eigin vali ásamt salsa og sýrðum
rjóma.
Fyrir skálarnar:
Olía til að pensla skálarnar og fá
fallega skorpu.
2 stórar tortillur
Fyrir salatið:
› 1 pakki nauta- eða lambahakk
› 1/2 lítill laukur skorinn í teninga
› 1 lítil dós af svörtum baunum (safa
hellt af)
› 1 msk. taco-krydd
› Salat að eigin val
› 1 tómatur (teningur)
› 1 bolli ostur (rifinn)
› 2 msk. sýrður rjómi
Aðferð
Hitið ofn í 190 gráður.
Setjið eina tortilla í bakfast form.
Þrýstu því mjög rólega niður.
Steikið tortilla þangað til það er
brúnt og stökkt í um það bil 5 eða
10 mínútur (misjafnt eftir ofnum).
Endurtakið með seinni tortilluna.
Brúnið nautahakk og lauk á pönnu
yfir miðlungs hita. Bætið síðan
við tacokryddi og eldið í gegn og
kryddið eftir smekk.
Bætið svörtum baunum í tacokjötið
og eldið þar til þær eru hitaðar í
gegn.
Framreiðið með meðlætinu, kjöt
blöndu, tómötum, osti, sýrðum
rjóma.
Blómkál pakora
Þessi blómkál pakora er auðvelt að
búa til. Fullkomin indverska máltíð
eða sem meðlæti.
› 1–2 stk. blómkál skorið í 95 g bita
› 32 g kjúklingabaunahveiti (einnig
kallað gramm hveiti / garbanzo hveiti)
› 1/4 tsk. salt
› 1/4 tsk. túrmerik
› 1/4 tsk. hvítlaukur (rifinn/marinn)
› 1/4 tsk. engifer (ferskur, rifinn)
› 3 msk. vatn eða aðeins meira ef þörf
krefur
Aðferð
Skerið blómkálið í bita.
Blandið saman kjúklingamjöli, salti,
túrmerik, hvítlauk, engifer og vatni
til að gera deigið. Það ætti að festast
aftan á skeið. Setjið blómkálsbita í
deigið og blandið vel saman svo
blómkálsbitarnir séu vel húðaðir í
deiginu.
Hitið smá bragðlausa olíu á steikar
pönnu, svo er blómkálið steikt á
miðlungs hita.
Þegar pakora er búin að eldast í um
það bil 2–3 mínútur og er orðin gyllt
á lit, snúðu við með skeið og eldaðu
hinum megin. Snúið öðrum hliðum
sem ekki eru orðnar brúnar. Þegar
það er búið takið þá blómkálið af
pönnunni með gaffli til að umfram
olía leki af og setjið síðan á pappír
til að þerra.
Endurtakið með restinni af deiginu.
Berið fram annaðhvort raita (með
kryddaðri jógúrtdýfu). Eða sem snakk
með papadums sem er fljótlegt kex.
Bjarni Gunnar Kristinsson
matreiðslumeistari
Drumboddsstaðir 1