Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1997, Qupperneq 9
fólk og fólk sem starfar við endur-
hæfingu.
Áhersla verður lögð á að nýta ýmsa
sjóði innan Evrópusambandsins í
þágufatlaðsfólks. Þar má nefna “The
Structural Funds”: Á yfirstandandi
tímabili 1994-1999 er Structural
Funds mikilvægasta fjárhagstækið í
Evrópusambandinu til þess að bæta
aðstæður fatlaðs fólks í aðildar-
löndunum.
Framkvæmdastjórnin mun setja
fram ítarlegar reglur (“Guides of
Good Practice”) sem mælt er með
að aðildarlöndin fari eftir til hagsbóta
fyrir fatlað fólk. Auk þess verður
haldið áfram að gefa út rit s.s.
“Helioscope” sem gefið er út á 11
tungumálum og “Helioflash” sem
gefið er út á þremur tungumálum. Þá
er mælt með að halda upp á Evrópu-
dag fatlaðs fólks og stefnir fram-
kvæmdastjórnin ásamt Evrópu-
þinginu og öðrum Evrópustofnunum
að því að styrkja þetta verkefni.
HUGSANLEG AÐILD
ÍSLENDINGA
Öll ofangreind verkefni eru
auðvitað á vegum Evrópusam-
bandsins. Þá vaknar auðvitað spurn-
ingin hvernig þetta snýr við okkur
íslendingum. Eins og staðan er núna
höfum við áheyrnaraðild að þessum
verkefnum. Til þess að við fáum fulla
aðild er nauðsynlegt að búa til aðra
samþykkt EFTA ríkjanna við fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins
sem felur í sér fulla aðild EFTA ríkj-
anna að þessum verkefnum. í fram-
haldi af því verða EFTA ríkin að
greiða til verkefnisins.
Það sem undirrituðum þykir hvað
mest áhugavert í tillögum fram-
kvæmdastjórnarinnar eru svokölluð
“Pilot projects” sem hugsanlega yrðu
svipað uppbyggð og verkefnahópamir
“Exchange and Information Activi-
ties” í HELIOS II verkefninu. Þá er
gert ráð fyrir fleiri styrkjum til
ráðstefnuhalds og möguleiki verður á
fleiri niðurgreiddum ferðum fatlaðs
fólks ef við fáum áfram fulla aðild að
Mobility International.
VINNUM Á HAGNÝTAN HÁTT
Eins og að framan greinir er hér á
ferðinni gífurlega umfangsmikil
starfsemi. Þó er vert að benda á að
aðstæður og leiðir í málefnum fatlaðs
fólks í sumum aðildarlöndum Evrópu-
sambandsins eru mun lakari en hjá
okkur. Þá þykir undirrituðum “bákn-
ið” innan Evrópusambandsins í sum-
um tilfellum afar mikið og mikill tími
fara í alls kyns skriffinnsku og
skýrslugerðir. Þess vegna tel ég að
sú leið sem við höfum valið hingað
til í ofangreindu Evrópusamstarfi, þ.e.
etta er heiti á nýlegum, ljómandi
læsilegum bæklingi sem Samtök
sykursjúkra hafa sent frá sér.
Bæklinginn prýða skemmtilegar
teiknimyndir sem eiga að sýna mun-
inn á að vera í felum og koma fram í
dagsljósið og taka þátt í baráttunni.
Fyrirsögn yfir fjögur áherzluatriði
bæklingsins er: Samstaða veitir betri
yfirsýn.
Fyrsta áherzluatriðið er: Sykur-
sýki (diabetes): Fötlun eða ögrun.
Sagt er frá því að sykursýki sé við-
varandi sjúkdómur sem hefur áhrif og
sín óþægindi, en á henni er unnt að
hafa stjórn. Þar er fræðslan drýgsti
bandamaður.
Stærsti fróðleiksbrunnurinn um
sjúkdóminn er sjúklingurinn sjálfur,
er nafn næsta áherzluatriðis. Þar
kemurframað 1,5 — 2% þjóðarinnar
hafa sykursýki. Sykursýki er hinn
“þögli sjúkdómur”, segir þar. Þeir
sem lifa með sykursýki geyma mesta
að leggja áherslu á það sem kemur til
góða fyrir fatlað fólk á íslandi, hafi
verið rétt. Því er mikilvægt, í hugsan-
legri þátttöku í þeim verkefnum sem
framundan eru á vegum Evrópusam-
bandsins, að við sjáum af þeim hagnýt
not og fólk finni það á sjálfu sér að
þátttakan skili raunverulegum árangri.
Helgi Hróðmarsson.
og mikilvægasta fróðleikinn um
sjúkdóminn.
Hvað getum við boðið sykur-
sjúkum og aðstandendum þeirra? er
síðan spurt. Þar er vikið að hlutverki
Samtaka sykursjúkra sem er að fræða
fólk um sjúkdóminn með fræðslu-
fundum, fræðsluefni og tímaritinu
Jafnvægi sem kemur út einu sinni til
þrisvar á ári.
Hver erum við? Hvers vegna er
okkur ekki sama? eru svo spurning-
arnar í lok bæklingsins. Þar er athygli
vakin á því, að aðeins einn af hverjum
sex sem sykursýki hafa, eru í samtök-
unum. Og lokaorðin eru hvatning til
að efla samtökin. Við þurfum öll á
hvert öðru að halda.
Vonandi verður útgefendum að ósk
sinni, því ekki mun af veita.
Samtök sykursjúkra eiga aðsetur
sitt að Laugavegi 26, Pósthólf 5292,
125 Reykjavík.
H.S.
Eru margir sykursjúkir
í feluleik?
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
9