Bændablaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 27
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2019 27
Plettac vinnupallar
- Protekt fallvarnarbúnaður
Láttu öryggi og lausnir ráða ferðinni
s. 618 8418 • vinnupallarehf@gmail.com
ÞÖKK
UM F
YRIR
FRÁB
ÆRT
SUMA
R
- SJÁ
UMST
Á VE
RK O
G VIT
2020
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.isHöldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · BVA Egilsstöðum
www.hekla.is/volkswagensalur
Vertu klár fyrir veturinn
Volkswagen atvinnubílar
Volkswagen Caddy
1.2 TSI beinskiptur
Tilboðsverð 2.690.000 kr.
Verðlistaverð 2.990.000 kr.
Volkswagen Transporter
2.0 TDI Beinskiptur
Tilboðsverð 4.390.000 kr.
Verðlistaverð 4.950.000 kr.
*Búnaður á mynd getur verið frábrugðinn bílum á tilboðsverði. Sjá staðalbúnað á volkswagen.is.
tökur og grös en líka náttúrusteinar.
Notkun þeirra var viðurkennd sem
lækningaráð og talin fullsæmandi
kristnum mönnum enda voru
slíkir steinar til í fórum íslensku
biskupstólanna.
Viðhorf til mannslíkamans og
lækninga voru því allt önnur og
mun heildrænni en síðar varð,
sérstaklega eftir að kom fram á 20.
öld þegar læknavísindin urðu sífellt
sérhæfðari og tóku að tengjast
þrengri sviðum.
Í kjölfar vísindabyltingarinnar á
20. öld og framrásar viðurkenndra
lækninga samtímans átti sér stað
mikil hugarfarsleg breyting gagnvart
gömlu þekkingunni. Vísindahyggjan
varð mjög frek til fjörsins og gerði
kröfu til skilyrðislauss átrúnaðar á
kostnað eldri aðferða og hugarfars
sem viðgengist hafði um aldir. Á
síðustu áratugum virðist þó hafa
komið fram ákveðið afturhvarf til
eldri viðhorfa gagnvart manns
líkamanum samfara kröfu um
heild rænni nálgun og hugsun þegar
kemur að lækningum.
Fortíðin hefur því vitjað okkar á
ný og að mínu mati væri æskilegast
að þessi tvö sjónarmið tækjust hönd
í hönd og ynnu saman. Í því væru
miklir möguleikar fólgnir,“ segir
dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
þjóðfræðingur að lokum.
[...] fram á átjándu öld eru skilin óljós milli lærðra
og leikra, ekki aðeins á Íslandi heldur víðar í
Evrópu. Þetta má til dæmis ráða af viðurnefninu
„lærði“ sem Jón Guðmundsson bar, og raunar fleiri
sjálfmenntaðir alþýðufræðimenn bæði fyrr og síðar.
Hugmyndaheimur Jóns lærða studdist að verulegu
leyti við forngrískar kenningar um eðli náttúrunnar
og mannslíkamans (sjá 1. kafla). Þær kenningar
höfðu lítt þróast fram að hans tíð. Ritheimildir sýna
að vessakenningar Hippókratesar sem Galenos
byggði inn í kenningakerfi sitt (meðal annars um
heita og kalda sjúkdóma), náttúrufræði Pliniusar
og grasafræði Dioscoridesar voru enn við lýði
og mótuðu hugmyndir sjálfmenntaðra íslenskra
fræðimanna seint á sautjándu öld. Þessi fræði
blönduðust annars vegar saman við magískar
hugmyndir um náttúrukrafta og kosmísk öfl, meðal
annars áhrif himintungla á heiminn og lífið í honum
– hins vegar heiðnar trúarleifar í bland við kristni, því
ekki er ýkja mikill munur á því að spenna rúnir um liðu
„og biðja dísir duga“ eins og segir í Sigurdrífumálum
eða binda brot af Margrétar sögu um læri fæðandi
konu [... ]
[]Á miðöldum og fram á sextándu öld er ekki
greinanlegur munur á alþýðulækningum og lærðum
lækningum, enda þekkingarrótin ein og söm. Þegar þar
er komið sögu hafa ráð hinna lærðu lækningarita þó
gerst heldur þekkingarblendin. Bæna og latínustagl,
töfraformúlur, rúnaletur og torskildar þulur sveima
þá innan um eldri fræði í lækningabókum og þess
vegna vandséð að
lærðu fræðin hafi
á þeim tíma verið
á nokkurn hátt
„lærðari“ eða lausari
við hjátrú en það
sem síðar var kennt
við alþýðuvísindi
og þjóðtrú. Þvert á
móti má halda því
fram að óvísinda
legar aðferðir sem
með tímanum voru
eignaðar alþýðu
lækningum hafi einmitt
átt rót sína að rekja til
hugmynda fræði gömlu
lækninga bókanna sem voru þeirra tíma vísindi,
sprottin úr jarðvegi lærðustu rita og skóla í Evrópu.
Saman burður á lækningaviðleitni Jóns lærða og
samkenndar og líkindafræðum Thomasar Bartholins
við Hafnar háskóla sýnir hve óljós skilin voru milli
töfra og vísinda. Samþykki yfirvalda og samfélags á
læknisaðferðunum valt á því hvort einstaklingurinn
sem bar þekkinguna fram og beitti henni var hluti
af hinni samfélagslegu „þekkingarstofnun“ og þar
með undirgefinn kennivaldinu. Þannig réðist það ekki
síst af samfélagsstöðu annars vegar og hins vegar
trúarlegri afstöðu (hvort sannkristið hugarfar bjó að
baki lækningunum) hvort iðja manna taldist galdur
eða fræði.
Lærðir og leiknir
Hvar auglýsir þú?
Sími 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is
45,6% fólks
á landsbyggðinni
les Bændablaðið
20,4%
45,6%
á landsbyggðinniá höfuðborgarsvæðinu
29,5%
landsmanna lesa
Bændablaðið
Lestur Bændablaðsins: BÆNDABLAÐIÐ ER GEFIÐ ÚT Í 32 ÞÚSUND
EINTÖKUM Á TVEGGJA VIKNA FRESTI
Heimild: Prentmiðlakönnun Gallup, okt.-des. 2018. Aldur 12-80 ára.