Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1995, Page 29
margra, öðru vísi hefði árangur ekki
náðst.
á flutti Sigrún Jóhannsdóttir
forst.m. Tölvumiðstöðvar fatl-
aðra yfirlit urn starfsemina. Sigrún
fór yfir hlutverk miðstöðvarinnar og
þá aðila sem að baki stæðu. Fór svo
yfir aðstoð veitta skjólstæðingum m.a.
fjölda þeirra sem notið hefðu, 46 sem
hefðu komið eða verið komið til 1 - 5
sinnum og 10 þyngri, fjölfatlaðir
einstaklingar sem væru í reglulegu
sambandi. Mikið væri um heimsóknir
í skóla og stofnanir og Akureyri hefði
verið heimsótt. Komið hefur verið á
fót breiðum umræðuhópi, bakhópi þar
sem möguleikar tölvutækni eru nýttir
sem bezt í þágu fatlaðra og leitað
nýrra leiða.
Sigrún sendir okkur fasta pistla
um starfsemina og er það til fyrir-
myndar.
í hádegisverðarhléi var boðið upp
á glæsilega tízkusýningu, föt frá
prjónastofu ÖBÍ voru kynnt þar, hinar
fallegustu flíkur og gerðu menn afar
góðan róm að.
Að loknu hádegishléi gerði Emil
Thóroddsen skýra grein fyrir vinnu að
stefnuskrá bandalagsins sem hefði
miðað vel á veg. Hann kynnti drög
að stefnumörkun: framtíðarsýn, til-
gangi og verkefnum, áherzlum sem
fundarfólk fékk svo í hendur sér til
glöggvunar. Hann kvað stefnt að því
að vinnu lyki á fyrri hluta næsta árs,
en lagði áherzlu á að stefnumörkun
lyki aldrei, endurskoðun hennar væri
sífellt nauðsynleg.
í umræðum á eftir fögnuðu menn
þessari vinnu og töldu hana hafa fært
fólk nær hvert öðru í viðhorfum og
sýn til mála. Þetta væri skemmtilegt
og lifandi starf að þörfu verkefni.
Næst fóru fram kosningar:
Formaður: Ólöf Ríkarðsdóttir.
Gjaldkeri: Hafliði Hjartarson. Með-
stjórnandi: Ólafur H. Sigurjónsson.
I varastjóm: Elísabet Möller, Dag-
fríður Halldórsdóttir og Valgerður
Auðunsdóttir. Öll voru þau kjörin
samhljóða og með lófataki.
Endurskoðendur voru kjörin: Vig-
fús Gunnarsson og Jóna Sveinsdóttir
á sama hátt.
Síðasti almenni dagskrárliðurinn
voru ályktanir aðalfundarins og
kynnti Helgi Seljan drög að 7 álykt-
unum og Guðríður Ólafsdóttir að
einni. Þær voru nokkuð ræddar og
síðan samþykktar samhljóða.
Þær eru birtar sérstaklega hér í
blaðinu enda varða þær þau mál er nú
brenna mest á okkar fólki og mun
undan svíða ef fram ná að ganga, svo
sem áform eru uppi um.
Undir liðnum: Önnur mál var kos-
ið í þrjár starfsnefndir fram að næsta
aðalfundi; laganefnd, atvinnumála-
nefnd og trygginganefnd, hver nefnd
skipuð þrem fulltrúum.
Helgi Hjörvar, Björn Hermanns-
son og Sigurður Agústsson ræddu allir
um nauðsyn enn öflugra og skipulegra
starfs Öryrkjabandalagsins sem og
félaganna og nauðsyn sem beztrar
samvinnu þeirra á milli.
Helgi vísaði til Svíþjóðar af
blindravettvangi þar um fyrirmynd
vinnubragða, sem vel mætti reyna hér
og sem tryggja ætti skipulegri og fag-
legri vinnu að hinum mörgu rétt-
indamálum.
Ragnar Magnússon minnti á Dag
hvíta stafsins, Hafliði Hjartarson
ræddi nauðsyn sem beztrar samvinnu
allra þeirra er vinna að málefnum
fatlaðra og Guðríður Ólafsdóttir
minnti á þau skerðingaráform sem
uppi væru.
s
Olöf Ríkarðsdóttir, formaður
bandalagsins flutti svo loka-
ræðu aðalfundarins. Hún þakkaði fyrir
fjölsóttan og árangursríkan fund sem
vonandi skilaði sem mestu inn í bar-
áttu daganna. Hún þakkaði starfs-
mönnum fundarins, færði sérstakar
þakkir þeim sem nú hættu í stjórn og
bauð nýja velkomna. Ólöf minnti á
þau mörgu átök sem félögin stæðu
farsællega að og hefðu svo mikla
þýðingu fyrir heildarhag sem einstaka
hópa. Hún kvað til þess mjög ríka
ástæðu að ályktunum yrði fylgt eftir
af fremsta megni. Verkefnin framund-
an eru fjölmörg og öll þurfum við að
snúa bökum saman í sókn sem vörn.
Fundi var slitið um kl. 17.
H.S.
Stjóm
• • /
Oryrkjabandalags Islands
Formaður:
Varaformaður:
Ritari:
Gjaldkeri:
Meðstjórn.:
Ólöf Ríkarðsdóttir,
Haukur Þórðarson,
Þórey J. Ólafsdóttir,
Hafliði Hjartarson,
Sjálfsbjörg.
SÍBS.
LAUF
Styrktarfélagi vangefínna.
Ólafur H. Sigurjónss., Umsjónarfélagi einhv.
Þessi skipa um leið framkvæmdastjórn.
Aðrir í stjórn eru:
Björn Hermannsson,
Dagfríður Halldórsdóttir,
Eggert Sigurðsson,
Elísabet Á. Möller,
Emil Thoroddsen,
Guðbjörg Jóna Sigurðard.,
Guðjón Ingvi Stefánsson,
Heidi Kristiansen,
Hugrún Þórðardóttir,
Jóhannes Ágústsson,
Magnús Þorgrímsson,
Nína Hjaltadóttir,
Oddný Fjóla Lárusdóttir,
Ólöf S. Eysteinsdóttir,
Ragnar Magnússon,
Valgerður Auðunsdóttir,
Þórir Þorvarðarson,
Félag heyrnarlausra.
Félag nýrnasjúkra.
Alnæmissamtökin.
Geðverndarfélagi Islands.
Gigtarfélagi Islands.
Blindravinafélagi Islands.
Heyrnarhjálp.
Foreldrafélagi misþroska barna.
FAAS.
Foreldra og styrktarfélagi heyrnardaufra.
Geðhjálp.
Parkinsonsamtökin.
MS félag íslands.
MG félag íslands.
Blindrafélagið.
SPOEX.
Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
29