Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1995, Qupperneq 41
Ráðherra félagsmála flytur ávarp sitt.
Sameinuðu þjóðunum á að
tryggja að reglum SÞ sé á
lofti haldið. Vekja þarf
athygli á málum og vera á
ferli, halda mönnum í
heimabyggð við efnið, þar
kemur að samtökum fatl-
aðra sem og fötluðum ein-
staklingum. Aðgengi kem-
ur öllum við, snýr að sam-
félagslegri þátttöku á öllum
sviðum.
á var komið að Guð-
rúnu Hannesdóttur
forst.m. sem talaði um 6.
reglu - menntun. Hún vitn-
aði í máli sínu til þeirra
laga- og reglugerðar-
ákvæða sem giltu í landi
hér og ákvæði þar augljós
og skýr en um framkvæmd
gilti oft annað. I þessu
sambandi sagði Guðrún að
til kæmu tvenn lög í land-
inu - fjárlög og hin lögin og
mála sannast að alltof oft
réðu fjárlögin og hin lögin
öll yrðu að lúta þeim í fram-
lögum og þar með í fram-
kvæmd. Samskipan, jöfn
þátttaka er í afar mörgu
lagatryggð s.s. í mennta-
málum en framkvæmd oft
ekki í samræmi við fyrir-
heit.
Vissulega skortir ekki
lög, reglugerðir, skýrslur og
stefnumótun. Hún kvað
jafnvel þær blikur á lofti nú
að aðstaða fatlaðra gæti
versnað. Guðrún mun
ski'ifa um þetta efni grein í
næsta blað.
Þorsteinn Jóhannsson
fram.kv.stj. rakti megin-
atriði 7. reglu - atvinnu - og
kynnti í framhaldinu hvert
ástand mála væri hér. Hann
mun eiga grein hér í blað-
inu sem er nær samhljóða
erindi hans.
Síðasta framsöguerindið
flutti Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir, alþ.m. og
ræddi 8. reglu - tryggingu
tekna og almannatrygg-
ingar. Ásta Ragnheiður fór
yfir meginreglur almanna-
trygginga og félagslegrar
aðstoðar annars vegar hvað
varðaði tekjur 75% öryrkja
svo og 65% öryrkja og skal
ekki rakið hér svo kunnugt
sem það á að vera. Hún fór
sérstaklega yfir tekjuteng-
inguna sem gildir um alla
bótaflokka, aðeins á mis-
munandi vegu. Inn í þetta
samhengi setti hún aðstoð
félagsmálastofnana og
upplýsti að hjá Félags-
málastofnun Reykjavíkur
væru 22% þeirra sem þar
fengju aðstoð, öryrkjar.
Ásta Ragnheiður nefndi
svo sér í lagi heimildar-
bætur félagslegrar aðstoðar
sem bundnar væru því að
viðkomandi byggi einn. Ef
tveir fatlaðir flyttu saman
yrði af umtalsverð tekju-
skerðing, sömuleiðis ef
fatlaður einstaklingur eign-
aðist barn, þá missti við-
komandi heimildarbætur.
Hún fjallaði einnig um
ákveðin letjandi áhrif tekju-
tengingar varðandi at-
vinnusókn öryrkja.
Vék sér í lagi að end-
urhæfingarlífeyri sem hefur
áður haft sömu bótaflokka
með sér og örorkulífeyrir,
en nú aðeins tekjutryggingu
skv. breytingu frá 1. okt. sl.,
þar sem bætur félagslegrar
aðstoðar kæmu ekki inn í
myndina lengur.
Ásta Ragnheiður fór yfir
réttindi sjúkratrygginga,
umönnunarbætur og styrk,
makabæturo.fl. sömuleiðis
hin bótatengdu hlunnindi.
Hún kvað mikla nauðsyn
fyrir samtök fatlaðra að
vera ævinlega vel á verði
gagnvart hagsmunum
skjólstæðinga sinna.
Eftir kaffihlé hófust
almennar umræður
með allgóðri þátttöku ráð-
stefnugesta og bar margt á
góma m.a. lífskjör fatlaðra
almennt, aðgengisvandi
svo alltof víða m.a. hjá
heyrnarlausum, uppsagnir
starfa hjá fólki vegna veik-
inda, ráðgjafarþjónusta og
úttektarskylda vegna að-
gengis, skerðing framlaga
nú o.fl.
Ráðstefnunni var svo
slitið laust fyrir kl. 17.
Þess má geta að þessi
fjölsótta og velheppnaða
ráðstefna var tekin upp á
myndband til seinni tíma
varðveizlu.
Öryrkjabandalagið hef-
ur gefið út bækling þar sem
er að finna stutta kynningu
á meginreglum SÞ um jafna
þátttöku fatlaðra forsendur,
áherzlusvið og framkvæmd
og var honum dreift á ráð-
stefnunni. Hann verður
kynntur hér í blaðinu alveg
sérstaklega. Mál manna var
að hér hefði hið bezta til
tekizt og nauðsyn bæri til
að koma sem beztri kynn-
ingu reglnanna út í sam-
félagið.
H.S.
J Ó L
\ hjarta mínu ég fögnuð finn
er fara að nálgast jól.
Með blessunarríkan boðskap sinn
sem björtust mér lýsi sól.
Á bernskunnar vit þá ber minn hug
sem birtu lætur í té.
Og andi minn glaður fer á flug
að finna sín helgust vé.
Því sjálfur Kristur þar kalla fer
með kærleikans fegurst mál,
sem tindrandi skæra birtu ber
beint inn í hverja sál.
í gráma hversdagsins, amstri og önn
skal eilitla hafa töf.
Þau töfra mig ennþá tær og sönn
ég tek þeim sem dýrri gjöf.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
41