Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1995, Qupperneq 39
heilagrar þrenningar og blessun páf-
ans hefur svo leitt til þess að margir
líta á Þríkrossinn sem sérstakan
verndargrip. Sjálfur þáði páfinn grip-
inn að gjöf og er hann væntanlega vel
geymdur í Páfagarði.” I fyrstu var
krossinn einkum gefinn fermingar-
börnum og afmælisbörnum. Nú er al-
gengt að börn fái hann í skírnargjöf
og stúdentar í útskriftargjöf. Guðlaug
tók upp samstarf við Blindrafélagið
um sölu og dreifingu á gripnum við
fráfall Asgeirs. “Félagið á mikinn
heiður skilinn fyrir þátt sinn í að skapa
Þríkrossinum þann sess sem hann hef-
ur öðlast”, segir Guðlaug að endingu.
Frá Blindrafélaginu.
Ragnar Ingi Aðalsteinsson frá Vaðbrekku:
AÐVENTULJÓÐ
I myrkrinu aðventuljósin loga
sem lýsandi bæn um grið.
Þessi veröld er full af skammdegisskuggum
það skortir á gleði og frið.
Það er margt sem vakir í vitund okkar
sem við höfum þráð og misst.
Þá er sálinni styrkur og hjartanu huggun
að hugsa um Jesú Krist.
Við lifum á uppgangs- og umbrotatíð
þar sem allt á að gerast strax.
Og andlegir sjóðir eyðast og glatast
í erli hins rúmhelga dags.
En samt er ein minning sem brennur svo björt
eins og brosandi morgunsól
um hann sem var sendur frá góðum Guði
og gaf okkur þessi jól.
Og jólin nálgast í hverju húsi
og hjarta hvers trúaðs manns.
Það er eins og við fáum andartakshvíld
á afmælisdaginn hans.
En eitt er það þó er í sál minni svíður
sárt eins og þyrnikrans,
að mennirnir halda markaðshátíð
í minningu Frelsarans.
Hann boðaði hamingju, frið og frelsi
og fögnuð í hverri sál.
Hann kenndi um guðdóminn, kraftinn og Ijósið
og kærleikans tungumál.
Og samt eru jólin hjá sumum haldin
í svartnættismyrkri og kvöl, Ragnar Ingi Aðalsteinsson frá Vaðbrekku.
í skugga eymdar og ofbeldisverka
við örvænting, skort og böl.
Við lifum í dimmum og hörðum heimi
með hungur, fátækt og neyð
þar sem einn er að farast úr ofáti og drykkju
en annar sveltur um leið
þar sem einn er þjakaður andlegu böli
en annar ber líkamleg sár.
Og samt hefur lausnin frá þjáning og þraut
verið þekkt í tvöþúsund ár.
En þrátt fyrir mannkynsins mistök og syndir
og myrkvuðu tímabil
og þrátt fyrir allt sem hann þurfti að líða
og þjást hér og finna til
hann bíður samt ennþá með opinn faðm
þar sem alltaf er skjól og hlíf,
og biður um meiri mátt til að gefa
mönnunum eilíft líf.
í myrkrinu aðventuljósin loga
sem lýsandi himnesk rós.
Ógnþrungnir skammdegisskuggar víkja
við skínandi kertaljós.
Á jörðinni fölskvast hin andlegu efni
og oft er hér þungbær vist.
Þá er sálinni styrkur og hjartanu huggun
að hugsa um Jesú Krist.
Þríkrossinn í þágu blindra
ríkrossinn, tákn heilagrar þrenn-
ingar, hefur hlotið afar góðar við-
tökur og hafa um eitt þúsund eintök
selst ár hvert síðan farið var að selja
hann á markaði og er að sjá sem salan
muni tvöfaldast á þessu ári. Þríkross-
inn er seldur til styrktar blindum og
hefur undanfarin ár skilað Blindra-
félaginu um einni milljón króna ár-
lega. Þríkrossinn hannaði Asgeir
Gunnarsson forstjóri, en hann féll frá
árið 1989. Guðlaug Konráðsdóttir er
eftirlifandi eiginkona Asgeirs og
eigandi höfundarréttar að krossinum.
Hún segir: “Þríkrossinn hefur öðlast
sérstakan sess í hugum fólks og er á
sinn hátt orðinn sígildur. Hann hlaut
blessun páfans þegar hann kom hing-
að til lands. Það gerðist áður en Ásgeir
féll frá. Það að Þríkrossinn er tákn
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
39