Bændablaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 201940
Nóvemberkaktus, Schlum
bergera truncata, hefur verið
vinsæl pottaplanta í tugi ára og
eflaust muna margir eftir honum
sem risastórum, hangandi með
glæsilegum, tvöföldum, túbulaga
blómum heima hjá ömmu. Hann
er auðveldur í ræktun og er allur
hinn glæsilegasti.
Ræktaðir hafa verið margir
blendingar nóvemberkaktusa og
hinna skyldu desember kaktusa
sem blómstra á mismunandi
tímum og mörgum litum. Það
dásamlega er að þeir blómstra
þegar flestar aðrar blómstrandi
inniplöntur eru komnar í vetrarfrí.
Heimkynni í Brasilíu
Nóvemberkaktus tilheyrir lítilli
ættkvísl og er ólíkur öðrum
kaktusum að því leyti að hann
er engin sérstök þurrlendisjurt.
Náttúruleg heimkynni eru rakir
skógar strandfjalla í suðaustur
hluta Brasilíu. Þar vex hann í 700–
1000 metra hæð yfir sjávarmáli
á skuggsælum, rökum stöðum
sem ásæta á trjám og klettum.
Því þarf að huga vel að því að
veita honum nægan raka og gott
vatnsfrárennsli.
Almenn umhirða
Kjörin staðsetning fyrir nóvember
kaktus er á björtum stað en forðast
skal beint sólarljós. Ef hann er
berskjaldaður fyrir sól brenna
laufin og verða rauðleit. Ef hann
er nærri norður eða austurglugga
þurfum við síður að hafa áhyggjur
af því. Ákjósanlegt rakastig er í
kringum 60% sem sjaldan næst í
okkar þurra stofulofti. Því þurfum
við að leita leiða til að veita
honum nægan loftraka. Hægt er
að staðsetja undirskál með vikri
undir pottinn sem vökvunarvatnið
lekur í. Þá gufar vatnið upp með
tímanum og leikur um plöntuna.
Vikurinn í undirskálinni kemur í
veg fyrir að rætur plöntunnar liggi
í vatni og rotni. Önnur aðferð til
að auka loftrakann er að úða hana
með vatni. Umpottað er sjaldan því
ræturnar mega búa fremur þröngt.
Tími umpottunar er í mars. Sem
pottaplanta í heimahúsum þarf að
hafa loftríka moldarblöndu, til að
mynda 60% gróf mold og 40%
vikur. Ólíkt öðrum kaktusum ætti
nóvemberkaktus ekki að þorna
milli vökvana nema ef til vill að
lokinni blómgun. Vökvað er vel
á vaxtartíma og þegar vökvað er
þarf að leyfa vatninu að leka vel
af.
Örvun blómmyndunar
Til að örva blómmyndun og eiga
von á stórfenglegum blómum í
nóvember er dregið úr vökvun
um miðjan október. Kaktusinn er
settur í almyrkvun í um 13 tíma
á sólarhring en hafður í góðri
birtu þess á milli. Miðað við
birtumagn hérlendis á þessum
árstíma er líklega óþarfi að
færa hann og huga einungis að
hitastiginu. Staðurinn þarf að
vera svalur. Þegar blómbrum
sjást er valinn staður þar sem
hann fær að vera óhreyfður því
brumin eru viðkvæm og falla
auðveldlega af.
Meðan blómbrum myndast
og út blómgunartímann ætti að
gefa blómaáburð sem inniheldur
nitur í lágmarki en meira af fosfór
og kalí. Eftir blómgun er komið
að svokölluðum „hvíldartíma“
kaktussins, þá má hann þorna
milli vökvana.
Auðveldur í fjölgun
Ef plantan hefur tilhneigingu að
verða gisin er kjörið að taka nokkra
stilka með 2–3 „blöðum“. Þá þéttir
plantan sig og maður getur fjölgað
henni með græðlingum. Þetta þarf
að gerast á vorin, svona um það
leyti sem plantan er að hefja nýtt
vaxtartímabil, í apríl/maí. Það
tekur aðeins örfáa daga að þurrka
græðlingana svo skurðarsárin grói
og rætur myndast auðveldlega.
Eftir nokkrar vikur hafa myndast
nýjar smáplöntur sem gefa má
vinum og vandamönnum, til
mikillar gleði og ánægju.
Telma Halldórsdóttir,
nemi í garðyrkjuframleiðslu á
LbhÍ Reykjum.
GARÐYRKJUSKÓLI LBHÍ REYKJUM
Nóvemberkaktus – vinsæl
vetrarprýði
MENNING&LISTIR
Guðjón Rúdolf Guðmundsson tónlistarmaður með eintak að nýju plötunni sem inniheldur brot af því besta sem
hann hefur sent frá sér til þessa. Mynd / H.Kr.
Nokkrar leiðbeiningar í alþýðutónlist fyrir byrjendur:
„Best of“ Guðjón Rúdolf til þessa
Guðjón Rúdolf Guðmundsson
flutti til Árósa í Danmörku fyrir
rúmum tuttugu árum og kann
vel við sig á flatneskjunni. Gaui,
eins og hann er yfirleitt kallaður,
er með tóneyra frá náttúrunnar
hendi og er tónlistarmaður af
goð anna náð.
Áður en Gaui flutti út lék hann
með hljómsveitunum Infernó
5 og Kíkóte vindmyllurnar og
hélt árlega tónleika undir heitinu
Sköllótta tromman. Eftir komuna
til Danmerkur hefur hann spilað og
sungið með Krauku sem leikur tónlist
í anda víkinga. Gaui er ómenntaður
í tónlist og spilar eftir eyranu. Faðir
hans var lærður tónlistarmaður frá
Þýskalandi og að sögn Gauja reyndi
hann að koma í veg fyrir að hann
legði fyrir sig tónlist að ævistarfi.
„Hann vildi mér vel.“
Gaui sendi nýlega frá sér vínyl
plötu sem hann kallar Nokkrar
leiðbeiningar í alþýðutónlist
fyrir byrjendur og er safn af
tónlist sem hann hefur gefið
út úr undir eigin nafni. Hann
segir að þetta sé eins konar
„best of“, eða samantekt á því
besta sem hann hefur unnið í
samvinni við Þorkel Atlason
tónskáld undanfarin ár.
Lög af þremur diskum
„Lögin eru valin af þremur
geisladiskum, eða eins konar
þríleik. Þannig vildi til að þegar
ég flutti til Danmerkur var ég
farinn frá vinum mínum á Íslandi
og þekkti fáa á nýja staðnum.
Ég var á tímabili hættur að spila
opinberlega og spurði Þorkel, sem
þá bjó í Árósum, hvort hann ætti
upptökutæki, sem hann gerði. Því
næst fórum við niður í kjallara
heima hjá honum og ég spilaði allt
sem ég kunni og Þorkell tók það upp.
Síðan leið og beið og ég heyrði
ekkert frá Kela og ég hugsaði
náttúrlega allt á versta veg eins
og mér er lagið. Sem betur fer
fyrir mig var Þorkell atvinnulaus
á þessum tíma og hafði því góðan
tíma til að grúska í upptökunum með
hljómfræði og sinn tónlistabakgrunn
að vopni.
Þegar Þorkell hafði svo að lokum
samband sagði hann að ég færi víða
um á upptökunum og að lokum var
gefinn út geisladiskur sem fékk heitið
Minimania, nokkrar leiðbeiningar
fyrir byrjendur.
Á þeim diski er að
finna alla hljóma
f i m m u n d a r
hringsins nema
einn og það átti að
vera gáta hvaða
hljóm vantaði. Í
kjölfarið fylgdu
svo tveir aðrir
diskar, Þjóðsögur
og Regnboginn,
sem við Keli
unnum saman.
Eftir á að hyggja sýnist
mér að titlarnir lýsi lífshlaupi
mínu ágætlega. Ungur var ég
minimanskur og síðan kom
Þjóðsöngurinn með öllum
kvörtununum og þrasinu
og svo Regnboginn sem
er leiðin til Valhallar.“
Lögin endurútsett
fyrir vínylinn
Tónlistin á plötunni er
endurunnin og endur
útsett af Þorkeli fyrir
vínyl útgáfuna og því
aðeins öðruvísi en á
geisla diskunum. Á
plötunni er meðal
annarra gullkorna að
finna lögin Tangó,
Zambadusa og
Húfan sem naut
mikilla vinsælda
fyrir nokkrum
árum og heyrist
enn oft þegar fólk
kemur saman og
gerir sér glaðan
dag, hvort sem
það er í barna
afmælum eða á
þorra blótum.
Platan gefur
góða yfirsýn
yfir tónlist og
texta Gauja
sem trúbadors og svíkur engan
sem hefur áhuga á einlægri og
skemmtilegri tónlist. Listsköpun
sem er allt í senn rúmba, samba og
Guðjón Rúdolf og Þorkell Atlason tónskáld um það leyti sem Minimania
kom út árið 2003.
Nóvemberkaktus tilheyrir lítilli ættkvísl og er ólíkur öðrum kaktusum
að því leyti að hann er engin sérstök þurrlendisjurt.
Kjörin staðsetning fyrir nóvember
kaktus er á björtum stað en forðast
skal beint sólarljós.
Til að örva blómmyndun og eiga
von á stórfenglegum blómum í
nóvember er dregið úr vökvun
um miðjan október.