Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1995, Page 31
þess þó að það teljist fyllilega töl-
fræðilega marktækt. Hins vegar sjást
marktækar vísbendingar um tengsl
slíkra einkenna við vanheilsu og
einkum þegar menn telja orsakatengsl
milli sjónskerðingar og vanheilsu.
Tilhneiging til áleitinna hugsana, m.a.
um hvað hefði getað orðið ef sjón-
missir hefði ekki átt sér stað, virðist
meiri hjá lögblindum en sjónskert-
um. Þegar á heildina er litið varðandi
líðan er samhengi milli minni sjónar
og verri líðanar.
A.m.k. 6-7% svarenda virðast þjást
af svo alvarlegri vanlíðan (einkum
þunglyndis- og kvíðaeinkennum) að
þeir þarfnist meðferðar. Niðurstöður
benda til meiri meðferðarþarfar meðal
yngri hópsins og því meiri sem sjón-
skerðingin er því brýnni verði þörfin
að öðru jöfnu.
Jón Sig. Karlsson
Sigrún Júlíusdóttir
Leiðréttingar
Aldrei er með nægri aðgát farið.
í síðasta tölublaði var viðtal í
fréttabréfinu við hjónin Gunnar Reyni
Antonsson og Steinunni Gunnars-
dóttur sem vel að merkja varð Ragn-
arsdóttir hjá ritstjóra.
Um leið og Steinunn er mikillar
velvirðingar beðin, þá mætti orða
þetta svo í orðastað Gunnars Reynis;
Kann að feðra konu mína
kyndugt þykir mér og frekt.
Helgi er farinn heyrn að týna
heldur er það bagalegt.
Með afsökunarbeiðni til Steinunnar
Gunnarsdóttur.
Gunnar Hansson t.h. afhendir Stefáni Hreiðarssyni bók
sem framlög verða skráð í.
Styrktarsjóður stofnaður við
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins
Nýverið var stofnaður Styrktarsjóður Greiningar- og ráðgjafarstöðvar
ríkisins til minningar um Þorstein Helga Ásgeirsson, sem lést 20 . janúar
sl. á fimmta aldursári. Frumkvöðlar að stofnun sjóðsins voru móðurbræður
Þorsteins Helga, þeir Gunnar, Sveinn og Guðmundur Hanssynir, en foreldrar
hans, Magnea Hansdóttir og Ásgeir Þorsteinsson, lögðu sjóðnum einnig til
stofnfé. Skipulagsskrá hefur verið staðfest af dómsmálaráðuneytinu. Tilgangur
styrktarsjóðsins er að veita styrki til símenntunar og fræðilegra rannsókna á
sviði fatlana barna, með það að leiðarljósi að efla fræðilega þekkingu og faglega
þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra. Hefur starfsfólk Greiningar- og
ráðgjafarstöðvar ríkisins að jafnaði forgang um styrkveitingar úr sjóðnum, sem
fara munu fram árlega. Sjóðnum hafa þegar borist allmörg framlög, m.a. frá
Foreldra- og styrktarfélagi Greiningar- og ráðgjafarstöðvar, starfsmannafélagi
stofnunarinnar og einstökum starfsmönnum, auk framlaga frá ættingjum
Þorsteins Helga heitins og annarra minningargjafa. Sjóðnum verður m.a. aflað
tekna með útgáfu samúðarkorta. Þeim sem vilja styrkja sjóðinn með
minningargjöfum eða með öðrum hætti, er bent á að snúa sér til Greiningar-
og ráðgjafarstöðvarinnar, Digranesvegi 5, Kópavogi, sími 564 1744, eða
Breiðholtsapóteks, Mjóddinni, sími 557 3390.
Jólatré sem snúast
Og í ágætri grein í síðasta tölublaði
einnig var þessi vísa ekki heldur rétt
feðruð og mér á bent af bókamanni
glöggum svo og að skv. frumriti
höfundar væri hún svona:
Ég að öllum háska hlæ
á hafi sóns óþröngvu.
Mér er sama nú hvort næ
nokkru landi eða öngvu.
Og höfundur samkvæmt sama
eiginhandriti er Níels skáldi.
Þessu er skylt að koma á framfæri.
Ritstjóri.
Axel Eiríksson rafvélavirki og uppfinningamaður, sá semhækjustandarann
handhæga fann upp, hefur kynnt uppfinningu sína um jólatré sem snúast
með lifandi ljósin, og þykir rétt að koma henni á framfæri. Axel segir jólatrén
setja sinn hátíðablæ á umhverfið allt á jólum, enda þau skreytt sem bezt og
ljósadýrðin um leið mikil. Hápunkturinn sé þegar gengið er kringum trén og
sungið af hjartans lyst, en það geta ekki allir veitt sér og þar á Axel við allt það
fólk sem alvarlega er hreyfihamlað. Axel hefur hannað og smíðað palla undir
jólatrén sem snúast. Þar er tengill sem stinga má trénu í samband og sá
undramáttur fylgir að á pallinum er straumur þótt hann snúist, en inni í pallinum
eru “kontaktar ’ - kol sem leiða strauminn upp í tengilinn. Þetta þýðir að fólk
þarf ekki að ganga kringum tréð til að sjá það frá öllum hliðum og segir Axel
það að sjálfsögðu áhrifaríkara að horfa á trén snúast fyrir þá sem ekki geta
gengið í kringum þau. Svofelld varörstutt kynning Axels á uppfinningu sinni.
Hann veitir allar upplýsingar hér um í heimasíma 567 4021 en Axel býr í
Hraunbæ 50 hér í borg.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
31