Bændablaðið - 10.10.2019, Síða 33
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2019 33
Arion hefur gefið í ríkum mæli og
óvenju mikla fótahæð. Þrá er með
betri fimm vetra tryppum sem fram
hafa komið með 8,76 fyrir hæfileika.
Hún hlaut 9,0 fyrir tölt og hægt
tölt en einnig fyrir stökk, vilja og
geðslag og fegurð í reið. Hún býr
yfir einstakri mýkt, fjaðurmagni
og útgeislun og er í raun gangandi
listaverk.
83 hestar í flokki
fimm vetra stóðhesta
Í fimm vetra flokki stóðhesta voru
sýndir 83 hestar eða um 10% sýndra
hrossa.
Með þriðju hæstu einkunn
ársins var Kastor frá Garðshorni á
Þelamörk, undan Kiljan frá Steinnesi
og Vissu frá Lambanesi og hefur
því ekki langt að sækja skrefstærð,
gangrými og skeiðgetu. Ræktendur
eru Agnar Þór Magnússon og
Birna Tryggvadóttir og eigandi er
Sporthestar ehf. Kastor er traustlega
gerður hestur með 9,0 fyrir bak og
lend en mætti hafa reistari háls.
Þá er Kastor afar ganghreinn og
einstakur rýmis- og skrefahestur,
hlaut 9,0 fyrir tölt og einn af fáum
hrossum sem hlutu 9,5 fyrir skeið
á árinu enda uppteiknaður á skeiði;
sniðfastur, svifmikill og fljúgandi
rúmur.
Með aðra hæstu einkunn ársins var
Eldjárn frá Skipaskaga, undan Jarli
frá Árbæjarhjáleigu II og Glímu frá
Kaldbak. Ræktandi er Jón Árnason
en eigandi er Skipaskagi ehf. Eldjárn
stóð efstur á síðasta Landsmóti í
fjögurra vetra flokki og sýnir nú
góðar framfarir í hæfileikum. Eldjárn
er stórmyndarlegur og prúður hestur
með 8,63 fyrir sköpulag þar sem hæst
ber 9,0 fyrir samræmi og 9,5 fyrir
bæði fótagerð og prúðleika. Þá hlaut
Eldjárn 8,67 fyrir hæfileika; 9,0 fyrir
tölt, skeið, vilja og geðslag og fegurð
í reið.
Með hæstu aðaleinkunn ársins
í fimm vetra flokki stóðhesta var
Viðar frá Skör, undan Hrannari
frá Flugumýri II og Vá frá
Auðsholtshjáleigu sem er undan
Spuna frá Miðsitju og Vordísi frá
Auðsholtshjáleigu. Viðar hlaut í
aðaleinkunn 8,68, þar af 8,71 fyrir
sköpulag og 8,67 fyrir hæfileika.
Viðar hefur afar sterka yfirlínu,
mjúkan háls og burðarmikið bak, þó
hálsinn mætti vera heldur léttari. Þá
hefur hann einstakt samræmi, afar
fótahár, jafnvaxinn og sterkbyggður
og hlaut 9,5 fyrir það. Viðar er afar
hreingengur, fasmikill og fallega
gengur með 8,5 fyrir tölt og 9,5
fyrir brokk sem hann hlaut 9,0 fyrir
strax fjögurra vetra gamall í fyrra,
jafnvígur og geðprúður alhliða
hestur.
66 hryssur í flokki sex vetra
Í sex vetra flokki hryssna voru
sýndar 166 hryssur eða um 20%
sýndra hrossa.
Með þriðju hæstu einkunn ársins
var Stjörnuspá frá Þúfum, undan
Stjörnustæl frá Dalvík og Lýsingu
Hróðursdóttur frá Þúfum. Ræktendur
og eigendur eru Gísli Gíslason og
Mette Mannseth. Stjörnuspá er
afar fríð léttleika hryssa, býr yfir
eðlisfótaburði og útgeislun, með
dans og fjaðurmagn á hægu tölti
sem hún hlaut 9,0 fyrir.
Með aðra hæstu einkunn ársins
var Bylgja frá Seljatungu, undan
Herkúles frá Ragnheiðarstöðum
og Kviku frá Syðri-Gegnishólum
og er Bylgja því útaf Frey frá
Flugumýri sem má finna í ættartöflu
afrekshrossa. Ræktandi er Ólafur
Jósefsson en eigandi er Karl Áki
Sigurðsson. Bylgja er klárhryssa
með 8,54 í aðaleinkunn og er djásn
bæði í sköpulagi og hæfileikum, með
8,71 fyrir sköpulag, stórglæsileg
með m.a. 9,0 fyrir háls, herðar og
bóga og samræmi. Þá er hún með
9,0 fyrir flesta þætti hæfileikanna
og 9,5 fyrir fegurð í reið.
Með hæstu einkunn ársins í sex
vetra flokki hryssna er Eyrún Ýr
frá Hásæti en hún stóð einnig efst
í sínum flokki á Heimsleikunum í
Berlín. Eyrún Ýr er einnig undan
Herkúles frá Ragnheiðarstöðum
sem hefur verið að skila nokkrum
óvanalegum hrossum til dóms
undanfarið hvað varðar stærð,
myndarskap og hreyfieðli en
móðirin er Séð frá Hásæti.
Ræktandi er Fjölnir Þorgeirsson.
Eyrún er vel gerð hryssa með 8,5
fyrir flesta þætti byggingar innar;
fríð og jafnvaxinn með 9,0 fyrir
fótagerð. Þá er hún grípandi hross
með afgerandi hreyfingar á tölti,
brokki og stökki og býr fyrir úrvals
feti sem hún hlaut 9,5 fyrir; hágeng
og aðsópsmikil með funavilja.
72 hestar í flokki
sex vetra stóðhesta
Í sex vetra flokki stóðhesta voru
sýndir 72 hestar eða rúmlega 8%
sýndra hrossa.
Með þriðju hæstu aðaleinkunn
ársins var Spaði frá Barkarstöðum
og stóð hann efstur á Heimsleikum
í sínum flokki. Spaði er undan
Orra frá Þúfu og Væntingu Arons-
dóttur frá Hruna. Ræktandi er
Sveinbjörn Sveinbjörnsson og
eigandi er Stephanie Brassel. Spaði
hlaut í vor 8,68 í aðaleinkunn,
8,41 fyrir sköpulag og 8,86 fyrir
hæfileika. Spaði er afar traustlega
gerður hestur í gerð og geðslagi,
með mjúka og öfluga yfirlínu og
jafnvægisgóður í byggingunni.
Þá er hann afar aðgengilegur og
öruggur á gangi og ganghreinn og
skrefmikill með skemmtilega þjálan
vilja.
Með aðra hæstu einkunn ársins er
Spaði frá Stuðlum, undan Barða frá
Laugarbakka og Þernu frá Arnarhóli,
ræktendur eru Páll Stefánsson og
Edda Björk Ólafsdóttir. Spaði er
afar vel gerður hestur með 9,0 fyrir
háls, herðar og bóga, bak og lend
og samræmi; með sterka yfirlínu,
hlutfallagóður og jafnbyggður. Þá
er verðmætt hver fjölhæfur Spaði
er; takthreinn og skrokkmjúkur með
9,0 fyrir tölt, skeið, vilja og geðslag
og hægt stökk og 8,5 fyrir aðra þætti
hæfileikanna.
Með hæstu einkunn sex vetra
hesta á árinu var Þór frá Torfunesi
en hann var einnig með hæstu
einkunnina yfir landið í fyrra
fimm vetra gamall. Þór er undan
Kolskegg frá Kjarnholtum og
Bylgju Baldursdóttur frá Torfunesi.
Ræktandi er Baldvin Kr. Baldvinsson
og eigandi er Torfunes ehf. Þór er
stórglæsilegur í byggingu; með afar
reistan, hátt settan háls og óvenju
skásetta bóga, afar öfluga yfirlínu
og þá er samræmið með því besta
sem gerist enda með 9,0 fyrir háls,
herðar og bóga og bak og lend og 9,5
fyrir samræmi. Þá er Þór jafnvígur,
fasmikill og aðsópsmikill alhliða
hestur með 9,0 fyrir tölt, brokk,
skeið, fegurð í reið og vilja og
geðslag. Þá er gaman að geta þess
að Safír frá Mosfellsbæ hlaut 10 fyrir
brokk á árinu. Þar er á ferðinni mikill
útgeislunar hestur, undan Hring frá
Fossi og Perlu frá Mosfellsbæ.
260 í flokki sjö vetra hryssna
Í 7 vetra og eldri flokki hryssna voru
sýndar 260 hryssur eða um 31%
sýndra hrossa.
Með þriðju hæstu einkunn ársins
var Vaka frá Narfastöðum, undan
Vita frá Kagaðarhóli og Heklu frá
Hofstaðaseli. Ræktendur og eigendur
eru Bergur Gunnarsson og Rósa
María Vésteinsdóttir. Vaka hlaut í
aðaleinkunn hvorki meira né minna
en 8,70, þar af 8,27 fyrir sköpulag
og 8,98 fyrir hæfileika. Vaka er
hárreist og býr yfir sterkri yfirlínu í
baki og lend. Þá býr hún yfir óvenju
mikill teygju og skrokkmýkt, hrein
afrekshryssa á gangi.
Með aðra hæstu einkunn ársins
var Viðja frá Hvolsvelli, undan
Frakk frá Langholti og Vordísi frá
Hvolsvelli. Ræktendur eru Ásmundur
Þór Þórisson og Helga Friðgeirsdóttir
en eigandi er Anja Egger-Meier. Viðja
hlaut 9,00 fyrir hæfileika sem er
hæsta hæfileikaeinkunn ársins, enda
gæðingur á gangi og einstaklega
þjál og aðgengileg í geðslagi –
eðlisgæðingur sem hefur eflst með
meiri þjálfun.
Með hæstu einkunn ársins var
Elja frá Sauðholti en hún stóð einnig
efst í sínum flokki á Heimsleikum
í Berlín. Elja er undan Brimni frá
Ketilsstöðum og Góu frá Leiru læk.
Ræktendur eru Jakob S. Þórarinsson
og Sigrún Þóroddsdóttir en
eigendur eru Anja Egger-Meier og
Kronshof GbR. Elja er hestagull
að byggingu og hæfileikum, hún er
með 9,5 fyrir háls, herðar og bóga
sem hún nýtir frábærlega í reið og
9,0 fyrir samræmi. Þá einkennast
hæfileikarnir af afrekskostum og
útgeislun, enda með 9,0 fyrir tölt,
skeið og vilja og geðslag og 9,5
fyrir fegurð í reið. Þá er gaman
að geta þess að Maístjarna frá
Árbæjarhjáleigu II hlaut 10 fyrir
hægt tölt á árinu, enda býr hún yfir
einstöku jafnvægi, burði, mýkt
og fjaðurmagni á hægu tölti. Hún
er undan Óskari frá Blesastöðum
1A (en hann hlaut einnig 10 fyrir
hægt tölt á sínum tíma) og Móu frá
Skarði.
56 hrestar í flokki
sjö vetra stóðhesta
Í 7 vetra og eldri flokki stóðhestar
voru sýndir 56 hestar eða tæplega
7% sýndra hrossa.
Með þriðju hæstu einkunn ársins
var Nökkvi frá Syðra-Skörðugili,
undan Aðli frá Nýja-Bæ og Láru frá
Syðra-Skörðugili, ræktandi er Einar
E. Gíslason en eigendur eru Frímann
Frímannsson og Nökkvafélagið
ehf. Nökkvi er landsþekktur hestur
enda stóð hann efstur í B-flokki á
Landsmóti 2016 á Hólum en var
nú sýndur sem alhliða hestur og
hlaut 9,0 fyrir skeið. Nökkvi hlaut
8,55 fyrir sköpulag og 8,73 fyrir
hæfileika, þar af 8,5 fyrir tölt, 9,5
fyrir brokk og 9,0 fyrir vilja og
geðslag og fegurð í reið.
Með aðra hæstu einkunn ársins
var Nói frá Stóra-Hofi, undan Illingi
frá Tóftum og Örk frá Stóra-Hofi.
Ræktandi er Bæring Sigurbjörnsson.
Nói er vel og reiðhestslega gerður
hestur með 8,68 fyrir byggingu, þá
er hann skrokkmjúkur, viljugur og
þjáll og einstaklega jafnvægisgóður
og flinkur á skeiði enda með 9,5 fyrir
skeið og vilja og geðslag.
Með hæstu einkunn ársins í elsta
flokki stóðhesta og yfir landið í ár
var Draupnir frá Stuðlum, undan
Kiljan frá Steinnesi og Þernu frá
Arnarhóli. Ræktendur er Edda
Björk Ólafsdóttir og Páll Stefánsson
og þau eru einnig eigendur ásamt
Austurás hestum ehf. Draupnir
er stórglæsilegur i byggingu og
verðmætur m.a. vegna mikillar
framhæðar í byggingunni, tengsl
herða og frambaks er afar há og
sterk og það munar 8 cm á hæðinni á
herðar og lend sem er með því meira
sem gerist, þá er hann afar fótahár og
reistur. Ganghæfileikar einkennast
af fjölhæfni, virkjamiklu skrefi,
traustri lund og fasmikilli framgöngu
enda með 8,88 fyrir hæfileika sem
er hæsta hæfileikaeinkunn sem
stóðhestur hlaut á árinu.
Þá má geta þess að Ljúfur frá
Torfunesi hlaut 10 fyrir tölt á árinu;
einstaklega flinkur, taktöruggur
og burðarmikill á tölti. Hann er
undan Grun frá Oddhóli og Töru
frá Lækjarbotnum. Ljúfur býr yfir
afar sterkri yfirlínu sem gefur mikla
möguleika í ræktun; hann hefur afar
langa og hvelfda yfirlínu í háls og
þá er bakið afar burðarmikið, enda
með 9,0 fyrir háls, herðar og bóga
og 9,5 fyrir bak og lend.
Það eiga gæðingarnir sammerkt
og þeir sem tæpt hefur verið á
í þessari samantekt, að búa yfir
sterkri yfirlínu og jafnvægisgóðri
byggingu; það er byggingin sem
gefur hrossum alla þá möguleika til
afkasta sem við erum að leita eftir
sem síðan viljinn, geðslagið og rétt
þjálfun geta framkallað.
Heilbrigðisskoðanir
kynbótahrossa
Heilbrigði kynbótahrossa var skoðað
eins og undanfarin ár, bæði fyrir og
eftir dóm.
Allir áverkar sem hrossin hlutu
í dómi voru stigaðir í þrjá flokka
og átti þetta við bæði særindi í
munni og ágrip á fótum. Fyrsta
stigs athugasemdir teljast ekki vera
eiginlegir áverkar en eru t.d. særindi
í munni sem ná ekki í gegnum
slímhúð eða strokur á fótum sem ná
ekki í gegnum húð og eru án eymsla
eða bólgu.
Annars stigs athugasemdir eru
áverkar, s.s. lítil sár í munni eða á
ágrip á fótum sem ná þó ekki einum
cm.
Þriðja stigs athugasemdir eru
alvarlegir áverkar og á þá lund að
hrossið hlýtur ekki reiðdóm og getur
ekki mætt til yfirlitssýningar. Skráð
voru ágrip á fótum í 19% tilfella sem
er hærra en í fyrra en þá var tíðni
ágripa 14,5%.
Megnið af þessum athuga-
semdum eða 62% voru í flokki
1, tíðni eiginlegra áverka á fótum
(flokkar 2 og 3) var því um 5%
(sem er afar svipað og í fyrra) þar
sem áverkar af þriðja stigi voru 4 á
árinu eða innan við 0.5%. Þá voru
skráð særindi eða blóð í munni í 3%
tilfella og var í nær öllum tilfellum
um 1. stigs særindi að ræða. Það
má því segja að staðan á þessum
málum sé ásættanleg þar sem tíðni
eiginlegra áverka er lág og er ekki
að hækka marktækt á milli ára.
Það verða þó allir sem koma
að sýningunum að vera á tánum í
þessum efnum en sem betur fer hafa
sýningarnar verið að þróast í rétta
átt á síðastliðnum árum, uppistaðan
er hestvænar sýningar og svo dæmi
sé tekið þá var enginn áminntur í ár
fyrir grófa reiðmennsku.
Starfsfólk og staðarhaldarar
Að lokum er rétt og ljúft að þakka
öllu starfsfólki sýninganna fyrir
vel unnin störf á árinu. Þetta
er samhentur og reynslumikill
hópur; hvort sem það eru dómarar,
sýningarstjórar og ritarar. Einnig
vil ég þakka gott samstarf við
staðarhaldara á hverjum stað en
alls staðar er verkefninu tekið
af áhuga og metnaði og reynt að
hafa alla þætti sýninganna sem
besta. Þá vil ég þakka sýnendum,
ræktendum og eigendum hrossanna
fyrir skemmtilega viðkynningu og
gott samstarf á árinu.
Efsti hesturinn í fjögurra vetra flokki stóðhesta í ár er Leynir frá Garðshorni á Þelamörk en ræktendur hans eru
Agnar Þór Magnússon og Birna Tryggvadóttir. Leynir er undan Höfðingja og Grósku frá Garðshorni á Þelamörk.
Mynd / Birna Tryggvadóttir.
Bænda
24.október