Bændablaðið - 10.10.2019, Síða 33

Bændablaðið - 10.10.2019, Síða 33
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2019 33 Arion hefur gefið í ríkum mæli og óvenju mikla fótahæð. Þrá er með betri fimm vetra tryppum sem fram hafa komið með 8,76 fyrir hæfileika. Hún hlaut 9,0 fyrir tölt og hægt tölt en einnig fyrir stökk, vilja og geðslag og fegurð í reið. Hún býr yfir einstakri mýkt, fjaðurmagni og útgeislun og er í raun gangandi listaverk. 83 hestar í flokki fimm vetra stóðhesta Í fimm vetra flokki stóðhesta voru sýndir 83 hestar eða um 10% sýndra hrossa. Með þriðju hæstu einkunn ársins var Kastor frá Garðshorni á Þelamörk, undan Kiljan frá Steinnesi og Vissu frá Lambanesi og hefur því ekki langt að sækja skrefstærð, gangrými og skeiðgetu. Ræktendur eru Agnar Þór Magnússon og Birna Tryggvadóttir og eigandi er Sporthestar ehf. Kastor er traustlega gerður hestur með 9,0 fyrir bak og lend en mætti hafa reistari háls. Þá er Kastor afar ganghreinn og einstakur rýmis- og skrefahestur, hlaut 9,0 fyrir tölt og einn af fáum hrossum sem hlutu 9,5 fyrir skeið á árinu enda uppteiknaður á skeiði; sniðfastur, svifmikill og fljúgandi rúmur. Með aðra hæstu einkunn ársins var Eldjárn frá Skipaskaga, undan Jarli frá Árbæjarhjáleigu II og Glímu frá Kaldbak. Ræktandi er Jón Árnason en eigandi er Skipaskagi ehf. Eldjárn stóð efstur á síðasta Landsmóti í fjögurra vetra flokki og sýnir nú góðar framfarir í hæfileikum. Eldjárn er stórmyndarlegur og prúður hestur með 8,63 fyrir sköpulag þar sem hæst ber 9,0 fyrir samræmi og 9,5 fyrir bæði fótagerð og prúðleika. Þá hlaut Eldjárn 8,67 fyrir hæfileika; 9,0 fyrir tölt, skeið, vilja og geðslag og fegurð í reið. Með hæstu aðaleinkunn ársins í fimm vetra flokki stóðhesta var Viðar frá Skör, undan Hrannari frá Flugumýri II og Vá frá Auðsholtshjáleigu sem er undan Spuna frá Miðsitju og Vordísi frá Auðsholtshjáleigu. Viðar hlaut í aðaleinkunn 8,68, þar af 8,71 fyrir sköpulag og 8,67 fyrir hæfileika. Viðar hefur afar sterka yfirlínu, mjúkan háls og burðarmikið bak, þó hálsinn mætti vera heldur léttari. Þá hefur hann einstakt samræmi, afar fótahár, jafnvaxinn og sterkbyggður og hlaut 9,5 fyrir það. Viðar er afar hreingengur, fasmikill og fallega gengur með 8,5 fyrir tölt og 9,5 fyrir brokk sem hann hlaut 9,0 fyrir strax fjögurra vetra gamall í fyrra, jafnvígur og geðprúður alhliða hestur. 66 hryssur í flokki sex vetra Í sex vetra flokki hryssna voru sýndar 166 hryssur eða um 20% sýndra hrossa. Með þriðju hæstu einkunn ársins var Stjörnuspá frá Þúfum, undan Stjörnustæl frá Dalvík og Lýsingu Hróðursdóttur frá Þúfum. Ræktendur og eigendur eru Gísli Gíslason og Mette Mannseth. Stjörnuspá er afar fríð léttleika hryssa, býr yfir eðlisfótaburði og útgeislun, með dans og fjaðurmagn á hægu tölti sem hún hlaut 9,0 fyrir. Með aðra hæstu einkunn ársins var Bylgja frá Seljatungu, undan Herkúles frá Ragnheiðarstöðum og Kviku frá Syðri-Gegnishólum og er Bylgja því útaf Frey frá Flugumýri sem má finna í ættartöflu afrekshrossa. Ræktandi er Ólafur Jósefsson en eigandi er Karl Áki Sigurðsson. Bylgja er klárhryssa með 8,54 í aðaleinkunn og er djásn bæði í sköpulagi og hæfileikum, með 8,71 fyrir sköpulag, stórglæsileg með m.a. 9,0 fyrir háls, herðar og bóga og samræmi. Þá er hún með 9,0 fyrir flesta þætti hæfileikanna og 9,5 fyrir fegurð í reið. Með hæstu einkunn ársins í sex vetra flokki hryssna er Eyrún Ýr frá Hásæti en hún stóð einnig efst í sínum flokki á Heimsleikunum í Berlín. Eyrún Ýr er einnig undan Herkúles frá Ragnheiðarstöðum sem hefur verið að skila nokkrum óvanalegum hrossum til dóms undanfarið hvað varðar stærð, myndarskap og hreyfieðli en móðirin er Séð frá Hásæti. Ræktandi er Fjölnir Þorgeirsson. Eyrún er vel gerð hryssa með 8,5 fyrir flesta þætti byggingar innar; fríð og jafnvaxinn með 9,0 fyrir fótagerð. Þá er hún grípandi hross með afgerandi hreyfingar á tölti, brokki og stökki og býr fyrir úrvals feti sem hún hlaut 9,5 fyrir; hágeng og aðsópsmikil með funavilja. 72 hestar í flokki sex vetra stóðhesta Í sex vetra flokki stóðhesta voru sýndir 72 hestar eða rúmlega 8% sýndra hrossa. Með þriðju hæstu aðaleinkunn ársins var Spaði frá Barkarstöðum og stóð hann efstur á Heimsleikum í sínum flokki. Spaði er undan Orra frá Þúfu og Væntingu Arons- dóttur frá Hruna. Ræktandi er Sveinbjörn Sveinbjörnsson og eigandi er Stephanie Brassel. Spaði hlaut í vor 8,68 í aðaleinkunn, 8,41 fyrir sköpulag og 8,86 fyrir hæfileika. Spaði er afar traustlega gerður hestur í gerð og geðslagi, með mjúka og öfluga yfirlínu og jafnvægisgóður í byggingunni. Þá er hann afar aðgengilegur og öruggur á gangi og ganghreinn og skrefmikill með skemmtilega þjálan vilja. Með aðra hæstu einkunn ársins er Spaði frá Stuðlum, undan Barða frá Laugarbakka og Þernu frá Arnarhóli, ræktendur eru Páll Stefánsson og Edda Björk Ólafsdóttir. Spaði er afar vel gerður hestur með 9,0 fyrir háls, herðar og bóga, bak og lend og samræmi; með sterka yfirlínu, hlutfallagóður og jafnbyggður. Þá er verðmætt hver fjölhæfur Spaði er; takthreinn og skrokkmjúkur með 9,0 fyrir tölt, skeið, vilja og geðslag og hægt stökk og 8,5 fyrir aðra þætti hæfileikanna. Með hæstu einkunn sex vetra hesta á árinu var Þór frá Torfunesi en hann var einnig með hæstu einkunnina yfir landið í fyrra fimm vetra gamall. Þór er undan Kolskegg frá Kjarnholtum og Bylgju Baldursdóttur frá Torfunesi. Ræktandi er Baldvin Kr. Baldvinsson og eigandi er Torfunes ehf. Þór er stórglæsilegur í byggingu; með afar reistan, hátt settan háls og óvenju skásetta bóga, afar öfluga yfirlínu og þá er samræmið með því besta sem gerist enda með 9,0 fyrir háls, herðar og bóga og bak og lend og 9,5 fyrir samræmi. Þá er Þór jafnvígur, fasmikill og aðsópsmikill alhliða hestur með 9,0 fyrir tölt, brokk, skeið, fegurð í reið og vilja og geðslag. Þá er gaman að geta þess að Safír frá Mosfellsbæ hlaut 10 fyrir brokk á árinu. Þar er á ferðinni mikill útgeislunar hestur, undan Hring frá Fossi og Perlu frá Mosfellsbæ. 260 í flokki sjö vetra hryssna Í 7 vetra og eldri flokki hryssna voru sýndar 260 hryssur eða um 31% sýndra hrossa. Með þriðju hæstu einkunn ársins var Vaka frá Narfastöðum, undan Vita frá Kagaðarhóli og Heklu frá Hofstaðaseli. Ræktendur og eigendur eru Bergur Gunnarsson og Rósa María Vésteinsdóttir. Vaka hlaut í aðaleinkunn hvorki meira né minna en 8,70, þar af 8,27 fyrir sköpulag og 8,98 fyrir hæfileika. Vaka er hárreist og býr yfir sterkri yfirlínu í baki og lend. Þá býr hún yfir óvenju mikill teygju og skrokkmýkt, hrein afrekshryssa á gangi. Með aðra hæstu einkunn ársins var Viðja frá Hvolsvelli, undan Frakk frá Langholti og Vordísi frá Hvolsvelli. Ræktendur eru Ásmundur Þór Þórisson og Helga Friðgeirsdóttir en eigandi er Anja Egger-Meier. Viðja hlaut 9,00 fyrir hæfileika sem er hæsta hæfileikaeinkunn ársins, enda gæðingur á gangi og einstaklega þjál og aðgengileg í geðslagi – eðlisgæðingur sem hefur eflst með meiri þjálfun. Með hæstu einkunn ársins var Elja frá Sauðholti en hún stóð einnig efst í sínum flokki á Heimsleikum í Berlín. Elja er undan Brimni frá Ketilsstöðum og Góu frá Leiru læk. Ræktendur eru Jakob S. Þórarinsson og Sigrún Þóroddsdóttir en eigendur eru Anja Egger-Meier og Kronshof GbR. Elja er hestagull að byggingu og hæfileikum, hún er með 9,5 fyrir háls, herðar og bóga sem hún nýtir frábærlega í reið og 9,0 fyrir samræmi. Þá einkennast hæfileikarnir af afrekskostum og útgeislun, enda með 9,0 fyrir tölt, skeið og vilja og geðslag og 9,5 fyrir fegurð í reið. Þá er gaman að geta þess að Maístjarna frá Árbæjarhjáleigu II hlaut 10 fyrir hægt tölt á árinu, enda býr hún yfir einstöku jafnvægi, burði, mýkt og fjaðurmagni á hægu tölti. Hún er undan Óskari frá Blesastöðum 1A (en hann hlaut einnig 10 fyrir hægt tölt á sínum tíma) og Móu frá Skarði. 56 hrestar í flokki sjö vetra stóðhesta Í 7 vetra og eldri flokki stóðhestar voru sýndir 56 hestar eða tæplega 7% sýndra hrossa. Með þriðju hæstu einkunn ársins var Nökkvi frá Syðra-Skörðugili, undan Aðli frá Nýja-Bæ og Láru frá Syðra-Skörðugili, ræktandi er Einar E. Gíslason en eigendur eru Frímann Frímannsson og Nökkvafélagið ehf. Nökkvi er landsþekktur hestur enda stóð hann efstur í B-flokki á Landsmóti 2016 á Hólum en var nú sýndur sem alhliða hestur og hlaut 9,0 fyrir skeið. Nökkvi hlaut 8,55 fyrir sköpulag og 8,73 fyrir hæfileika, þar af 8,5 fyrir tölt, 9,5 fyrir brokk og 9,0 fyrir vilja og geðslag og fegurð í reið. Með aðra hæstu einkunn ársins var Nói frá Stóra-Hofi, undan Illingi frá Tóftum og Örk frá Stóra-Hofi. Ræktandi er Bæring Sigurbjörnsson. Nói er vel og reiðhestslega gerður hestur með 8,68 fyrir byggingu, þá er hann skrokkmjúkur, viljugur og þjáll og einstaklega jafnvægisgóður og flinkur á skeiði enda með 9,5 fyrir skeið og vilja og geðslag. Með hæstu einkunn ársins í elsta flokki stóðhesta og yfir landið í ár var Draupnir frá Stuðlum, undan Kiljan frá Steinnesi og Þernu frá Arnarhóli. Ræktendur er Edda Björk Ólafsdóttir og Páll Stefánsson og þau eru einnig eigendur ásamt Austurás hestum ehf. Draupnir er stórglæsilegur i byggingu og verðmætur m.a. vegna mikillar framhæðar í byggingunni, tengsl herða og frambaks er afar há og sterk og það munar 8 cm á hæðinni á herðar og lend sem er með því meira sem gerist, þá er hann afar fótahár og reistur. Ganghæfileikar einkennast af fjölhæfni, virkjamiklu skrefi, traustri lund og fasmikilli framgöngu enda með 8,88 fyrir hæfileika sem er hæsta hæfileikaeinkunn sem stóðhestur hlaut á árinu. Þá má geta þess að Ljúfur frá Torfunesi hlaut 10 fyrir tölt á árinu; einstaklega flinkur, taktöruggur og burðarmikill á tölti. Hann er undan Grun frá Oddhóli og Töru frá Lækjarbotnum. Ljúfur býr yfir afar sterkri yfirlínu sem gefur mikla möguleika í ræktun; hann hefur afar langa og hvelfda yfirlínu í háls og þá er bakið afar burðarmikið, enda með 9,0 fyrir háls, herðar og bóga og 9,5 fyrir bak og lend. Það eiga gæðingarnir sammerkt og þeir sem tæpt hefur verið á í þessari samantekt, að búa yfir sterkri yfirlínu og jafnvægisgóðri byggingu; það er byggingin sem gefur hrossum alla þá möguleika til afkasta sem við erum að leita eftir sem síðan viljinn, geðslagið og rétt þjálfun geta framkallað. Heilbrigðisskoðanir kynbótahrossa Heilbrigði kynbótahrossa var skoðað eins og undanfarin ár, bæði fyrir og eftir dóm. Allir áverkar sem hrossin hlutu í dómi voru stigaðir í þrjá flokka og átti þetta við bæði særindi í munni og ágrip á fótum. Fyrsta stigs athugasemdir teljast ekki vera eiginlegir áverkar en eru t.d. særindi í munni sem ná ekki í gegnum slímhúð eða strokur á fótum sem ná ekki í gegnum húð og eru án eymsla eða bólgu. Annars stigs athugasemdir eru áverkar, s.s. lítil sár í munni eða á ágrip á fótum sem ná þó ekki einum cm. Þriðja stigs athugasemdir eru alvarlegir áverkar og á þá lund að hrossið hlýtur ekki reiðdóm og getur ekki mætt til yfirlitssýningar. Skráð voru ágrip á fótum í 19% tilfella sem er hærra en í fyrra en þá var tíðni ágripa 14,5%. Megnið af þessum athuga- semdum eða 62% voru í flokki 1, tíðni eiginlegra áverka á fótum (flokkar 2 og 3) var því um 5% (sem er afar svipað og í fyrra) þar sem áverkar af þriðja stigi voru 4 á árinu eða innan við 0.5%. Þá voru skráð særindi eða blóð í munni í 3% tilfella og var í nær öllum tilfellum um 1. stigs særindi að ræða. Það má því segja að staðan á þessum málum sé ásættanleg þar sem tíðni eiginlegra áverka er lág og er ekki að hækka marktækt á milli ára. Það verða þó allir sem koma að sýningunum að vera á tánum í þessum efnum en sem betur fer hafa sýningarnar verið að þróast í rétta átt á síðastliðnum árum, uppistaðan er hestvænar sýningar og svo dæmi sé tekið þá var enginn áminntur í ár fyrir grófa reiðmennsku. Starfsfólk og staðarhaldarar Að lokum er rétt og ljúft að þakka öllu starfsfólki sýninganna fyrir vel unnin störf á árinu. Þetta er samhentur og reynslumikill hópur; hvort sem það eru dómarar, sýningarstjórar og ritarar. Einnig vil ég þakka gott samstarf við staðarhaldara á hverjum stað en alls staðar er verkefninu tekið af áhuga og metnaði og reynt að hafa alla þætti sýninganna sem besta. Þá vil ég þakka sýnendum, ræktendum og eigendum hrossanna fyrir skemmtilega viðkynningu og gott samstarf á árinu. Efsti hesturinn í fjögurra vetra flokki stóðhesta í ár er Leynir frá Garðshorni á Þelamörk en ræktendur hans eru Agnar Þór Magnússon og Birna Tryggvadóttir. Leynir er undan Höfðingja og Grósku frá Garðshorni á Þelamörk. Mynd / Birna Tryggvadóttir. Bænda 24.október

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.