Bændablaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2019 43
mjólkurframleiðslu Shengmu þarna.
Þá hjálpaði upp á ákvörðunina að
þurr eyðimörkin er líka heppileg
fyrir þær sakir að þarna er langt í
næsta kúabú sem dregur úr líkum
á því að mögulegt smit berist inn
á búið auk þess sem sandur er
heppilegur í nærumhverfi kúa, þar
sem smitefni eiga harla erfitt með
að fjölga sér í þurrum sandi.
2 ára vinnslutími
Fyrirtækið fékk úthlutað hluta af
Ulan Buh eyðimörkinni og svo
var hreinlega hafist handa við að
jafna margra metra háar sandöldur
og lægðir á stærðarinnar svæði og
voru notaðar til þess mikill fjöldi af
jarðýtum og þúsundir vinnustunda.
Fyrst var byggður vegur eftir miðju
svæðinu og svo út frá honum jafnað
land fyrir ræktun og fjós.
Um gríðarlega umfangsmikið
verkefni var að ræða enda stóð ekki
til að byggja bara eitt fjós heldur 18
fjós með um 3 þúsund skepnum í
hverju þeirra! Frá því að fyrstu tækin
voru sett af stað inn í eyðimörkinni,
og þar til fyrsta fjósið var tilbúið,
liðu 2 ár sem er eiginlega ótrúlega
stuttur tími miðað við umfang
verkefnisins enda var ekki bara verið
að slétta land undir fjósin heldur
fyrst og fremst verið að slétta land
fyrir ræktun svo hægt væri að afla
fóðurs fyrir alla framleiðsluna.
Nóg af vatni
Eins og áður segir þá er þessi
óvenjulega eyðimörk ofan á þéttu
og vatnsheldu leirlagi og því er í
raun nóg vatn til neðanjarðar á
svæðinu. Það var því einfalt mál fyrir
fyrirtækið að ná í vatn til vökvunar á
ökrum, fyrirtækið boraði einfaldlega
eftir vatni sem er svo pumpað upp og
yfir í öll fjósin og í vökvunarkerfin.
Allir akrar Shengmu eru hringlaga
enda eru vökvunarkerfin þannig gerð
að þau eru fest í miðju hvers stykkis
og út frá miðjunni liggur gríðarlega
langur armur á hjólum sem keyrir
svo hring eftir hring eins og vísir
á klukku.
Úr sandi í ræktarland
Það tekur alllangan tíma að breyta
þurrum sandi í ræktarland og þó
svo að aðgengi að nægu vatni sé
grunnforsenda góðs árangurs þá
þarf ýmislegt annað að ganga upp
einnig og hjá Shengmu er lykillinn
góður ræktunarferill og þolinmæði!
Þegar búið er að jafna
sandöldurnar og gera þær tilbúnar
fyrir vökvunarkerfin, er byrjað á
því að dreifa mykju yfir svæðið
fyrsta árið og svo sáð í sandinn.
Uppskeran fyrsta árið er skiljanlega
lítil en fyrirtækið ræktar þrjár gerðir
af plöntum: fóðurmaís, sólblóm og
refasmára og að sögn heimamanna
tekur það um fimm ár að ná fullri
uppskeru, enda tekur tíma að binda
sandinn og ná fullum afköstum.
Þá hefur verið lögð mikil vinna í
skjólbeltaræktun en sandfok er
mikið vandamál á svæðinu og henta
skjólbeltin vel til þess að draga úr
sandfokinu að sögn heimamanna.
Staðan í dag
Nú, 10 árum eftir að fyrirtækið
var stofnað, er það enn í miklum
vexti og er nú þegar orðið lang-
stærsti einstaki framleiðandi á
lífrænt vottaðri mjólk í heiminum.
Við hinn svokallað Mjólkurveg í
Ulan Buh eyðimörkinni standa nú
18 fjósþyrpingar og er hver þeirra
í raun sjálfstæð framleiðslueining
en þó er margs konar samvinna á
milli fjósþyrpinganna. Skýringin á
því að Shengmu ákvað að fara þá
leið að vera með margar heldur
minni einingar í stað þess að vera
með fáar og stórar var til að draga úr
líkum á smithættu og að ef eitthvað
kæmi upp á, þá væri auðveldara að
takast á við það í minni einingu.
Shengmu er auk þessara 18
fjósþyrpinga með 5 aðrar þyrpingar
á öðrum stað svo fyrirtækið er
alls með 23 fjósþyrpingar, um 40
þúsund Holstein kýr og nemur árs-
framleiðsla fyrirtækisins um 400
milljón lítrum af mjólk. Reyndar
er ekki öll mjólkin framleidd
samkvæmt lífrænum stöðlum svo
hin lífræni hluti er heldur minni.
Þá er lífræna ræktunin þegar orðin
gríðarlega umsvifamikil og alls nær
hún nú yfir 13 þúsund hektara svæði
í eyðimörkinni en stefnt er að því
að auka ræktunina um 10 þúsund
hektara á komandi árum enda fékk
Shengmu úthlutað 2% af Ulan Buh
eyðimörkinni og getur því notað allt
að 28 þúsund hektara lands alls.
Selja mjólk og jógúrt
Mjólkin, sem kemur frá hinum
lífrænt vottuðu fjósum Shengmu,
fer í dag í eigin afurðastöð sem svo
selur lífrænt vottaða drykkjarmjólk
og jógúrt. Salan er gerð í samvinnu
við kínverska afurðafyrirtækið
Mengniu, sem er að hluta til í eigu
norður-evrópska afurðafélagsins
Arla sem er afar viðeigandi enda er
Arla stærsta afurðafélag í heimi á
sviði lífrænt vottaðra mjólkurvara.
Aðalnúmer: 412 5300 | Söludeild: 412 5350
limtrevirnet.is
Íslenskar einingar
fyrir íslenskt veðurfar
Hjá Límtré Vírnet færðu hinar einu og sönnu Yleiningar
- stálsamlokueiningar með steinullareinangrun á milli.
Hagkvæm, umhverfisvæn og myglufrí byggingarlausn.
Stuttur afgreiðslufrestur.
Kynntu þér Yleiningar á limtrevirnet.is.
Söluskrifstofur - Lynghálsi 2 - 110 Reykjavík
Borgarbraut 74 - 310 Borgarnes
Netfang - sala@limtrevirnet.is
Þegar framkvæmdirnar hófust var svæðið samkvæmt lýsingu heimamanna alsett sandöldum líkt og hér má sjá.
Hér má sjá hvernig ræktunin er gerð. Hringlaga akrar eftir vökvunarkerfin sem ganga í hring út frá miðju. Til hliðar
sést í fjósþyrpingu.