Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1995, Page 47
framlag hins opinbera til geðfatlaðra
- 20 millj. kr. 153 millj. kr. eru settar
inn í almennan rekstur málefna fatl-
aðra og þegar 40% heimildin er sett
til viðbótar þá er engin goðgá að ætla
að framlag til Framkvæmdasjóðs
fatlaðra til framkvæmda á næsta ári
muni nema 130 - 140 millj. kr.
essi skerðing á lögbundnum
framlögum er afar alvarleg og
vandséð hvar enda muni eftir að farið
er að meðhöndla fé sjóðsins að
hreinum geðþótta hverju sinni. Full-
trúar hagsmunasamtaka í undirbún-
ingi laga um málefni fatlaðra lögðu á
það mikla áherzlu að fá óskertar tekjur
Erfðafjársjóðs inn í Framkvæmdasjóð
fatlaðra til þeirra brýnu verkefna sem
honum voru falin og eru þar enn lög-
um samkvæmt, svo ekki ætti að vefj-
ast fyrir mönnum. Það er alvarlegt
þegar stjórnvöld og löggjafi fara svo
með skýr og ótvíræð lagaákvæði og
lagfæra þau ár hvert eins og þeim lfkar
bezt. Framkvæmdasjóður fatlaðra á
fyrir höndum fjölmörg bráðbrýn
verkefni sem enga bið þola og því er
nauðsyn að fjármunir honum ætlaðir
fari til þeirra nota sem lög kveða á um.
Til þess eru lög að hentistefna ráði
ekki um framkvæmd mála hverju
sinni heldur lagaákvæði ljós og skýr
og það eru þau í þessu efni og eftir
þeim ber að fara. Vonandi sjá menn
að sér og fara að lögum.
*
Innritunargjald á sjúklinga á
sjúkrahúsum landsins er lausnar-
orð dagsins og hefur þann göfuga
tilgang: “að tryggja jafna samkeppnis-
stöðu sjálfstætt starfandi sérfræði-
lækna og sjúkrahúsa”. Samkeppnin
frjáls skal auðvitað öllu ofar og ekki
má halla á sérfræðingana, þá er nú
betra og réttlátara að láta halla á sjúkl-
ingana sem eru að vasast í því að fara
á sjúkrahús. Undarleg eru áform þessi
og eflaust ekki langt í það, að auk
skattpeninga okkar hlotnist okkur sú
náð að leggja heilbrigðiskerfinu til
aukagjöld til hvers og eins, ef við
förum að standa í veikindum, slysum
eða öðru þjónustukrefjandi eins og
það mun heita. Óneitanlega leiðum
við hugann sér í lagi að lífeyrisþeg-
unum okkar sem mörgum öðrum
fremur munu þarfnast þjónustukrefj-
andi aðgerða heilbrigðiskerfisins. Það
er mjög til samræmis framkvæmt að
um leið og bætur þeirra eru lækkaðar
séu lögð á þá innritunargjöld þessi,
enda vitað að þar eru hin breiðu bök
sem bera munu möglunarlítið auknar
álögur.
Mjór er mikils vísir og þetta aðeins
upphaf að almennri gjaldtöku fyrir
hvaðeina í enn ríkari mæli. Það eitt
víst að okkar fólk mun í engu geta á
sig lagt aukin útgjöld á sama tíma og
þrengt er að þeirra hag. Það ættu
m.a.s. fjármálasérfræðingar sam-
félagsins að skilja.
/
Aaðalfundi Öryrkjabandalagsins
var m.a. ályktað sérstaklega um
nauðsyn aukinnar starfsþjálfunar og
starfsmenntunar í beinum tengslum
við það fagnaðarefni að Starfsþjálfun
fatlaðra hefur fengið nýtt og glæsilegt
húsnæði undir starfsemi sína sem
fleiri njóta góðs af. Starfsþjálfun fatl-
aðra hefur auk síns reglulega skóla-
halds verið með námskeið, afar vel
heppnuð og þá braut þarf áfram að
ganga og í auknum mæli. Einskis má
láta ófreistað að skapa fólki með
skerta vinnufærni sem bezta mögu-
leika á atvinnuþátttöku, starfsaðlögun
sem allra bezt getur sköpum skipt um
hvort viðkomandi nær að eiga sinn
fullgilda þátt í verkum samfélagsins.
Margt er þar merkilegt á döfinni og
vissulega kemur starfsmenntasjóður
félagsmálaráðuneytisins til góðrar
hjálpar í þörfum átökum, en betur má
ef duga skal. Og enn einu sinni skal
ítrekað að ein af meginskyldum hvers
samfélags er að sjá svo til að á hverj-
um tíma sé verk að finna hverjum
þeim sem vinna vill. Atvinnuleysi
dagsins í dag er einhver dekksti
skugginn áþeirri samfélagsmynd sem
við blasir. Þann skugga þarf að afmá
sem allra fyrst.
Eins og getið er glögglega um í
góðri skýrslu formanns á aðal-
fundi bandalagsins á liðnu hausti
gegnir lögfræðiþjónusta bandalagsins
afar þýðingarmiklu hlutverki fyrir
okkar fólk. Þangað leggja fjölmargir
leið sína í hinum ýmsu erindum og fá
dýrmæta aðstoð í svo mörgu. Jóhann-
es Albert Sævarsson lögfr. er hér til
viðtals árdegis á miðvikudögum og
eins má þá ná í hann í síma. Jóhannes
segir málin af ólíku tagi, sum býsna
fyrirferðarmikil og kalli á frekara
framhald, önnur til úrlausnar í beinu
framhaldi af beiðni og mörgum þann-
ig ýmist vísað til vegar vel eða þá sem
oftar er að eftir athugun og aðgerðir
megi menn fá unandi málalyktir eða
úrlausn nokkra. Þessi þjónusta er því
mörgum mjög dýrmæt og megnar að
skila árangri afar góðum sem full
ástæða er til að vekja á verðuga
athygli. Bandalaginu er það einnig
mikils virði að mega svo koma til
móts við sitt fólk með verðmætri þjón-
ustu og aðstoð sem árangur ber svo
oft og víða. Sannarlega þörf þjónusta
sem í þagnargildi ætti ekki að liggja.
Þegar vel er að verki staðið ber að
virða slíkt.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
47