Bændablaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 9

Bændablaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 9
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2019 9 Landbúnaðarháskóli Íslands úthlutaði nýverið úr doktorssjóði skólans í fyrsta sinn. Tilgangurinn með doktorssjóði skólans er að efla Landbúnaðarháskóla Íslands sem alþjóðlegan rannsóknaháskóla, auka enn frekar þekkingu á fræðasviðum náttúruvísinda, auðlinda- og búvísinda á Íslandi og gera efnilegum nemendum kleift að stunda doktorsnám við skólann. Tveir styrkir voru til úthlutunar og þá fengu þær Heiðrún Sigurðar­ dóttir og Jónína S. Þorláksdóttir. Þess má geta að 11 nýjar umsóknir um doktorsnám hafa borist skólanum á árinu og er stór hluti þess þegar samþykktur og fjármagnaður. Það er mikill fengur fyrir skólann að fjölga í hópi sérfræðinga sem munu efla rannsóknir og nýsköpun í þessum mikilvægu greinum og bera með sér ferska strauma og nýjar hugmyndir. Erfðafræðilegur grunnur gangtegunda íslenska hestsins Doktorsverkefni Heiðrúnar ber heitið Exploring the genetic regulation of ability and quality of gaits in Icelandic horses. Markmið verkefnisins er að veita innsýn í erfðafræðilegan grunn gangtegunda íslenska hestsins; hvaða þættir ráða eða hafa áhrif á ganghæfni og gæði gangtegunda. Í dag erum við einungis á byrjunarreit þegar kemur að því að greina erfðafræðilegan grunn magnbundinna gangeiginleika. Á sama tíma er ekkert hestakyn í heiminum sem býr yfir jafn umfangsmiklum og nákvæmum svipfarsmælingum og íslenski hesturinn. Þar gefst því stórkostlegt tækifæri til að hefjast handa við að vinda ofan af leyndardómum erfðamengis íslenska hestsins á markvissan hátt. Heiðrún s tefni r að sameiginlegri doktorsgráðu frá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) og Landbúnaðarháskólanum í Svíþjóð (SLU). Leiðbeinendur Heiðrúnar er hópur fræðimanna á sviði erfðafræða og búfjárræktar, dr. Susanne Eriksson, dósent við SLU, dr. Gabriella Lindgren, prófessor við SLU, dr. Marie Rhodin, dósent við SLU, dr. Elsa Albertsdóttir hjá Bændasamtökum Íslands og dr. Þorvaldur Kristjánsson, ábyrgðarmaður hrossaræktar og gestalektor við LbhÍ. Samþætting þekkingar ólíkra hagsmunaaðila Doktorsverkefni Jónínu ber heitið Implementation and impact of stakeholder engagement within a new vegetation and soil monitoring programme of Icelandic range­ lands. Markmið verkefnisins er að kanna hvernig samvinna og samþætting þekkingar ólíkra hagsmunaaðila, m.a. vistfræðinga og landnotenda í vöktun og mati á gróður­ og jarðvegsauðlindum beitilanda geti skapað betri grunn fyrir sjálfbæra landnýtingu. Þá verður skoðað hvernig brúa megi bilið milli þeirra sem safna saman þekkingu um ástand vistkerfanna og þeirra sem taka ákvarðanir um hvernig nýta eigi þessi sömu vistkerfi. Verkefni sem tvinna saman vísindalegar rannsóknir og þátttökunálganir á sviði vöktunar og sjálfbærrar landnýtingar eru í dag af skornum skammti og mun verkefnið því afla mikilvægrar þekkingar sem mun nýtast áfram á sviði þverfaglegra rannsókna. Auk þess munu niðurstöður verkefnisins nýtast beint inn í GróLindarverkefni Landgræðslunnar, en rannsóknin verður unnin í tengslum við það. Jónína stefnir að sameigin legri doktorsgráðu frá Landbúnaðar­ háskóla Íslands (LbhÍ) og Wagen­ ingen háskólanum (WUR) í Hollandi. Leiðbeinendahópur Jónínu er með breiðan fræðilegan bakgrunn, sem hentar vel þverfaglegu eðli verkefnisins. Þetta eru dr. Ása L. Aradóttir, prófessor við LbhÍ, dr. Annemarie van Paassen, dósent við WUR, dr. Isabel C. Barrio, dósent við LbhÍ og dr. Bryndís Marteinsdóttir hjá Landgræðslunni. /VH Landbúnaðarháskóli Íslands: Fyrstu úthlutanir úr doktorsnámssjóði Heiðrún Sigurðardóttir. Jónína S. Þorláksdóttir. Mývetningar fara í sund á Laugum – Fá ókeypis rútuferðir Mývetningum gefst áfram kostur á að nýta sér ókeypis sundferðir á Laugar, en sveitarfélagið bauð upp á ferðir í sundlaugina á Laugum á vorönn, einu sinni í mánuði. Alls voru farnar 5 ferðir yfir tímabilið og nýttu sér samtals 46 manns rútuferðir úr Skútustaðahreppi að Laugum. Heildarkostnaður við rútuferðirnar var 250 þúsund krónur. Við bætist kostnaður að upphæð 125 þúsund krónur samkvæmt samkomulagi við Þingeyjarsveit á ársgrundvelli um aðgengi að sundlauginni. Sveitarstjórn Skútustaðahrepps samþykkti samhljóða að halda áfram að bjóða upp á ókeypis sundferðir í sundlaugina á Laugum einu sinni í mánuði fram að áramótum, enda rúmast það innan fjárheimildar ársins. /MÞÞ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.