Bændablaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 8

Bændablaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 20198 FRÉTTIR Hjónin Svavar Pétur Eysteinsson og Berglind Häsler búa á Karls­ stöðum í Berufirði og stunda þar blandaðan búskap með menningu, matvælaframleiðslu og ferða þjónstu undir vörumerkinu Havarí. Svavar Pétur er kunnur sem tónlistarmaðurinn Prins Póló og saman standa þau að margvíslegri starfsemi heima á bæ; meðal annars matvælavinnslu og menningartengdri ferða þjónustu. Bulsur, grænmetispylsurnar þeirra, hafa tryggt sig í sessi á Íslandi og nýjasta afurð þeirra eru snakkflögurnar Bopp, sem er poppað bankabygg. Hafa prófað ýmislegt Þau Svavar Pétur og og Berglind hafa reyndar prófað ýmislegt þegar kemur að grænmetisrækt og vinnslu á því. „Síðan við hófum búskap á Karlsstöðum árið 2014 höfum við stundað ýmiss konar ræktun á káli og rótargrænmeti. Um tíma framleiddum við nokkrar tegundir af snakki úr rófum, kartöflum og grænkáli en sú framleiðsla reyndist því miður mannaflsfrek og óarðbær. Þannig að við héldum áfram tilraunum með ný hráefni og vinnsluaðferðir. Markmiðið var alltaf að búa til snakk sem innihéldi nær eingöngu íslensk hráefni enda fannst okkur snakkhillur verslana skorta vörur úr íslensku hráefni,“ segir Svavar Pétur. „Sú vinna leiddi af sér þá vöru sem við kynnum nú til sögunnar en það er poppað bankabygg sem við köllum Bopp. Þetta er ekki ósvipað hrískökum en í staðinn fyrir hrísgrjón notum við lífrænt bankabygg frá Vallanesi sem er hágæða hráefni og einstaklega bragðgott. Boppið er svo saltað með vestfirsku sjávarsalti frá Saltverki. Þetta er því algjörlega íslensk landbúnaðarafurð – og lífrænt vottuð í þokkabót. Hér var lítið fjós sem við tókum í gegn og breyttum í matvælavinnslu. Þar er Boppið framleitt,“ bætir Svavar Pétur við. Ferðaþjónustan blómstrar Að sögn Svavars Péturs er ferðaþjónustan á Karlsstöðum í miklum blóma. „Hún vex ár frá ári. Við lögðum útihúsin undir gistingu og veitingaþjónustu og traffíkin er góð frá vori fram á haust. Við brjótum svo sumarið upp með menningardagskránni Sumar í Havarí sem hefur fætt af sér marga fjölbreytta viðburði og trekkir að fólk hvaðanæva að. Hér hafa verið haldin gallhörð sveitaböll, kabarettsýningar og bíó – og allt þar á milli. Á veturna drögum við fyrir og erum með annan fótinn í ýmsum verkefnum fyrir sunnan, en Boppið er framleitt á Karlsstöðum allt árið um kring.“ Bulsurnar í sókn Margir þekkja grænmetis pylsurnar Bulsur sem Havarí hefur framleitt frá 2013. Svavar segir áhugann hafa vaxið ár frá ári. „Áhugi á grænkerafæði er mikill og margir neytendur velja auk þess Bulsurnar fram yfir aðrar sambærilegar vörur til að minnka kolefnissporið en þær innihalda að megninu til íslenskt bankabygg, líkt og Boppið. Það eru tímamót hjá Bulsunum um þessar mundir en Norðlenska ætlar að taka að sér framleiðslu á þeim. Það er mjög spennandi að fara með Bulsurnar norður enda er norðlensk framleiðsla framsækin og í miklum blóma,“ segir Svavar Pétur. Spurður hvort eitthvað fleira sé í matvælapípunum hjá þeim, segir hann: „Það verður gaman að sjá hvort Bulsurnar geti af sér einhver afkvæmi þegar þær fara norður.“ /smh Landbúnaðarháskóli Íslands: Stefnan að efla starfsmenntanám Athugasemdir vegna viðtals um garðyrkjunám við Landbúnaðar­ háskóla Íslands sem birtist í Bændablaðinu 26. september síðastliðinn. Vegna umræðu um stöðu starfsmennta náms við Landbúnaðar­ háskóla Íslands vill háskólaráð koma eftirfarandi staðreyndum málsins á framfæri. • Í stefnu skólans sem samþykkt var af starfsmönnum háskólans og háskólaráði í júní síðastliðnum er stefnt að því að efla starfsmenntanám skólans og tryggja því skýra stoð í lögum. Stefnan tekur á engan hátt til þess að breyta eigi inntaki eða eðli námsins og það stendur ekki til að flytja námið af framhaldsskólastigi. 19. gr. háskólalaga veitir háskólum lagaheimild til að vera með nám á framhaldsskólastigi og hefur hún því verið skoðuð í þessu tilliti. • Fyrirhugaðar skipulags­ breytingar miða að því að styrkja bæði starfsmenntanám og háskólanám með því að samnýta betur kennslukrafta á háskóla­ og starfsmenntastigi í þremur deildum á tilteknum fræðasviðum (ræktun og fæða, skógur og náttúra, hönnun og skipulag). Þannig eykst bæði sýnileiki þeirra faggreina sem skólinn leggur áherslu á, auk þess sem styrkur og samlegð innan hverrar deildar vex. • Það er stefna Landbúnaðar­ háskólans að halda áfram að bjóða sterkt og öflugt starfsmenntanám á framhaldsskólastigi. Staðsetning starfsmennta­ náms innan háskóla er augljós styrkur, ekki einungis fyrir starfsmenntanámið sem nýtur góðs af rannsóknum og nýsköpun háskólastigsins, heldur einnig fyrir háskóla­ starfið sem hefur hag af samspili við verkþekkinguna. • Landbúnaðarháskólinn stefnir að kröftugri uppbyggingu, bæði á háskóla­ og starfsmenntanámssviði. Í því samhengi má sérstaklega nefna fyrirætlanir um uppbyggingu rannsókna­ og nýsköpunar­ miðstöðvar á sviði garðyrkju á Reykjum. Grunnur hefur verið lagður að samstarfi við háskóla sem eru hvað fremstir á sviði landbúnaðar og garðyrkju í heiminum. Þegar er verið að vinna að öflun Evrópu­ styrkja sem m.a. eru ætlaðir til framtíðar uppbyggingar garðyrkju rannsókna. Sameiginlegt verkefni Landbúnaðar­ háskólans, hagaðila og stjórnvalda er að efla nám, þekkingu og atvinnu­ vegi. Landbúnaðarháskólinn leggur áherslu á samstarf og samráð með þetta sameiginlega markmið að leiðarljósi og hefur fundið fyrir góðum undirtektum við nýsamþykkta stefnu skólans. 30. september 2019 F.h. háskólaráðs Landbúnaðarháskóla Íslands Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor. Landbúnaðarháskóli Íslands rekur nú garðyrkjunám í fyrrum garðyrkjuskóla ríkisins að Reykjum í Ölfusi. Háskólaráð segir að fyrirætlanir séu um uppbyggingu rannsókna- og nýsköpunarmiðstöðvar á sviði garðyrkju á Reykjum. Mynd / HKr. Poppað bankabygg er ný vara úr smiðju Karlsstaðabænda: Stunda blandaðan búskap með menningar- tengda ferðaþjónustu og matvælavinnslu – Bulsurnar eru í sókn og flytja til Norðlenska Berglind Häsler og Svavar Pétur Eysteinsson, bændur á Karlsstöðum. Svavar Pétur Eysteinsson, bóndi á Karlsstöðum og matvælaframleiðandi, með Boppið – nýjustu afurð sína. Mynd / úr einkasafni Skagstrendingar fordæma vinnubrögð Sambands íslenskra sveitarfélaga – segja stærri sveitarfélög hafa beitt aflsmun vegna sameiningartillögunnar Sveitarstjórn Skagastrandar hvetur Alþingi til þess að virða sjálfsákvörðunarrétt sveitar­ félaga og íbúa landsins og hafna með öllu þings ályktunartillögu um lögþvingaðar sameiningar sveitarfélaga. Sveitarstjórn fordæmir jafn­ framt vinnubrögð stjórnar Sambands íslenskra sveitar­ félaga þar sem hún hafi farið þvert gegn vilja og hagsmunum fjölmargra minni sveitarfélaga, og hunsað sjónarmið þeirra og röksemdafærslu í aðdraganda tillögunnar. Þetta kemur fram í bókun sveitarstjórnar Skagastrandar, en í henni segir jafnframt að Samband íslenskra sveitarfélaga eigi að vera málsvari sveitarfélaga samkvæmt 2. grein samþykkt þess og að óbreyttu sé ekki lengur hægt að líta á stjórnina sem málsvara allra sveitarfélaga. Gengur þvert á vilja margra sveitarfélaga „Á nýafstöðnu aukalands þingi Sambands íslenskra sveitar­ félaga beittu stærri sveitarfélög aflsmun með fjölda þingfulltrúa til þess að samþykkja lögþvingaðar sameiningar. Ljóst er að 1.000 íbúa lágmark sem gert er að viðmiði í þingsályktunartillögu um málefni sveitar félaga var einungis valið til þess að tryggja tillögunni brautargengi þar sem hún snerti nægjanlega fáa með beinum hætti. Samþykkt þingsins var síðan blygðunarlaust kynnt sem vilji sveitarstjórnarstigsins í heild þó hún gangi þvert gegn vilja mikils meirihluta þeirra sveitarfélaga sem lögþvingunin ætti að ná til. Enginn hagfræðingur, viðskiptafræðingur eða fjármálaverkfræðingur er þess umkominn að skera úr um hver sé hagkvæmasta stærð sveitarfélaga. Íbúarnir eiga að ráða.“ /MÞÞ Notkun: 2 hylki tvisvar á dag við vægum gigtarverkjum. Notist ekki ef ofnæmi fyrir jarðhnetum eða soja, eða sár í maga eða þörmum er þekkt. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.florealis.is og www.serlyfjaskra.is. Haltu þínu striki! Harpatinum er eina viðurkennda jurtalyfið á Íslandi til að draga úr gigtarverkjum Fæst án lyfseðils í næsta apóteki www.florealis.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.