Bændablaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 23
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2019 23
Sala og ráðgjöf
Sími 540 1100
www.lifland.is
lifland@lifland.is
Reykjavík
Lyngháls
Borgarnes
Borgarbraut
Akureyri
Óseyri
Blönduós
Efstubraut
Hvolsvöllur
Ormsvöllur
Náðu hámarksárangri með
heildarlausn frá Líflandi
Markmið okkar er að styðja bændur með markvissum og
vísindalegum hætti í átt að hámarksárangri. Lífland býður
upp á kjarnfóður fyrir öll tímabil á vaxtartíma nautkálfa.
Allar blöndurnar innihalda sérlagaða steinefna og vítamínblöndu ætlaða nautgripum í vexti.
Vinsamlega hafið samband við söluráðgjafa okkar í síma 540 1100
til að fá nánari upplýsingar
Kálfaþróttur
Kálfaþróttur er kjarnfóður sem hentar naut-
og kvígukálfum frá 3ja mánaða aldri til
vöðvauppbyggingar og þyngdaraukningar.
Kálfamúslí kemur kálfum fyrr til að éta kjarn fóður
og hentar fyrstu 3 vikurnar, þar til kálfar hafa náð
góðum tökum á áti.
Bolabætir er kjarnfóður til að gefa nautkálfum
síðustu vikurnar fyrir slátrun. Bolabætir
inniheldur m.a. 52% maís og er því mjög sterkju-
og orkuríkur. Hátt hlutfall maís ýtir undir betri
fitusprengingu í kjöti.
Bolabætir stuðlar að þyngdaraukningu
nautkálfa á síðasta vaxtarskeiðinu.
Kálfamúslí
Bolabætir
Alikálfakögglar
Alikálfakögglar eru próteinríkir og lystugir
kögglar fyrir ungkálfa frá burði að 3ja mánaða
aldri.
„Á norræna tímatalinu var gamli
forn-síderinn kallaður bjor (á ensku
beor) og var sennilega búinn til
úr villieplum, berjum, mjað jurt
og örlitlu hunangi. Bjor á ekkert
skylt við nútímabjór. Í Allvismál
fjallar dvergurinn Allvis um ólíkar
brugganir, ekki ólíkar tegundir af
bjór. Bjor var drykkur Æsanna
vegna þess að hunang var svo
dýrt. Hreint hunangsvín var ekki
notað fyrr en löngu seinna þegar
hunangsflugnaræktun varð algeng.
Í epíkinni um Sigurð Fáfnisbana
gefur Brynhild minningardrykk til
Sigurd sem er bæði kallaður bjor
og mjöður.“
Svæðisbundin matvæli og drykkir
Þau hjónin eru sammála um að
margt hafi breyst í viðhorfi gagnvart
heimaframleiðslu bænda frá því að
þau byrjuðu að markaðssetja sínar
vörur. Möguleikar bænda séu mun
meiri í dag en áður þar sem hægt sé
að byggja undir grunnframleiðsluna.
„Fyrstu árin var enginn sem
þekkti nýpressaðan hreinan eplasafa.
Fólk var vant því að kaupa og drekka
síaðan eplasafa í fernum. Margir
veltu því fyrir sér hvort eitthvað
væri að vörunni þegar það lá seti á
botninum á flöskunum. Í dag er meira
að segja á fínustu veitingahúsum
borinn fram nýpressaður hreinn
eplasafi sem fólki líkar vel svo það
hafa orðið stórar breytingar til hins
betra. Svæðisbundin matvæli og
drykkir hafa fengið allt aðra stöðu
í dag en áður,“ segir Åge og þegar
talið berst að veitingastað þeirra
hjóna útskýrir hann:
„Veitingastaðurinn er opinn dag-
lega allt sumarið þar sem við bjóðum
upp á kvöldverð frá miðjum júní
og fram í miðjan ágúst. Fyrir og
eftir sumartímann framreiðum við
hádegis verð hér. Hér í Ciderhuset
erum við með síder veitingastað þar
sem við bjóðum upp á 14 mismunandi
tegundir af síder, eitthvað fyrir alla
og alltaf eitthvað sem passar við
ólíka rétti. Tengdadóttir okkar er
frá Tyrklandi og hún hefur þróað
eldhúsið hér sem er innblásið af
matseld Miðjarðarhafsins og blandar
því saman við hefðbundna norska
rétti eins og reyktan lax og súrsíld.
Við erum afar þakklát og ánægð með
það að veitingastaðurinn hefur fengið
góða dóma, til dæmis á Tripadvisor
og á samfélagsmiðlunum, og það
hjálpar allt til við reksturinn, sem
gerir okkur kleift að vera með 10
starfsmenn yfir sumartímann.“
Gamalt eplapressunartæki sómir sér vel sem skraut og hilla í Ciderhuset.
Í vor keyptu þau hjónin þennan
forláta skemmti- og hjólavagn frá
Spáni sem margir hópar nýttu sér
í sumar. Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Dreift í 32 þúsund eintökum á yfir 420 dreifingarstaði og öll lögbýli á Íslandi
Hvar auglýsir þú?
Sími 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is
45,6% fólks
á landsbyggðinni
les Bændablaðið
20,4%
45,6%
á landsbyggðinniá höfuðborgarsvæðinu
29,5%
landsmanna lesa
Bændablaðið
Lestur Bændablaðsins: BÆNDABLAÐIÐ ER GEFIÐ ÚT Í 32 ÞÚSUND
EINTÖKUM Á TVEGGJA VIKNA FRESTI
Heimild: Prentmiðlakönnun Gallup, okt.-des. 2018. Aldur 12-80 ára.