Bændablaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2019 39
List án landamæra er listahátíð
sem leggur áherslu á list fatlaðs
fólks. Tilgangur hátíðarinnar er
að auka menningarlegt jafnrétti
og fjölbreytni með því að skapa
faglegan vettvang og tækifæri
fyrir fatlaða listamenn.
Hátíðin var sett af Elizu Reid
forsetafrú laugardaginn 5. október
kl. 15.00 í hátíðarsal Gerðubergs
með veigamikilli dagskrá. Sam
sýning Listar án landamæra var
opnuð á sama tíma í sýningarrými
Gerðubergs á fyrstu hæð. Þar sýna
17 listamenn verk sem teygja sig úr
hinu tvívíða yfir í hið þrívíða.
Þannig má sjá teikningar sem
lifna við í leirverkum, málaðar
ofurhetjur og skúlptúra sem líkja
eftir aukahlutum þeirra, fígúrur
sem hafa verið skornar út í tré og
prjónaðar í teppi og lifandi blóm
sem hafa verið ræktuð upp af fræi
og eftirmyndir þeirra sem skornar
eru út í við. Verkin á sýningunni eru
fjölbreytt og er þeim ætlað að sýna
alla þá breidd sem listamennirnir
spanna.
Helgina 12.–13. október verður
listamarkaður þar sem fjöldi lista
manna mun selja verk sín og hand
verk. Verkin verða af ýmsum toga,
m.a. málverk, teikningar, útsaumur
og tréverk. Þeir sem taka þátt í
markaðnum eru bæðir þekktir og
nýlegir listamenn. Hér gefst einstakt
tækifæri til þess að næla sér í fágæt
verk eftir einstaka listamenn.
Meðal annara viðburða má
nefna morgunverðarfund fyrir
stjórnendur og skipuleggjendur
menningarviðburða í Gerðubergi
18. október undir yfirskriftinni
Aðgengi að menningu fyrir fatlað
fólk og lokatónleika hátíðarinnar
með Bjöllukór Tónstofu Valgerðar
19. október.
Að auki er öflug utandagskrá
samhliða hátíðinni. Má þar nefna
verkið Kötturinn fer sína eigin
leið eftir Ólaf Hauk Símonarson,
sem Tjarnarleikhópurinn flytur
20. október í Iðnó. Einnig verða
vinnustofur, myndlistarsýningar,
ljósmyndasýning og margt fleira.
Alla dagskrá Listar án landamæra
má sjá á heimasíðunni http://www.
listin.is. /VH
Loksins komust ferðalangar í
dótabúð. Hede Denmark starfrækir
mjög vinsæla netþjónustu á heima
síðunni HD2412.dk. Þar er megin
áhersla á vörur í tengslum við ræktun
jólatrjáa. Í birgðastöð HD2412 er
einnig lítil búð þar sem hægt er að
skoða helstu vörurnar.
Dagur 4: Tæki og tól
Skive er skemmtilegur lítill bær sem
gaman er að skoða, en flestir fóru
í skoðunarferð um bæinn þennan
morguninn. Eftir hádegið var lagt
af stað sem leið lá á flugvöllinn í
Billund, með nokkrum stoppum á
leiðinni. Fyrsta stopp var í Herning
og stór Ponsse skógarhöggsvél, í
eigu Heda Danmark, skoðuð við
grisjun í blandskógi. Þarna höfðu
nýir eigendur jarðarinnar ákveðið að
fella skóginn, sem var blandskógur
af lerki og ösp. Ætlunin var að skipta
því út fyrir eik. Þótt vöxtuleg tré hafi
leynst innan um, sem vel hefði mátt
selja sem timbur, þá svaraði það ekki
kostnaði vegna blöndunarinnar.
Skammt frá var verið að kurla við
úr fyrir slóð. Í Danmörku tíðkast að
saga úr fyrir slóðum þegar trén eru
um 5 metra há. Efnið er látið liggja í
slóðinni og að ári liðnu er það kurlað
og sett í brenni. Nokkru síðar eru
slóðirnar notaðar til að komast um
með tæki til að grisja skóginn í heild.
TP kurlaraverksmiðjurnar eru í
Vejle, skammt frá Billund. Hópnum
var boðið upp á veitingar og sagt
frá því hvað felst í góðum kurlara.
TP eru mjög framarlega á sínu
sviði og selja vörur sínar aðallega
til Þýskalands og Bretlands, auk
Skandinavíu auðvitað. Nýjustu
fréttir í kurlheiminum eru rafdrifnir
kurlarar, en þeir eru að koma með
einn slíkan á markað. Verksmiðjan
hafði tvo tæknilega róbóta við
vinnsluna sem eykur afkastagetuna
verulega.
Steinsnar frá TP kurlurunum
var önnur verksmiðja. Þar voru
framleiddir stubbatætarar. Þetta er
verksmiðja sem hefur vaxið hratt
og eru tækin þeirra mjög vinsæl,
sérstaklega í Þýskalandi. Þeir voru
til af nokkrum stærðum en áttu það
allir sammerkt að tæta í sundur
eftirstandandi trjástubba og rætur
af felldum trjám. Ásafl er fyrirtæki
á Íslandi sem hefur umboð fyrir bæði
stubbatætarana og TP kurlarana.
Dagur var að kveldi kominn
og næsta stopp var í flugstöðinni
á Billund. Nú beið bara flug heim
til Íslands eftir vel heppnaða ferð
til Jótlands.
Föruneytið var skipað eftir
farandi: Gissur Pétursson, Arnheiður
Gígja Guðmundsdóttir, Bjarni
Björgvinsson, Ólöf Guðmundsdóttir,
Óskar M. Alfreðsson, Einar
Zophoníusarson, Jón Júlíusson,
Jónína Zophoníusardóttir, Jóhann
Gísli Jóhannsson, Ólöf Ólafs dóttir,
Maríanna Jóhannsdóttir, Óskar
Bjarnason, Hörður Harðarson, María
Guðný Guðnadóttir, Arngrímur
Baldursson, Svana Halldórsdóttir,
Lára María Ellingssen, Ólöf Hörn
Erlings dóttir, Sigurður Hólm
Sæmundsson, Jón Zimsen, Jóhanna
H. Sigurðardóttir, Guðmundur
H. Gunnarsson, Þórhildur
Sigurbjörnsdóttir, Ragnheiður
Jóhannesdóttir, Stefán Ólafsson,
Gunnar Ingi Gunnarsson, Vigdís
Hallgrímsdóttir, Kristín Álfheiður
Arnórsdóttir, Sighvatur Jón
Þórarinsson, Guðmundur Albert
Birgisson, Reynir Ásgeirsson,
Hoby Tibo Chrisansen, Böðvar
Jónsson, Októ Einarsson, Hraundís
Guðmundsdóttir og Hlynur Gauti
Sigurðsson. Fararstjórn og skipulag
var í höndum Christen Nørgård og
Örnu Jóhannsdóttur.
Hlynur Gauti Sigurðsson
Skjólbeltin á gróðrarstöðinni í Hjörtehede var eins metra breitt og 5 metra
hátt klippt grenihekk. Mynd / CN
Sifjalerkið er mikið ræktað í gróðrarstöðinni í Hjorthede.
Í ríkisskóginum í Feldsborg er stunduð síþekjuskógrækt en þarna mun
beykið í botninum einn daginn verða aðaltegundin á svæðinu. Mynd / MJ
Þegar timburstæður gleymast vakna
þær til lífs. Mynd / MJ
Málþing um viðargæði og afurðir
laugardaginn 12. október,
á Hótel Kjarnalundi, Akureyri
skogarbondi.is
Ný heimasíða
og vefverslun
Dynjanda
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
Í tilefni opnunar á nýrri heimasíðu og
vefverslun býður Dynjandi afslátt af
fjölmörgum vörum.
Notaðu afsláttarkóðann: Dynjandi
og þú færð 15% afslátt.
Kynntu þér afsláttarvörurnar
á heimasíðu okkar:dynjandi.is
AFSLÁTTARMIÐI
Næsta
Bændablað
kemur út
24. október
List án landamæra
MENNING&LISTIR