Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands


Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1995, Side 14

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1995, Side 14
Orstutt áning í Eir s Afögrum haustdegi lögðum við Anna Ingvarsdóttir og Halldór S. Rafnar í ferðalag, eigi alllangt þó, upp í Grafarvog til Gagnvegar þar sem stendur ein falleg og rismikil bygging sem nefnist því ágæta, þjóðlega nafni Eir. Eir - hjúkrunarheimili hefur áður á góma borið hér í Fréttabréfinu og velflestir lesendur hafa eflaust um heimilið heyrt og hlutverk þess. En til að fræðast nánar þar um þótti rit- stjóra kjörið að fá fylgd tveggja stjórn- armanna þar á fund framkvæmda- stjórans þar, séra Sigurðar Helga Guð- mundssonar og fá af honum numið fróðleik nokkurn um Eir. Séra Sig- urður Helgi er sá sem hita og þunga hefur þar af borið og áhugi hans, elja og framsýni tleytt framkvæmdum yfir ntarga erfiða hjalla. Eins og margir vita eru einstök félög Öryrkjabanda- lagsins aðilar að Eir svo og Hússjóður Öryrkjabandalagsins, svo málið er okkur ærið skylt. Séra Sigurður tók okkur fjarska ljúfmannlega og leysti úr spurnum greiðlega vel, en ritstjóri kýs að setja spjallið í samfellt mál. Eir er sjálfseignarstofnun. Aðilar að Eir eru nú: Reykjavíkurborg, Sel- tjarnarnesbær, Skjól - umönnunar- og hjúkrunarheimili, Blindrafélagið, Blindravinafélagið, Félag aðstand- enda Alzheimersjúklinga, Hússjóður Öryrkjabandalagsins, SÍBS, Sjó- mannadagurinn í Reykjavík og Hafn- arfirði, Verzlunarmannafélag Reykja- víkur og Verkakvennafélagið Fram- sókn. Sumir aðilar hafa verið með frá upphafi, aðrir fyrir skömmu til liðs gengið. Þessir aðilar tilnefna í l'ull- trúaráð Eirar sem kýs stjórn stofnun- arinnar. essir aðilar hafa tryggt sér vistunarrétt fyrir sitt fólk með því að kosta byggingu ákveðinna rýma, enda uppfylli viðkomandi kröfur til vistunar á hverjum tíma. Eir er heimili 120 manna, þar af eru 3 deildir sérhæfðar: blindradeild fyrir 26, deild fyrir Alzheimer- sjúklinga fyrir 20 manns og svo mót- Sigurður H. Guðmundsson. tökudeild fyrir24. Móttökudeildin er deild til skammtímavistunar og einnig sem biðrými meðan beðið er eftir var- anlegri vistun. Með því ávinnst það, að betur er unnt að átta sig á hverjum bezt hæfir það rými er losnar. Frá í vor leið hafa 100 manns farið í gegn- um móttökudeildina. Bæði Skjól og Eir veita varanleg vistunarrými fyrir þá sem bíða svo og önnur heimili s.s. Hrafnista. Hafizt var handa við framkvæmdir haustið 1990. I desember á þessu ári verður það síðasta af húsinu tekið í notkun. Framkvæmdir allar hafa gengið ákaflega vel. Þetta heimili var í upphafi hannað af Reykjavíkurborg fyrir 86 manns en síðar varð breyting á yfír í 120 manns. Samt sem áður er kostnaður 10% undir upphaflegri kostnaðaráætlun fyrir aðeins 86. Endanlegur kostnaður á hvert rými mun nema rúmlega 7 millj.kr. eða 120 þús.kr. á hvern fer- metra með öllum búnaði þ.m.t. sjúkra- rúm öll. Séra Sigurður brosir þegar talið berst að því að mörgum þyki sem íburður sé mikill, en sannleikurinn sá að svo sé alls ekki þó mjög hafi til allrar byggingarinnar verið vandað. Hann minnir á mahognyið sem vissu- lega væri áferðarfallegt, en það var einfaldlega ódýrasti harðviður sem unnt var að fá. Hann segir anddyrið setja mjög svip sinn á húsið en það gegni marg- víslegu hlutverki. Það er eini staður- inn sem allir íbúar hússins (sem það geta) geta komið saman á. það gegnir hlutverki torgs og út frá anddyrinu er svo aðstaða fyrir ýmsa þjónustuþætti s.s. hárgreiðslu, fótsnyrtingu, verzlun o.fl. Þarna í anddyrinu safnast fólk saman einu sinni í viku, þar fara fram guðsþjónustur og dag þann sem við vorum þarna á ferð stóð til voldugur vetrarfagnaður. Aðspurður um fjármögnun þess- arar þörfu byggingar upplýsti séra Sigurður að Framkvæmdasjóður aldr- aðra hefði lagt fram 40% kostnaðar, 14

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.